Mímir - 01.05.1980, Qupperneq 5

Mímir - 01.05.1980, Qupperneq 5
ÞORIR OSKARSSON: SPREK Á ELDINN Hugmyndaleg einkenni i. I skáldaumræðum árið 1958, sem færðar voru á prent í tímaritinu Birtingi sama ár, bar það helst til tíðinda að einn höfuðfor- sprakki íslenskrar nútímaljóðagerðar, Hannes Sigfússon, lýsti því yfir að nútímaljóðið væri úrelt; það hafi ekki þróast nægilega ört frá stríðslokum og sitji því fast í hefð annars tíma. Hannes segir: Mér finnst nútímaljóðið ekki fært um að gegna því hlutverki sem ljóðlistin á að gegna nú á dögum — af því að það er í eðli sínu jafn innhverft og það var fyrir rúmum áratug; vegna þess að það hefur ekki þróazt með tímanum og hlýtt kröfu hans um uppreisn, kveðið sér hljóðs, tek- ið af skarið!1 Hins vegar lifi mannkynið nú býsna við- sjárverða tíma. Breytt heimsmynd knýi skáld- in til að endurskoða viðhorf sín varðandi hlutverk og gildi skáldskapar. Til þess að lýsa nýjum veruleika og túlka nýja afstöðu eða lífsvitund verði skáldin að finna sér betri miðil en hið innhverfa nútímaljóð. Kalda stríðið heldur áfram og atóm- öldin fellir skugga feigðarinnar yfir hnött- inn. / — / Skáldin gera sér nú ljóst að það er knýjandi nauðsyn að hefja sókn gegn þeim öflum sem teyma mannkynið æ lengra fram að hengiflugi nýrrar styrj- aldar, enda blasir við alger tortíming ef til kæmi. Þannig er nútímaljóðið nú statt í sjálfheldu: annarsvegar vantraustið á orðinu, hinsvegar brennandi þörfin til andófs, til uppreisnar. Það felst sem sé ákveðin mótsögn í því að yrkja á tákn- máli og ætla þó orðum sínum að hafa bein og víðtæk áhrif.2 Og Hannes lýkur máli sínu með þessum orðum: Tíminn, aldarhátturinn, ber í sjálfum sér þá kröfu til okkar að við hættum að svíkja lit, að ísl. skáld verði að nýju fullgildir þátttakendur í menningarbaráttu nútímans. / — / Það er skoðun mín að ísl. nútímaskáldum sé nauðsynlegt að sigrast á vantrausti sínu á orðinu, þeirri vanmáttarkennd sem nú gerir þá að ein- rænislegum föndrurum við heldur væru- kært tilfinningalíf. Ég held að tími hins skorinorða ljóðs sé kominn!3 í þessum orðum kemur fram býsna djúp- stæður ágreiningur við sjónarmið módern- ískra skálda sem höfnuðu þjóðfélagslegum efnum í verkum sínum og virkri afstöðu til vandamála samtíðarinnar, samanber orð franska skáldsins Mallarmés: ,,Rektu veru- leikann úr ljóði þínu því hann er lítilmót- legur.“4 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.