Mímir - 01.04.1986, Qupperneq 61
Þorbjörn eggjar Gísla með því að saka hann
um kvenlegheit sem hefur greinilega þótt hin
mesta skömm, því að Gísli fer þegar og vegur
Kolþein. Og Þorþjörn er ánægður með vígið:
„ok kann þá vera, at ek eiga eigi dcetr einar
þarna.“16
Með því að drepa Kolþein og verja þannig
heiður Þórdísar og ekki síður ættarinnar sýnir
Gísli karlmennsku. Orð Þorbjarnar sýna að
Gísli er orðinn gjaldgengur í ættarsamfélagi
karlmanna.
Hugrekki karlhetjanna er tengt karl-
mennsku, hugleysi þeirra kvenleika. í þessum
hugmyndum felst innrætingin. Þar er hreyfiafl-
ið ógnun við karlmennskuna, þ.e. hræðsla
karlanna við að vera kvenlegir eða brigsl um
kynvillu sem kemur enn skýrar fram í eftirfar-
andi dæmi.
I M-gerð sögunnar er sagt frá því að Skeggi
nokkur þiður Þórdísar og fær ekki. Þá þýður
Skeggi Kolþirni, sem sagt var að væri í þingum
við Þórdísi, hólmgöngu. En Kolbjörn vill ekki
vinna það til ráðsins og kemur ekki til hólms-
ins á réttum tíma. Þá biður Skeggi smið sinn,
Ref, að gera mannslíkan eftir Gísla og Kolbirni
þar sem annar stæði fyrir aftan hinn. Með
þessu er Skeggi hreinlega að bera upp á þá
kynvillu, sbr. skýringar Björns Karels Þórólfs-
sonar: „í tréníði því, sem Refur skyldi reisa
þeim Gísla og Kolbirni, felast brigzl um kyn-
villu.“17 Andstæðunum kynvillu og hugrekki,
sem felst í orðinu „þorir“, er þarna teflt saman.
Með því að berjast við Skeggja sýnir Gísli karl-
mennsku og hugrekki. Sögusamúðin er ótvírætt
með Gísla. Vísað er í almannaróm: „ok þykkir
Gísli mikit hafa vaxit af þessum málum.“18 Það
er eins og að hann hafi þarna hlotið sína mann-
dómsvígslu.
í grein sinni „Ekki höfum vér kvennaskap“19
fjallar Helga Kress um hvernig hugrekki hetju-
skaparins tengist karlmennsku í Njálu. Þarseg-
16 Sama, bls. 25.
17 íslensk fornrit VI, bis. 10, neðanmáls.
18 Sama, bls. 11.
19 Helga Kress, 1977.
20 Helga Kress, 1977: bls. 296.
ir hún að ættarsamfélag Njálu byggist á feðra-
veldi og hreyfiafl sögunnar sé karlmennska.
Andstæða karlmennskunnar sé lítilmennska og
eitt af því háðulegasta sem geti hent karlmann í
Njálu sé að vera brigslað um kynvillu, að hafa
kvenlega eiginleika. Ég tel harmsöguna um
Gísla vera líka Njálu að því leyti að hún er
„hetjusaga, þar sem sæmdin felst öðru fremur í
karlmennsku og hugrekki.“20
í ættarsamfélagi karlmanna Gísla sögu gilda
ákveðnar reglur og ríkir jafnvægi meðan regl-
unum er fylgt. Þessum reglum ógna konur. í
harmsögunni um Gísla koma konur fram sem
ógnun við jafnvægið í samfélaginu og er þeim
lýst sem friðarspillum.
Forvitnilegt er að athuga með hverju kon-
urnar ógna. Hvað getur kvenhetja gert? Þessar-
ar spurningar spyr Joanna Russ í grein sinni
„What Can a Heroine Do? or Why Women
Can’t Write.“21 Hún kemst að þeirri niður-
stöðu, að aðalhlutverk í bókmenntum séu gerð
fyrir karla og það eina sem kvenhetja geti gert
sé að vera aðalpersóna í ástarsögu.22 Og það
kemur heim og saman; konurnar í harmsög-
unni um Gísla raska jafnvæginu með ástamál-
um, óleyfilegum ástamálum.
í greiningu sinni á upphafskafla sögunnar sjá
Grambye og Sonne Björn blakka sem helsta
ógnvaldinn. Þeir gera lítið úr þeirri ógnun sem
stafar af Ingibjörgu sjálfri í sögunni og sjá hana
fyrst og fremst sem óvirkan þolanda sem Björn
og Ari berjast um. En hún hefur raunveruleg
áhrif á gang mála með því að láta Gísla fá
galdrasverðið Grásíðu, en ekki Ara. Þegar hún
lætur Gísla í té sverðið segist Ingibjörg heldur
hafa viljað eiga hann en Ara. Ingibjörg er þarna
sterkur gerandi og raunverulegur ógnvaldur.
Hún Ijær bónda sínum ekki sverðið og orsakar
þannig óbeint dauða hans vegna þess að hún
vill heldur eiga Gísla.
En í þessu ættarsamfélagi giltu strangar regl-
21 Joanna Russ, 1972.
22 Helga Kress fjallar einnig um þetta atriði í grein sinni
um sagnahefð og kvenlega reynslu í Laxdælu, „Mjpk mun
þér samstaft þykkja.“
61