Mímir - 01.04.1986, Side 92
Þjóðfélagsleg baráttuljóð Jóhannesar teygja
sig einnig yfir stóran hluta kveðskaparferils
hans. Ef eitthvað er, verður byltinga- og bar-
áttukveðskapur Jóhannesar dýpri og margræð-
ari eftir því sem á líður eða með Sjödægru og
þeim bókum sem henni fylgdu.
Hin rómantísku lífsviðhorf fylgdu Jóhannesi
alla tíð. Náttúran var honum uppspretta feg-
urðar og innra samræmis. Segja má að baráttu-
ljóð hans hafi verið í ætt við hin gömlu þjóð-
frelsisljóð rómantísku skáldanna. Hann lifði í
heimi þar sem orð og gjörðir höfðu merkingu,
skáldskapur hans hafði boðskap fram að færa,
ljóðin höfðu markmið. Þannig skildi hann ekki
lífsfirringarafstöðu „módernistanna“ íslensku
að „markmið væri einfeldni boðskapur móðg-
un“. Þannig má einnig kalla persónudýrkun
hans rómantísks eðlis. Hann trúði að til væru
mikilmenni, snillingar sem leiða ættu þjóðirnar
til betra lífs.
Jóhannes hafði alla tíð djúpa samkennd með
þjóð sinni og sögu hennar. Hann trúði á fólkið
og landið af öllu hjarta, segja má blindu hjarta
hins rómantíska skálds, og sveið því sárt niður-
læging þess. Hann átti sér von um sigur hinnar
íslensku alþýðu, sigur ljóssins yfir myrkrinu, og
þá von hélt hann í til dauðadags.
Heimildir
1 Bjarni Benediktsson frá Hofteigi. Bókmenntagreinar.
Reykjavík 1971. (greinar um Jóhannes úr Kötlum).
2 Erlendur Jónsson. íslensk bókmenntasaga 1550—1950.
Reykjavík 1977.
3 Eysteinn Þorvaldsson. Könnun Sjödægru. Mímir 17.
Reykjavík 1971.
4 Halldór Guðmundsson. Sjödægra, módernisminn og
syndafall íslendinga. Svart á hvítu 2. hefti 1978.
5 Jóhann' Hjálmarsson. fslensk nútímaljóðlist. Reykjavík
1971.
6 Kristinn E. Andrésson. íslenskar nútímabókmenntir
1918-1948. Reykjav.ík 1949.
7 Kristinn E. Andrésson. Um íslenskar bókmenntir. Rit-
gerðirll. Reykjavík 1979.
8 Ljóðasafn Jóhannesar úr Kötlum I —VIII. Heimskringla.
Reykjavík 1972 — 1976.
9 Njörður P. Njarðvík. Vort er ríkið. T.M.M. 2. hefti 1978.
10 Óskar Halldórsson. „... hvernig skal þá ljóð kveða?"
T.M.M.2. hefti 1975.
11 Sveinn Skorri Höskuldsson. Með barnsins trygga hjarta.
T.M.M. 2. hefti 1978.
Mímir þakkar
eftirtöldum aðilum
veittan stuðning
Hampiðjan Lifrarsamlag
Stakkholti 4 Rvík V estmannaeyj a
Strandvegi 50 Vestmannaeyjum
Bókaútgáfa
Menningarsjóðs og Kaupfélag Norður
Þjóðvinafélagsins Þingeyinga
Skálholtsstíg 7 Rvík s. 621822 Ásbyrgi
92