Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 16

Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 16
ViÐTAl V!Ð ÓSKAR HALLDÖRSSON Óskar Halldórsson er fyrir löngu lands- þekktur fyrir störf sín að íslenskum fræðum, hefur skrifað um bókmenntir og annast út- gáfur. Hann hefur nú fengið eins misseris rannsóknarleyfi, en heyrst hefur að hann muni segja upp stöðu sinni við HI í haust. Þess vegna biðum við í ritnefnd Mímis ekki boðanna og gerðum tvo blaðamenn út af örkinni til að spjalla lítillega við Óskar. Óskar er fæddur árið 1921 í Kóreksstaða- gerði á Héraði. Eftir að hafa kennt í nokkur ár tók hann stúdentspróf frá MR 1953 og cand. mag. próf frá HÍ 1958. Óskar stund- aði námið utanskóla og kenndi með. Kennsl- an hefur því verið ævistarf hans en hann hef- ur verið kennari í um þrjátíu og fimm ár. Mímir: Hvers eðlis er þetta leyfi sem þú tekur núna? ÓH: Það er venjulegt rannsóknarleyfi sem við háskólakennarar eigum öðru hverju kost á samkvæmt kjarasamningi. Önnur vinnu- skyida fellur þá niður á meðan. Mímir: Hvernig stóð á því að þú byrjaðir kennslu hér? ÓH: 1967 vantaði kennara til að gegna starfi lektors. Andrés Björnsson sem þá var lektor tók að sér kennslu fyrir Steingrím J. Þorsteinsson prófessor. Ég var þá fastur kennari við Kennaraskólann, hafði reyndar síðustu árin haft með höndum námsstjórn í íslensku. Nú, mig langaði bara að reyna eitthvað nýtt. Mímir: Hverjir hafa verið litríkustu per- sónuleikarnir sem þú manst eftir hérna? ÓH: Það er oft sagt að frumlegum eða sérkennilegum mönnum fari fækkandi en við þurfum líka að taka tillit til þess að margir fá skýrari lit með aldrinum. Nemendur mínir eru flestir ungt fóllc enn. Það var gott og gagnlegt að kynnast eldri mönnunum hér og minnistæðastur er mér Sigurður Nordal, enda þótt ég væri ekki beinlínis nemandi hans. Sigurði lá alltaf eitthvað skemmtilegt og merkilegt á hjarta þegar maður hitti hann, vissi náttúrlega að það var hlustað á hann en var jafnreiðubúinn að hlusta á aðra. Mímir: Hvað er þér minnisstæðast frá þeim árum sem þú hefur verið hér við Há- skólann? ÓH: Umskipti urðu mest þegar við flutt- umst í Árnagarð 1969. Vinnuaðstaðan ger- breyttist og svo tók Árnastofnun til starfa hér. En hugstæðast er mér kennslustarfið sjálft og góðar stundir með nemendum. Mímir: Hafa stúdentar breyst til batnað- ar eða til hins verra? ÓH: Stúdentum í íslensku hefur fjölgað mikið á undanförnum árum, fleiri kallaðir en áður. Námið hér er umfangsmikið og sjálfsagt þreytandi en ég verð ekki var við annað en menn beri þennan kross með stakri prúðmennsku og sæki tíma a. m. k. betur en ég gerði. Ég vil hafa stúdenta eins og þeir eru. Mímir: Hver er helsta ástæðan fvrir því, að bú segir nú upp störfum hjá Háskólanum? ÓH: Sá tími er löngu liðinn þegar kenn- arar gátu látið duga að innræta nemendum einungis það sem þeir höfðu sjálfir lært í skóla. Þekkingin færir kvíarnar út hraðar og lengra en fyrr og háskólakennarar þurfa að 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.