Mímir - 01.06.1997, Side 8

Mímir - 01.06.1997, Side 8
stafsetningar yrðu óreiða og ruglingur og vitnað var í skrif Eggerts Olafssonar og Rasks gegn fram- burðarstafsetningu. Konráð svaraði greininni árið eftir í Fjölni (1837:5-18) og sagðist frekar trúa því sem satt væri heldur en lærðum mönnum.9 Hann áréttar að einkaregla stafsetningarinnar eigi að vera framburðurinn. í desemberhefti Sunnanpóstsins kom síðan önnur grein gegn nýmælum Konráðs sem hann svaraði ekki.10 Höfundur þessarar síðari greinar dregur í efa að það sé auðveldara fyrir börn að læra framburðarstafsetningu en uppruna- stafsetningu eins og Konráð hafði haldið fram, því stafimir verða oft fleiri, t.a.m. ekkji fyrir ekki (Sunnanpósturinn: 182-3). Greinarhöfundur lofar einnig málfræðistörf Rasks en um Fjölnis- stafsetninguna og málfræði Konráðs segir hann: „ ... má ei fræði heita, heldur allra gagn“.n Þessi ritdeila varð ekki langlífari. 2.2 Dregið í land Hlé varð gert á útgáfu Fjölnis 1839 eftir útgáfu fimmta árgangs og hófst hún ekki aftur fyrr en 1843. Sjöundi árgangurinn (1844:1-3) hefst á grein eftir Konráð sem ber nafnið Um stafsetninguna á þessu ári Fjölnis.12 Nýir menn höfðu bætzt við Fjölnisfélagið og Konráð var ofurliði borinn í stafsetningarmálum. Tekin var upp stafsetning Nýrra félagsrita, sem var byggð á stafsetningu Rasks (1830) í flestum greinum. Konráð var ekki ánægður með breytingamar en reit þó áðumefnda grein til þess að útskýra þær.13 Hann segir þar meðal annars til varnar framburðarstafsetningunni 9 „Enn so mikjils metum við eínskjis manns orð, að sannfæríng okkar og röksemdirnar sem hún er sprottin af hljóti ekkji samt að vera í firirrijmi“ (Fjölnir 1837:6). ^ Amabjpm og Jeg. 1836. Sunnanpósturinn 2: 177-185. Talið er líklegt að Ámi Helgason stiftprófastur í Görðum, sem áður var minnst á, hafi ritað þessa grein (sbr. Bjöm M. Ólsen 1891:32-33). *' Höfundur greinarinnar samdi vísu til háðungar Fjölnisstafsetningu og er hún á þessa leið (1936:180): Röílar raú enn gpflar graú, gjaúlp oúsmaú til hjaúlpa maú, hjoúlin þaú og oúlin aú, íla blaú um sfla laú. ^ Umfjöllun um söguna að baki þessu afturhvarfi í stafsetningarmálum er hjá Bimi M. Ólsen (1891:58-61), sjá einnig Eimreiðina 1926:365-6, 368,371-2. Konráð segir til að mynda í bréfi: „Bölvanlega er mjer við að skrifa hver f. //vnr“ (Bréf.51). að „ ... rjettmæli og rjettritun er hvorugt komið undir öðru“ (Fjölnir 1844:2) og um íhaldsmenn í stafsetningarmálum, sem mæli sér um vit fram, segir hann: „ ... og sannast hjer, sem optar, að sá segir mest af Ólafi konungi, sem hvorki hefur heyrt hann nje sjeð“ (Fjölnir 1844:2).14 Við lok greinarinnar slíðrar hann þó stafsetningarsverðin og segir: „ ... ekkert er eins óþolandi fyrir skyn- samar verur og fullkomin óregla og vitleysa" (Fjölnir 1844:3) og ákveður að fylgja uppruna- stafsetningunni þaðan í frá. Eftir þetta notaði Konráð aldrei aftur framburðarstafsetningu þá sem hann bjó til og hafði hann raunar hætt að nota hana nokkru fyrr í bréfum sínum.15 Upprunastafsetning sú sem notuð hefur verið lengstum á þessari öld byggir á svokallaðri skóla- stafsetningu.16 Hugmyndasmiður þeirrar staf- setningar er af sumum talinn hafa verið Konráð.17 Öruggar heimildir vantar þó fyrir aðild hans að sköpun þeirrar stafsetningar. Excursus II: Ég hef tekið saman öll aðalafbrigði af Fjölnisstafsetningunni, sem ég veit um. Tölusetning afbrigða og flokkun er mín. Fjölnisstafsetning nr. la: var fyrst notuð í öðrum árgangi Fjölnis (1836). Hún er frábrugðin nútímastafsetningu í eftirtöldum atriðum:18 a) y, ý og ey voru lögð niður, t.a.m. þízkur. b) ei var skrifað eí, t.a.m. þeír. c) Á milli k, g og e var skrifað j, til að mynda kjet, gjeta. d) je var ritað fyrir é. e) Á undan ng var yfirleitt ritaður broddur, t.a.m. lángur. 14 Konráð nefnir einnig áform sín um að skrifa stafsetningarorðabók, sem ekkert varð úr að hann skrifaði: „ ... og væri full þörf á heilli bók um það efni, þar sem kalla má að alls ekkert sé til staðar áður“ (Fjötnir 1844:3). 15 Tvö síðustu bréfin sem Konráð skrifaði með Fjöinisstafsetningunni eru frá árunum 1840 og 1841 (Bré/:XVII, 50-52). 16 Skólastafsetningin snýr að ýmsu leyti aftur til þeirrar stafsetningar sem Rasmus Kristján Rask (1830) innleiddi (sjá Jón Aðalstein Jónsson 1959:86-87). Aðalhöfundur skólastafsetningarinnar var Halldór Kr. Friðriksson, yfirkennari í lærða skólanum, sem var einn af síðari Fjölnismönnum. Þeim sem vilja fræðast um skólastafsetninguna er bent á bók hans íslenzkar rjettritunarreglur. 1859. Reykjavík. 17 Sbr. ummæli Jóns Aðalsteins Jónssonar (1959:84-5). Til að mynda greindi Konráð að tvennskonar æ í síðari bréfum sínum eins og Halldór Kr. Friðriksson vildi að yrði gert í skólastafsetningunni. 18 Konráð tók sjálfur aldrei skipulega saman reglur Fjölnisstafsetningar- innar enda var í raun aðeins ein ritregla: einkaregla framburðarins. 6

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.