Mímir - 01.06.1997, Page 29

Mímir - 01.06.1997, Page 29
meira í baksýn, en fram koma á sjónarsviðið ný skáld nýrrar tegundar.2 Inn í þetta umhverfi steig hin nýja skálda- kynslóð og á árunum 1918-19 gáfu fjórir ungir höfundar út fyrstu bækur sínar, Stefán frá Hvítadal, Davíð Stefánsson, Sigurður Nordal og Halldór Guðjónsson frá Laxnesi. Margir vilja meina að þama hafi í senn risið hátindur nýrómantísku stefnunnar og lokaskeið, og það má að einhverju leyti til sanns vegar færa: Öll sigldu þessi skáld úr vör undir fána ný- rómantíkur og öll áttu þau eftir að hafa mikil áhrif á íslenskar bókmenntir, hver á sinn hátt...Svo nærri var komið hvörfum í bókmenntunum að ekki liðu nema þrjú ár frá útkomu Svartra fjaðra e. D. Stefánsson þar til önnur bók kom út og skáskældi titilinn: Hvítir hrafnar eftir Þórberg Þórðarson. Ekki einasta titillinn var stæling, ljóðin skopuðust mörg hver beint eða óbeint að viðkvæmum skáldskap samtíðarinnar.3 Það má því vera ljóst að þetta voru miklir umbrotatímar á íslandi, sem og erlendis, og bók- menntastefnur jafnt sem aðrar stefnur voru fljótar að úreldast eða endumýjast. Hér heima biðu menn í ofvæni eftir því að eitthvað nýtt og ferskt liti dagsins ljós, eitthvað í anda hins nýja tíma, enda var þjóðin rétt að byrja að njóta ávaxta þeirrar menningar sem heimsstyrjöldin hafði ógnað. Kristinn E. Andrésson segir helsta einkenni bókmenntatímabilsins 1918- 1930 vera formleysi og óskapnað4 * en það er full djúpt í árinni tekið, sérstaklega með það í huga, að á fyrri hluta þessa tímabils risu nýrómantísku skáldin hæst. Þeirra verk em langt frá því að vera formlaus, enda börðust þau gegn t.d. svokölluðu skáldaleyfi og settu fram stranga kröfu um óaðfinnanlegt form, sem olli mikilli breytingu á meðferð bundins máls. Margir telja að á fyrri hluta aldarinnar hafi verið betur ort en á öldinni þar á undan, og þeir form- snillingar orðið til sem mestir hafi orðið með þjóðinni.61 þeirra hópi var Stefán frá Hvítadal. 2 Kristinn E. Andrésson 1949, bls. 11. 3 Heimir Pálsson 1990, bls. 149-150. 4 Kristinn E. Andrésson 1949, bls. 33. 6 Skáldaleyfi felst m.a. í að setja braglýti inn í kveðskap til að halda forminu, t.d. með því að ríma saman “sé” og “innyfle”. Hver var Stefán frá Hvítadal? Stefán Sigurðsson frá Hvítadal fæddist á Hólmavík árið 1887, annaðhvort 11. eða 16. október,7 en eins og svo margt annað sem við kemur skáldinu er ýmislegt á reiki um nákvæma tímasetningu þessa atburðar. Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson trésmiður og kona hans, Guðrún Jónsdóttir. Stefán var fimmti í röð átta alsystkina, en einnig átti hvort foreldri hans um sig eitt barn fyrir hjónaband. A öðru aldursári var Stefán sendur í fóstur til frænda síns, Jóns Þórðarsonar í Stóra Fjarðarhorni fyrir botni Kollafjarðar og var hann þar til 1903, en svo í Hvítadal og víðar til 1905, er hann kom sér suður og settist á skólabekk í Flensborgarskóla í Hafnar- firði. Lítið varð úr náminu, Stefán stóð stutt við og fór fljótlega til ísafjarðar þar sem hann hóf prent- nám, en ekki var áhuginn á því námi neitt meiri. A Isafirði skrámaðist Stefán á fæti og var lengi frá vinnu, en dró að fara til læknis, svo ígerð komst í sárið. Fróðir menn telja að þetta sé meginorsök þess að fótinn varð að taka af við ökkla 1907. A Isafirði gaf hann út blaðið Aftanskin í félagi við aðra unga prentnema og þar birti Stefán fyrsta kvæðið sitt, Haustdægur, undir dulnefninu Hall- freður vandræðaskáld. I ljóðinu kemur fram ást hans á vorinu, sem seinna varð einkenni á lífs- glaðari kveðskap hans. Ljóðið sjálft þótti litlum tíðindum sæta en fékk þó vinsamlega dóma. Stefán dvaldist á ísafirði til vorsins 1906, en fór þaðan til Reykjavíkur til að finna sér vinnu og settist fljót- lega að í Unuhúsi. í Reykjavík vann Stefán m.a. við vegagerð og prentiðn. Árið 1907 fékk hann taugaveiki og var lagður inn á Landakotsspítala. Þeirri vist lauk með áðurnefndri aðgerð, þar sem annar fótur skáldsins var tekinn af því. Það hefur varla verið upplífgandi reynsla fyrir tæplega tvítugan ungling að lenda í þessum hremmingum og fatlast fyrir lífstíð, enda leitaði Stefán í faðm fósturforeldra sinna í Hvítadal strax og hann var laus af spítalanum, eftir 228 daga vist. Þar var hann veturinn 1907-1908, en haustið 1908 fór hann aftur til Reykjavíkur, nú til að læra ljósmyndun. Ekki lauk Stefán því námi frekar en öðru, en miklar þjóðsögur hafa sprottið af því að Stefán hafi prettað fé af hrekklausu fólki með ljósmynda 6 Sbr. Hannes Pétursson 1957, bls. xii-xiv. 7 Skriftin í kirkjubókinni var víst ekki nógu góð til að skera úr um þetta, segir Ivar Orgland. 27

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.