Mímir - 01.06.1997, Blaðsíða 6
Jóhannes B. Sigtryggsson
Konráð Gíslason og íslenzkan
1. Inngangur'
Ovíst er hvort nokkur
hefur haft meiri áhrif á
íslenzka stafsetningu
og málrækt en Fjölnis-
maðurinn og mál-
fræðingurinn Konráð
Gíslason. Ýmis afskipti
hans af íslenzku máli
er viðfangsefni þessar-
ar ritgerðar.2 Fyrst
verður fjallað um af-
skipti Konráðs af stafsetningu,3 síðan um
bókafregnimar því næst Dönsku orðabókina og að
* Fyrsta gerð þessarar greinar var lokaritgerð í námskeiðinu Semínar-
æfmgar 2 vorið 1997 við Háskóla íslands. Aðalgeir Kristjánsson las
uppkast og þakka ég honum ýmsar gagnlegar ábendingar. Kristján
Árnason og Ellert Þór Jóhannsson lásu einnig ritgerðina yfir og þakka ég
þeim.
2 Björn M. Ólsen (1891) reit ítarlegasta æviágrip Konráðs. Finnur
Jónsson samdi eftirmæli (1891), Aðalgeir Kristjánsson ritaði aldar-
minningu (1991) og Jón Helgason skrifaði einnig stuttlega um hann
(1980). Benedikt Gröndal lýsir mjög skemmtilega kynnum sínum af
Konráði í ævisögu sinni Dægradvöl. 1965. Reykjavík. Bezta yfirlitið um
málfræðistörf Konráðs hefur Guðrún Kvaran ritað (1991).
Meðal merkra rita sem Konráð samdi og ekki eru til umfjöllunar hér
eru: Oldnordisk Formlære. Förste hæfte. 1858. Kaupmannahöfn. [Aðeins
kom út eitt hefti af þessari fomíslenzku málfræði, um ritið sjá Guðrúnu
Kvaran (1991:57-8)]; Um Frum-parta íslenzkrar túngu í fornöld. 1846.
Kaupmannahöfn [Þessi stórmerka bók inniheldur mállýsingu fom-
íslenzkunnar byggða á rannsókn á tuttugu og þremur handritum. Hún
inniheldur fjölda bandréttra sýnishorna úr textum. Bjöm M. Ólsen segir
um þetta verk (1891:66): „Það má með sanni segja, að með þessu riti
hefjist ní öld í íslenskri málfræði og útgáfum forníslenskra rita“, um ritið
sjá Guðrúnu Kvaran (1991:52-55)]. Konráð átti stóran hlut í þeirri
íslenzku orðabók sem síðar varð orðabók Cleasbys (1874): „Konráð
Gíslason vann firir þennan mann í 7 ár og firir erfingja hans í önnur 7,
eins mörg ár samtals og Jakob vann firir Rakel, og safnaði með aðstoð
ímsra Islendinga öllu eða mestöllu efninu í orðabók þá sem síðar kom út
með nafni Cleasbys“ (Bjöm M. Ólsen 1891:69). Ég fer ekki út í
athuganir á henni hér en þeir sem vilja fræðast meira um þátt Konráðs í
gerð hennar er bent á inngang Björns M. Ólsens að Efterladte skrifter II
(1897) og sýnishom af vinnu Konráðs og samstarfsmanna hans við orða-
lokum um stafsetninguna á bréfum hans.
Aðalheimildir eru greinar, bréf og rit Konráðs og
bókafregnir í Fjölni.
2. Afskipti af stafsetningu
2.1 Fjölnisstafsetningin
Konráð kveður sér hljóðs í öðrum árgangi Fjölnis
(1836) með tímamótagreininni Páttur umm staf-
setníng. í þessari fyrstu fræðigrein sinni setur hinn
hugdjarfi æskumaður fram þá kenningu að fram-
burðurinn eigi að vera einkaregla stafsetning-
arinnar, sem þýðir að stafsetning orða eigi aðeins
bókina sem er á blaðsíðum 273-293 í sama riti. Eftir Konráð liggja
nokkrar útgáfur fornra texta: Hrafnkelssaga (með R G. Thorsson 1839)
[Konráð skrifaði sjálfur allharða bókafregn um sína eigin útgáfu í Fjölni
6 (1843):66-67], Droplaugarsonasaga (1847), Tvær sögur af Gísla
Súrssyni (1849), Fóstbræðrasaga (1852), Elucidarius (1858) og Njála
(með Eiríki Jónssyni 1875, 1879, 1883, 1889). Konráð gaf auk þess út
Sýnisbók íslenzkrar tungu og íslenzkra bókmennta í fornöld. 1860.
Reykjavík. [560 blaðsíðna bók með sýnishomum úr 44 verkum, flestum
áður óútgefnum.] Einnig samdi Konráð bók með skýringum við
dróttkveðnar vísur (Udvalg af oldnordiske skjaldekvad. 1892. Kaup-
mannahöfn [Finnur Jónsson sá um útgáfuna]). Dróttkveðnar vísur voru
aðalviðfangsefni Konráðs síðustu áratugi ævi hans og liggja eftir hann
allmargar greinar um þær. Yfirlit um greinaskrif Konráðs er hjá Finni
Jónssyni (1891:298-300) og Guðrúnu Kvaran (1991:58-61). Aðalgeir
Kristjánsson (1991 b) hefur gefið út skjöl sem tilheyra umsókn Konráðs
um dósentsstöðu 1847 við Hafnarháskóla. Þar rekur Konráð störf sín til
þess tíma.
3 Greinar Konráðs í Fjölni um íslenzka stafsetningu eru þrjár: Þáttur
umm stafsetníng. Fjölnir 2 (1836):3-37; Þáttur um stafsetníng. 2. Svar
til Árna-bjarnar. Fjölnir 3 (1837):5-18; Um stafsetninguna á þessu ári
Fjölnis. Fjölnir 7 (1844): 1-3. Ein hreinræktuð stafsetningargrein eftir
Konráð birtist utan Fjölnis: é og je. íslendingur (1862):39, 58, 79-80 og
108 bls.
4