Mímir - 01.06.1997, Side 18
sestur er í helgan stein en móðir hans er Brynhildur
baga, sem hafði verið skjaldmær og er dóttir
Agnars konungs úr Nóatúnum. Bósi drepur Sjóð,
bróður Herrauðs, og Hringur konungur kastar
honum í hefndarskyni í dýflissu sína. Herrauður
vill að eitt skuli yfir þá báða ganga og hann fær því
að fylgja sömu leið. Fóstra Bósa, Busla kerling,
kveður þá bæn yfir konungi svo að hann má sig
hvergi hræra og verður að lokum að sleppa
Herrauði og Bósa með þeim skilyrðum að þeir
sæki konungi gammsegg sem er ritað gullstöfum
að utan. I sendiförinni kemst Bósi yfir konu sem
gefur honum upplýsingar um gammseggið. Her-
rauður og Bósi fara samkvæmt fyrirmælum
konunnar í hof, drepa óvætt, frelsa Hleiði konungs-
systur og ná egginu. Hleiður verður heitkona
Herrauðar og Bósi og Hringur konungur sættast.
Hleiður var áður lofuð öðrum manni og henni er
rænt. Bósi og Herrauður fara að leita hennar og
Bósi sefur hjá annarri konu og fær hjá henni upp-
lýsingar um ferðir þeirra sem rændu Hleiði. Bósi
sefur svo hjá þriðju konunni og fær hjá þeirri upp-
lýsingar um Eddu Háreksdóttur sem Bósi nemur á
brott með sér til Gautlands. í lokin er bardaga Bósa
og Herrauðar við Hárek konung lýst sem lýkur
með sigri þeirra fóstbræðra. Bósi gerist konungur
yfir Bjarmalandi en Herrauður tekur við rrki föður
síns í Eystra-Gautlandi.
Að öllum líkindum er Bósa saga skáldskapur
frá upphafi til enda. Engar sögulegar heimildir
segja frá þeim Herrauði og Bósa.
Suðrið
Möttuls saga er lausleg þýðing stuttrar franskrar
ljóðsögu, Le mantel mautaillié, sem gerð var í
Noregi á dögum Hákonar gamla. Hér er farið eftir
texta íslendingasagnaútgáfunnar sem aftur fór eftir
textum Gustafs Cederschiölds í Lundi 1877, en sú
útgáfa er með franska textanum, og texta Gísla
Brynjólfssonar, gefnum út í Kaupmannahöfn
1878.12
Möttuls saga fjallar á gamansaman hátt um
skírlífispróf sem fram fer við hirð Artúrs konungs.
Fagur möttull er sýndur hirðinni og sagt að aðeins
þær konur sem eru trúar unnusta sínum geti klæðst
honum. Annars komi í ljós á hvem hátt hver og ein
brýtur reglur velsæmisins. Allir riddaramir, nema
einn, vilja að unnustur þeirra máti möttulinn en
það kemur í ljós að aðeins ein þeirra er eins
hreinlíf og riddaraleg hugsjón gerir ráð fyrir. Það
er unnusta riddarans sem síður vildi máta
möttulinn á heitkonu sína.
Möttuls saga er skáldskapur og þýðingin er
nokkuð trú franska frumtextanum sem er í bundnu
máli. Þó hefur sagan verið stytt í þýðingu og
sumum atriðum breytt. Franski textinn er til prent-
aður við hlið þess íslenska sem gerir samanburðinn
auðveldan.13 Að sjálfsögðu er þó ekki alltaf hægt
að miða við frumtextann því það em ekki bara
íslensku handritin sem hafa varðveist misjafnlega
heldur er varðveisla frumtextanna líka brotakennd.
Hefð innan hefðar
I Bósa sögu er sögusviðið hefðbundið fyrir forn-
aldarsögur; Norðurlönd. I sögunni eru líka sagna-
mynstur sem eru síendurtekin í mörgum fomaldar-
sögum, sér í lagi vrkingasögum sem Bósa saga
tilheyrir.14 Bósi lendir í ónáð hjá konungi, er
sendur eftir gersemi inn í heiðið hof til þess að
bjarga lífi sínu og hlýtur að lokum konungstign. I
sögulok gerist Bósi konungur yfir Bjarmalandi en
Bjarmalandsfarir eru algengar í fornaldarsögum.
Þessar sögur hafa þegið margt úr ævintýrum og
hefur Ruth Righter-Gold gert grein fyrir formgerð
fomaldarsagna sem er náskyld formgerð ævintýra.
Hún nefnir fimm þætti fomaldarsagna sem eru:15
1 Kynning
2 Æska hetjunnar
3 Astæða burtfarar
4 Röð ævintýra
5 Endir; hringnum lokað
Bósa saga fellur ágætlega að þessum efnisþáttum,
er hefðbundin fomaldarsaga að ytri byggingu.
Sagan er einskonar millistig goðsagnar og raun-
sæisskáldsögu. Aðalpersónan er maður en getur þó
framið dáðir sem ekki eru á færi venjulegrar
manneskju. Sagan hefst í heimi sem lesandinn
þekkir en hún færir sig fljótlega yfir í óþekktan
heim þar sem ólíklegustu hlutir geta gerst. Sagan
er lík ævintýram, byrjar í jafnvægi og endar í
jafnvægi; loka þarf þeim minnum sem hrundu
atburðarásinni af stað.
Persónusköpun er fábreytt í íslenskum rómönsum,
líktog í ævintýram, og er söguhetjan Bósi þar engin
undantekning. Bósi er dæmigerður kolbítur. Hann er:
16