Mímir - 01.04.1986, Page 27
Tafla 10 sýnir hve stór hundraðshluti nafn-
bera bar tíu algengustu nöfnin á hverju tíma-
bili8 9 og hve mörgum % tíu algengustu nöfnin
námu af nafnaforða landsmanna.
Af töflunni sést að um helmingur lands-
manna hét tíu algengustu nöfnunum árið 1703
en þau námu um 2,75% af nafnaforða lands-
manna. Arið 1982 hét tæpur þriðjungur þjóð-
arinnar tíu algengustu nöfnunum, sem þá
námu um 0,45% af nafnaforðanum. Af þessu
sést að það eru algengustu nöfnin sem setja
mestan svip á nafnaval landsmanna en ekki
hin fátíðu, þó þau séu miklu fleiri að tiltölu. Af
þessu hlýtur að leiða að nrikill hluti nafnaforð-
ans er borinn af tiltölulega fáum mönnum.
Þannig virðist þetta líka vera því samkvæmt
Þorsteini Þorsteinssyni (1964:183) og Hagstofu
íslands (1981:1 — 14) er meira en helmingur
nafnaforðans með færri en tíu nafnbera í
skýrslunum 1703, 1855, 1910, 1921 — 50, 1960 og
1976 (sjá töflu 11).
Taflall
Fjöldi nafnbera 1 maður 2—4 menn 5—9 ntenn kk.nöfn 20,6% 24,4% 12,6% 1703 kvk.nöfn 22,4% 18,5% 15,3% kk.nöfn 26,4% 21,5% 12,1% 1855 kvk.nöfn 31,2% 23,2% 12,1%
Samtals 57,6% 56,2% 60,0% 66,5%
Fjöldi nafnbera 1 maður 2—4 menn 5—9 menn kk.nöfn 35,6% 23,2% 10,4% 1910 kvk.nöfn 41,9% 22,9% 9,4% kk.nöfn 31,4% 21,8% 10,9% 1921-50 kvk.nöfn 38,3% 24,5% 10,0%
Samtals 69,2% 74,2% 64,1% 72,8%
Fjöldi nafnbera 1 maður 2—4 menn 5 — 9 menn kk.nöfn 42,2% 27,1% 11,9% 1960 kvk.nöfn 43,3% 23,2% 15,3% kk.nöfn 43,2% 26,5% 10,6% 1976 kvk.nöfn 41,1% 23,7% 14,3%
Samtals 81,2% 81,8% 80,3% 79,1%
5.1 Algengustu einnefni, aðalnöfn og aukanöfn
Tafla 12 sýnir algengustu einnefni, aðalnöfn1'
og aukanöln í nafngjöfum áranna 1941 — 50,
1960 og 1976 (sbr. Þorsteinn Þorsteinsson
1961:81 og Hagstofa íslands 1981:5+—6+).
8 Sbr. fylgiskjöl.
9 Aðainöfn eru skilgreind á mismunandi hátt í skýrsl-
unni 1941—50 og í skýrslunni 1960 og 1976. Þorsteinn
Þorsteinsson (1961:9) skilgreinir aðalnafn sem það nafn af
Þessi tafla sýnir eins og töflur 8 og 9 að held-
ur meiri breytíngar verða á nafnavali á árunum
1960 — 1976 en á árunum 1941 — 60. Þannig eru
tvö algengustu einnefni sveina 1941 — 50 og
1960 Guðmundur og Sigurður komin í 7. og 8.
fleirum sem maður kallast venjulega (það sé þó venjulega
fyrra eða fyrsta nafn). Hagstofa íslands (1981:6+) skilgrein-
ir það hins vegar svo: barnið fær tvö eða fleiri nöfn og
fyrra eða fyrsta nafnið er þá aðalnafn.
27