Mímir - 01.06.1997, Side 9

Mímir - 01.06.1997, Side 9
 f) -fl var ritað -bl í innstöðu og bakstöðu, t.a.m. ebla. Auk þessa voru sumar málbreytingar og brottföll sýnd í stafsetningunni, t.a.m. so fyrir svo og hvur fyrir hver. Til þess að hlífa lesendum var z víða haldið, x var ekki lagt niður, á, ó og æ voru ekki rituð sem tvíhljóð og tvöfalt samhijóð var skrifað á undan öðru samhljóði eftir uppruna, t.d. þekkt. Ekki var heldur notað sér tákn fyrir önghljóðs g þrátt fyrir að Konráð hafi haft slíkt tákn í stafrófi sínu (Fjölnir 1836:16). Fiölnisstafsetning nr. lb: A þriðja ári Fjölnis (1837:17) voru eftirtaldar breytingar gerðar á stafsetningu nr. la: 1) x var skrifað gs, t.d. lags f. lax. 2) j var ávallt ritað á eftir framgómuðu k eða g, t.a.m. Kjína f. Kína. Fjölnisstafsetning nr, 1: Stafsetning sú sem Konráð lýsti (sbr. Þáttur umm stafsetníng. Fjölnir 2 (1836:3-37)) og hann vildi að kæmist á að lokum. Þessi stafsetning hafði að einkareglu framburðinn. Hún var aldrei notuð skipulega í Fjölni né annarsstaðar.19 Hún er frábrugðin stafsetningu nr. lb í eftirtöldum atriðum: a) au skrifað öí, t.d. Köípmannahöbn. b) æ, ó og á skrifuð aí, oú og aú, t.a.m. Graínland, sjoún, laún. c) z er allstaðar felld niður, t.a.m. þískur f. þýzkur. d) Tvíhljóð og ú og í rituð á undan ng, t.a.m. aúng, íng, oúng, eíng, öíng, úng. e) -gj- > -í- t.a.m. bagi (bagji) > baíi. f) -ígj- > ) t.a.m. vígja > vía, lygi ilýgji) > líi. g) -igj- > -í-, t.a.m. svigi (svigji) > svíi. h) -úgj- > -új-, t.a.m. múgi (múgji) > múji. i) Önghljóðs g greint frá lokhljóðs g með striki ‘£’.20 j) Táknið ‘v’ er alltaf notað fyrir önghljóðið [v], til að mynda hevur. k) ‘ft’ er ritað þar'sem pt ætti að vera eftir uppruna, til að mynda skjifti. l) ‘bn’ þarsem fn ætti að vera eftir uppruna, til að mynda ebna. í fundabók Fjölnisfélagsins, 16. fundi 1843 (Eimreiðin 19 Sumar fundargerðir Fjölnisfélagsins komast nálægt því að vera ritaðar með henni (Eimreiðin 1926, 1927). Bréf til Jóns Péturssonar frá lOda maí 1843, sem einnig virðist hafa átt að senda kaupendum Fjölnis, og Brynjólfur Pétursson ritaði, er einnig með slíkri stafsetningu. Aðalgeir Kristjánsson birtir bréfið (1972:74-5). 20 Þetta g-tákn er notað í fundarbók Fjölnisfélagsins, 22., 23., 24., 25. og 27. fundi. Það eru einu dæmin sem ég þekki um notkun þess (Eimreiðin 1926:369-71). 1926:365), er merkileg heimild um síðustu tilraunir Konráðs til þess að koma á framburðarstafsetningu: ... K. Gjíslason hafði tekjið til imsar breítingar ... t.a.m að b skyldi rita firir f firir framan 1 og n öi firir au og mart fleíra, að þar sem f er vant að skrifa firir framan ð, skuli skrifa b, ai firir æ, að f skjildi haldast firir framan t, g skjildu stungin þar sem so ber undir; að eí skjildi ritast firir e g og e. g. j. það er að skjilja að sleppa g og j þar sem það heirist ekkji í framburðinum t.a.m. þiggjandi af lag á að skrifa lagi, að z skjildi hvurgji skrifa. Aðrar stafsetningargerðir í Fiölni: Stafsetningin á fyrsta árgangi Fjölnis var í flestu sú stafsetning sem Rask kom fyrst fram með í Lestrarkveri handa heldri manna börnum (1830). A sjöunda ári Fjölnis (1844) var tekin upp stafsetning Nýrra Félagsrita, sem var Raskstaf- setningin nærri óbreytt. Hélzt sú stafsetning á Fjölni unz hann hætti að koma út. 3. Bókafregnir Bókafregnir þær sem Konráð skrifaði í Fjölni árin 1843-45 höfðu mikil áhrif. Konráð athugaði mjög nákvæmlega málfar textanna en skipti sér lítið af innihaldi þeirra.21 Villur tók hann skipulega fyrir og flokkaði þær.22 Konráð var gagnrýndur af ýmsum fyrir óþarfa smásmygli og svaraði hann þeirri gagnrýni í sjöunda árgangi Fjölnis (1844:71) með orðum sem gætu hafa verið einkunnarorð hans: „ ... nú sje öll nauðsyn, fremur enn nokkurn tíma fyr, að vanda allar gjörðir sínar, stórar og smáar“. Excursus III: Eg hef farið í gegnum þær bókafregnir Fjölnis, sem Konráð er talinn hafa skrifað, og hef safnað saman athugasemdum Konráðs um dönskuskotið mál og sett í töflu. I fyrri dálki eru orð, orðasambönd og setningar 21 „Hann leggur first og síðast áherslu á það, að orðfærið sje fagurt og hreint; málið er honum firir öllu. Enginn íslenzkur ritdómari hefur nokkumtíma verið jafnstrangur og hann í þessu efni“ (Bjöm M. Ólsen 1891:61-62). 22 í bókafregn í Fjölni 7 (1844:95-99) skiptir Konráð athugasemdum sínum í eftirfarandi flokka: 1) Ritsháttur og lögun á orðum; 2) Orða- tiltæki, orðamerkingar o.s.frv.; 3) Dönskublendingar. I bókafregn í Fjölni 8 (1845:59-71) eru eftirfarandi flokkar: 1) Stafsetning; 2) Setning greinarmerkja; 3) Mynd eða lögun orða; 4) Gallamir á orðfærinu. 7

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.