Mímir - 01.05.1980, Síða 50

Mímir - 01.05.1980, Síða 50
EF AÐEINS NÓTTIN II I. Ég hlusta á nóttina gráta því að nóttin hefur vitjað mín. Gömul kona með norðurljósin yfir herðum sér sett skínandi perlum og með tunglið eins og gula rós í silfruðu hárinu. Ef aðeins nóttin léti huggast. Ég hlusta á nóttina gráta því að nóttin hefur vitjað mín. Tár hennar falla rauð eins og blóð inn í endalaust myrkrið. Heit stór tár. Stór rauð tár sem byrgja mér sýn og fjötra mig við endalaust myrkrið. Ef aðeins nóttin léti huggast. Ég hlusta á nóttina gráta því að nóttin hefur vitjað mín. Gömul kona með myrkrið yfir herðum sér, svart endalaust myrkrið, en morgunvonina eins og bleika rós í signum barminum. Ef aðeins nóttin léti huggast. Pei, þei, hlustið. Hver grætur? Ég hélt ég svæfi en þá er einhver að gráta úti í myrkrinu. Ég stend á fætur og leita — en finn engan. Pó er grátið rétt hjá mér — allt í kringum mig. Ég leita áfram en myrkrið byrgir mér sýn, fjötrar mig. Pei, þei, hlustið. Hver grætur? Hver grætur svo sáran? III Gömul kona grætur. Nóttin með himininn svartan yfir herðum sér. Rauð tár í endalausu myrkri. Komdu gamla kona við skulum verða samferða til morgunsins. (Símon Jón) 48

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.