Mímir - 01.04.1986, Síða 84

Mímir - 01.04.1986, Síða 84
æ síðan. jafnt í lofkvæðum hans um Kjartan Ólafsson, Stalín og MaoTse-tung. Þó beinir hann lofsöngvum sínum inn á nýjar brautir síðar meir á ævinni er hinar pólitísku skoðanir hans skerpast og hann tekur kveðskapinn í þágu verkalýðsbaráttunnar. Nefna má sem dæmi að á upphafi skeiðs síns orti hann lof- söngva um söguhetjur Islands en síðar orti hann urn þegna þagnarinnar, hina kúguðu al- þýðu. Þannig breyttu hinar pólitísku skoðanir aðeins viðhorfum hans til skáldskaparefnisins en sjaldnast viðfangsefninu sem fékk þá á sig nýjan svip. 6) Dansastefin og aðra ljóðræna „miðalda- hætti“ notar Jóhannes mikið. Má þar finna jafnt stef úr dönsum sem vikivökum. Nefna má sem dæmi: Fyrir handan, Á flótta, Álfarnir í Tungustapa (3. hluta) og Vikivaka (1926). Eins og sjá má eru öll dæmin tekin úr fyrstu bók Jó- hannesar en þaðan er og Háttalykillinn sem kalla má grein af sama meiði. Finna má sams konar dæmi í Álftirnar kvaka og þar eru hættir þessir mun sjaldgæfari. Jóhannes notar þjóðlagakveðskapinn þó mun víðar en í hinum rómantísku verkum sín- um. Besta dæmið um það er hið hápólitíska Sóleyjarkvœði (1952) sem klætt er í þennan danskvæða búning. En snúum okkur nú að næsta stigi í skáld- skaparþróun Jóhannesar úr Kötlum sem ein- kennist að mestu af baráttuljóðum. 3 Eg orti áður fyrri um ástir, vor og blóm. En nú er harpan hörnuð og hefur skipt um róm. — Hún breytist, eins og annað, við örlaganna dóm. (Ljóðasafn II, bls. 8) Þannig segir í einu erindi ljóðsins Ég lœt sem ég sofi. Nú hefur kveðskapur Jóhannesar, eins og áður sagði, tekið þeim breytingum að hann yrkir nú pólitísk baráttuljóð í ríkum mæli á kostnað þeirra nýrómantísku. Því að þótt finna megi nýrómantísk yrkisefni í Ég lœt sem ég sofi eru þau greinilega á undanhaldi. Þannig fjallar Karl faðir minn um basl kot- bóndans2 og í Sonur götunnar verður hungur- skorinn snáði samnefnari framtíðarinnar, hinn verðandi byltingarmaður múgsins sem í anda Gorkys er látinn vera sonur lægstu stéttanna, undirmálsfólksins, fortíðarlaus, því að faðirinn gæti verið morðingi en móðirin þjófur: Götunnar sonur er ellefu ára, og enginn veit um hans kyn. — Örlögin sköpuðu ’ann eitthvert kvöldið við ástríðulogans skin. — Hvort pabbinn var morðingi og mamman þjófur, sem mættust um stundarbil, veit enginn maður; — en allt er blessað, sem almættið stofnar til. (Ljóðasafn II, bls. 31) Kvæðið Sálmur má líta á sem sálm verka- mannanna. Það eina sem þarf að gera er að veita hinu mikla afli verkalýðsins gegn kúgur- unum. Þó kemur þessi hugsun hvergi skýrar fram en í ljóðinu Fyrsti maí þar sem náttúran og stéttabaráttan haldast í hendur. Eins og allt leysist úr læðingi með vorleysingunum mun byltingin fossa um heimsbyggðina. Sams konar hugsjónir má finna í Ijóðum eins og Arðránsmenn og Atvinnulaus auk margra annarra í komandi bókum. Samt mun ég vaka (1935) hefst með svipuð- um hugleiðingum og næsta bók á undan því að svo segir í lokaerindi upphafsljóðsins: „Bí, bí og blaka, álftirnar kvaka,“ lúllaði röddin við rúmið mitt forðum. Og enn væri stautminnst í sveitinni að sofa og láta sig dreyma um guðsbarna gleði og sauðkindafegurð, en — samt mun ég vaka. (Ljóðasafn II, bls. 116) Vissulega væri auðveldast að sofa og láta sig dreyma og engu skipta mannlega eymd en það getur Jóhannes ekki gert. Hann finnur hjá sér köllun til þess að ryðja sósíalismanum braut hér heima á fslandi og gerir það í öreigakveð- 2 Sama og I. 84
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.