Mímir - 01.06.1997, Page 16

Mímir - 01.06.1997, Page 16
Hugrún Hrönn Ólafsdóttir Hlegið og grátið' Af óhreinum meyjum á miðöldum Inngangsorð Frá ómunatíð hafa ís- lendingar bæði hlegið og grátið. Það eru engin ný tíðindi. Um aldir alda hafa Is- lendingar fengist við skáldskap. Það eru heldur engin ný tíð- indi. fslenskir bók- menntafræðingar hafa löngum rómað forna sagnaarfleifð sína, sérstaklega fyrir snilldarlega lýsingu á manneskjunni. Einkum fyrir þá mannlegu reisn gagnvart harmsögulegum viðfangsefnum sem einkennir bestu íslendinga- sögumar. Harmurinn á sér fyrirmynd í hetju- kvæðum Eddu og þar er gráturinn jafnmikilvægur og í íslendingasögunum síðar þó að form Eddukvæðanna sé ekki jafnmargbrotið. Bók- menning íslendinga náði miklum þroska og reis í hæð mikilla harmleikja þegar á þrettándu öld. íslenskir forfeður okkar grétu. En hlógu þeir líka? Öðruvísi inngangsorð Rómönsuhefðin er talin eiga rætur sínar að rekja tii Frakklands um miðja tólftu öld en hún breiddist fljótlega út til annarra þjóða í Evrópu. A íslandi fóru skáld að semja verk sem þáðu sitthvað frá evrópsku rómönsunni um svipað leyti og telja má líklegt að bæði fomaldarsögur og frumsamdar og þýddar riddarasögur heyri undir þessa bókmennta- grein. Venjan er sú að greina að fornaldarsögur Norðurlanda annarsvegar og frumsamdar og þýddar riddarasögur hinsvegar. í nýútkominni bók- menntasögu Máls og menningar, II bindi, var sú nýbreytni tekin upp að steypa yngri fomaldar- sögum og frumsömdum riddarasögum saman í einn flokk; rómönsuna. Ég tel að þessi flokkun sé góð og gild, vissulega eiga þessar sögur margt sameiginlegt. Augljóslega eru bæði riddara- og fomaldarsögur fyrst og fremst skemmtisögur, af- þreyingarbókmenntir, sem segja frá framandi löndum og grárri fomeskju. Veruleiki sagnanna á ekkert skylt við veruleika íslenskra bænda eða höfðingja og því er líklegt að þessar sögur hafi aldrei þótt trúverðugar, þær hafa ætíð verið skáld- skapur og áheyrendur sagnanna hafa litið á þær sem slíkar. Aðrar bókmenntategundir, ritaðar snemma á íslandi, féllu fremur undir sagnfræði en skáldskap. Þannig álitu helgisagnaritarar sig sagn- fræðinga, raunsæið í helgisögum tók mið af veru- leika guðspjallanna. Dýrlingasögur voru áframhald hins guðdómlega sannleiks og jafnframt útlegging hans. íslendingasögur gerast innanlands og þó að greint sé frá utanförum hetjanna, þar sem mann- raunir þeirra eru með ólíkindum, em sögurnar í heild sinni fremur raunsæjar. Það er athyglisvert að einmitt þegar hetjur Islendingasagnanna fara í vík- ing til framandi landa verður frásögnin ýkju- kenndari og óraunsærri, stendur næni rómönsu- hefðinni, en þegar heim er komið tekur við hvers- dagslegri lýsing í ætt við íslenskan veruleika. Það er mikilvægt að hafa í huga þessa aðgreiningu miðaldamanna á sagnfræði og skáldskap við lestur fomaldarsagna og riddarasagna. Norrænar fornaldarsögur og riddarasögur eiga það sameiginlegt að efniviður þeirra er fomar ýkjusögur, sagðar til skemmtunar. Fjarlæging í tíma og rúmi gerði það að verkum að sagnimar fengu á sig ævintýrablæ. Fjarlægðin gaf fólki forræði til að spinna við sögurnar, bæta við þær eftir eigin höfði. Fomaldarsögur verða ýkju- kenndari eftir því sem á líður og að sama skapi lengri. Miðaldamenn voru meðvitaðir um að sögurnar voru skáldskapur og því var þeim eðlilegt að bæta við kveðskap og minnum.2 Sennilegt er að bæði áheyrendur og sagnaritarar hafi snemma áttað 14

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.