Mímir - 01.05.1980, Síða 21

Mímir - 01.05.1980, Síða 21
Kolbeinn telji sig einfaldlega syndugan mann, kominn upp á náð guðs, eða hann hafi verið hirðulaus um guðsorð framanaf en síðan „frelsast“ eins og nú mundi kallað. Fjarveru galdranna úr kvæðum Kolbeins skýrir Björn Sigfússon svo, er hann fjallar um Vikusáima hans út af Habermanns bæn- um: Havermann nefnir nokkrum sinnum galdra. Þegar Kolbeinn kemur að því les- máli textans, fer hann jafnan hjá sér, nefn- ir lauslega illa hugi manna, þegar sam- hengi krefst, skammar djöfulinn ofsalega og ára hans, en steinþegir um galdra. Það orð er ekki til í öllu kverinu hjá honum. Þessi þögn opnar smugu, sem virðist sýna inn í sálarlíf hans. Galdrakærur voru hon- um of viðkvæmt mál persónulega til að nefna kukl á nafn í guðsorði. Ef til vill hefur hann, sem lcunni varnargaldra, hvíta- galdur, metið í laumi íþrótt sína meir en svo, að hann gæti fremur tekið undir heimskudóma guðfræðingsins um hana heldur en um sum atriði undirgefni og sið- ferðis.11 Það er að sjálfsögðu ekki ómögulegt að Kolbeinn hafi fengist við varnargaldur þó hann geti þess ekki í kvæðum sínum eins og Björn bendir á. Ennþá sennilegra er að hann hafi beitt skáldskapnum sem vopni þegar svo bar undir — jafnvel kveðið niður drauga. I kvæðunum er Kolbeinn trúarskáld, kveð- skapur hans bænamál til drottins, vörn gegn óvininum, heilræði og varnaðarorð. Hann er biblíufróður og notar sér það óspart til að styrkja kenning sína og boðskap. Galdra- manninn er þar ekki að finna. Kolbeinn bjó í Einarslóni skammt frá verstöðinni í Dritvík og fleiri verstöðvar eru skammt undan, t. d. Beruvík. Fjöldi ver- manna, ungir menn, var í þessum verstöðv- um um vertíðir og Kolbeinn hefur áreiðan- lega sjálfur stundað útræði. Meðal vermanna hefur Kolbeinn því verið vel þekktur og einnig kveðskapur hans. Stöðug fangbrögð hans við djöfulinn í skáldskapnum hafa orð- ið mönnum umræðuefni og jafnvel höfð í flimtingum. Það verður að teljast senni- legt að kveikjan að þjóðsögunni um viður- eign Kolbeins og kölska hafi myndast í ver- stöðvunum og þá einnig galdraorðið sem af honum fór. Þetta hefur verið viðkvæmt mál fyrir mikinn trúmann sem Kolbein og skáld sem mat íþrótt sína mikils. Hann kvartar oft undan illu umtali í kvæðum sínum, og í einum mansöng Sveins rímna talar hann um óheiðarlega bókmenntagagnrýni: Miklu heldur last um láð ljóðasmiðunum verður tjáð löngum fyrir litla sök; Ijós eru víða til þess rök. Vant er að breyta veröldu í so verði maður hneyksla frí. Mörg er tungan misjafnet trú mjög er tíð í vexti sú. Víst mun enginn, virðist mér, veröldu í so fæddur hér, sem að ekki brigzlin bráð bæði líði spott og háð.12 Kolbeinn Grímsson verður ekki talinn stórskáld en er þó vel hlutgengur með skáld- um. Eddumennt hans er nokkur en víða eru kvæðin kaldhömruð og auðvelt að finna í þeim hortitti þó þar megi einnig finna lip- urð og létta kveðandi. Dómar lærðra eftir- komenda Kolbeins um skáldskap hans eru næsta ómjúkir svo það lætur nærri að þeir færi orð kölska yfir á allan kveðskap hans: „Það er ekki skáldskapur að tarna, Kol- beinn.“ Jón Grunnvíkingur segir svo um Grettis rímur Kolbeins: „. . . sýnast þær þó ei óvíða skáldfíflaskap en skáldskap nær gánga.“18 Séra Þorsteinn Pétursson á Staðar- bakka fjallar um Kolbein í Lærdómssögu sinni um 1780 á þessa leið: 19

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.