Mímir - 01.06.1997, Side 30

Mímir - 01.06.1997, Side 30
„kunnáttu” sinni lengi á eftir, eins og eftirfarandi frásögn Þórbergs Þórðarsonar af fyrstu kynnum hans við Stefán frá Hvítadal, gefur til kynna: Svo steðjaði öll hersingin upp á pakkhúsloftið, og þegar allir voru seztir flötum beinum á gólfið, hóf Stefán upp lífsglaða frásögn af merkilegum mynda- smið. Hann hafði ferðazt um margar sveitir og tekið ljósmyndir af fjölda fólks og látið alla borga helminginn fyrirfram. Og fólk var svo áfjáð í að fá sér myndir, að sumir létu taka þrjár plötur og borg- uðu allar að helmingi fyrirfram. Síðan hélt mynda- smiðurinn heim til sín til þess að framkalla mynd- imar. Og fólkið heima í sveitunum var alltaf að hlakka til, og það var að segja sín á milli: Hvernig skyldi nú myndin af mér verða? En svo fór því að þykja framköllunin ganga nokkuð seinlega, enda hafði smiðnum láðzt að láta plötumar í vélina, áður en hann smellti af. En hann þénaði á þessu drjúgan skilding. Þetta fannst okkur öfundsverður mynda- smiður. Já, það er óþarfi að vera alltaf skítblankur, ef maður bara þekkir nógu vel á fólkið.8 Eins og fleiri ungir menn á hans reki var Stefán lítið fyrir erfiðisvinnu og þurfti í sjálfu sér lítið til að komast af. Hann lifði hálfgerðu „bóhem” lífi á um þetta leyti. Skáldin sem á þessum tíma voru að alast upp og komast til manns voru líka af allt öðru sauðahúsi en kynslóðir embættismannaskáldanna á undan þeim. Flestir voru af fátæku fólki og fátæktin er umvafin rómantík í lýsingum þeirra sjálfra af þessum tíma, enda gleyptu menn í sig fátæktarlýsingar á borð við Sult Hamsuns og stældu þær í daglegu lífi sínu. Ef marka má lýsingar samtímamanna Stefáns, hefur hann verið sterkur persónuleiki og illgleymanlegur þeim sem kynntust honum. Um nafn hans leikur alltaf einhver töfrablær, frásagnargáfa hans og mælska er hvarvetna lofuð og glæsibragur er yfir honum í augum skáldbræðra sinna á öðrum áratug aldarinnar. Þessum tíma hefur Þórbergur Þórðarson gert ógleymanleg skil í bókinni Islenzkur aðall. Nafn þeirrar bókar segir meira en mörg orð, þó það sé auðvitað ákveðin írónía í titlinum, og þar má best sjá hvílíkt ofurmenni félagar Stefáns hafa talið hann í skáldlegum efnum, og reyndar líka í kvennamálum. 8 Þórbergur Þórðarson 1938, bls. 95. Árin 1912-15 bjó Stefán í Noregi og komst þar í kynni við nýja strauma, a.m.k. á íslenskan mæli- kvarða, sem hann flutti með sér heim til íslands, m.a. áhrif úr skandinavískum aldamótakveðskap. Sérstaklega verður mönnum tíðrætt um tengsl hans við danska skáldið Viggo Stuckenberg, enda er afstaða þeirra til lífsnautna og þess að njóta augna- bliksins áþekk. Þetta skýtur kannski skökku við, dönsk áhrif af Noregsdvöl, en auðvitað er um áhrif þaðan og víðar að ræða líka. Þau verða skoðuð aðeins nánar í kaflanum Inn í hringiðuna. Titillinn Söngvarförumannsins Fyrsta ljóðabók Stefáns frá Hvítadal, Söngvar förumannsins, kom út í októberbyrjun 1918 í 290 tölusettum eintökum. Bókin var 88 blaðsíður9 og hafði að geyma 29 kvæði. I hugum flestra kveikir titillinn líklega fyrst myndina af káta flakkaranum sem arkar syngjandi æviveginn, manninn sem „reddar” sér alltaf einhvern veginn en fellur þó aldrei verk í hendi. En það býr fleira að baki, enda er það ekki vani manna sem vilja láta taka sig alvarlega, að slengja vanhugsuðum titlum á verk sín. Hlutskipti förumannsins er yfirleitt harmrænt og einmanalegt og á sér djúpar rætur í bók- menntunum, samanber til dæmis Örvar-Odd sem hvergi unir glaður í langan tíma, er dæmdur til að flakka um heiminn en getur ekki flúið örlög sín. Einnig mætti í þessu samhengi nefna Ódysseif og gyðinginn gangandi; skósmiðinn Aharsverus sem neitaði Kristi um að kasta mæðinni upp við húsið sitt á leiðinni upp á Golgata, en í refsingarskyni flakkar skósmiðurinn unr heiminn til efsta dags. Þetta má væntanlega tengja áhuga nýrómantísku skáldanna á hinu harmræna yfirleitt, en fleira má tína til. Kristján Karlsson telur að eftirfarandi megi lesa út úr titli bókarinnar: „...þegar Stefán kallar sig förumann, þá er honum í hug, að hann er að sniðganga hverskonar borgaralegt hlutverk skálds í ljóðagerð, en jafnframt hitt, að hann er ekki að gera uppreist. Förumaðurinn er ekki uppreistar- maður, enda gegnir förumaðurinn að sínum hætti þjóðfélagslegu hlutverki”.10 Kristján segir einnig: „Hann er hins vegar að lýsa yfir tiltekinni kenning um hlutverk skálds, að þjóna skáldskapnum einum. Ábyrgðarleysi förumannsins er þegnskapur skálds- ins. Og Söngvar förumannsins eru staðhæfing 9 Blaðsíðutöl eru ekki í bókinni vegna þess að Stefáni þótti það “skáldlegra”. 28

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.