Mímir - 01.06.1997, Page 31

Mímir - 01.06.1997, Page 31
þess, að hollusta við skáldskap sé trúnaður við eigin tilfinningu. Þeir eru að sínu leyti óveraldleg bók”.11 Þótt bók sem slík sé í eðli sínu veraldleg er þessi staðhæfing Kristjáns ekki fjarri sanni. Efnis- lega skiptist hún á tvo póla, og milli þeirra kemst ekkert. Það hvarflar jafnvel að sú hugsun að bókin sé sett saman af manni sem þjáist af geðhvarfasýki, þ.e. sveiflist milli ofsakæti og brjálæðislegs þung- lyndis en nái aldrei jafnvægi á milli12, þó að vitnað sé að Stefán var í lifanda lífi tiltölulega dagfars- prúður og yfirleitt vel þokkaður. Vissulega átti hann sína góðu og slæmu daga eins og aðrir, jafn- vel marga mun verri daga en flestir fá að kynnast, en hann lét aldrei bugast. Þótt líkaminn hafi ekki verið með allra besta móti, var andlegu atgervi hans þannig farið að Stefán var aldrei efniviður í vesaling. Hér seinna skulum við skoða þessa póla svolítið betur, en fyrst líta á hvaða nýjungar það voru sem Söngvar förumannsins fluttu inn í ís- lenskan bókmenntaheim og samhengi þeirra við aðrar bókmenntir og önnur skáld. Inn í hringiðuna Það má vissulega gera því skóna að sitthvað sé merkilegt við þessa bók, í það minnsta höfðaði hún til margra. Fyrsta upplag hennar seldist upp svo prenta varð nýtt tiltölulega stuttu eftir að hún kom út og flestir dómar sem bókin fékk í blöðum og tímaritum voru í jákvæðari kantinum. Sumir halda því reyndar fram að þetta sé eina merkilega ljóðabókin eftir Stefán frá Hvítadal, hann hafi verið „einnar bókar maður” og upp að vissu marki má taka undir það, þó líklega fari betur á því að segja Söngva förumannsins merkilegustu bók Stefáns. Fyrir því eru margvísleg rök. í fyrsta lagi verður að hafa í huga hvenær bókin kemur út. Árið 1918 hafði nýrómantík ekki risið sérlega hátt hér á Islandi, nema gegnum tímarit og blöð. Vinur Stefáns, Þórbergur Þórðarson, hafði reyndar gefið út bókina Hálfir skósólar árið 1915 en hún var ekki svo markviss að skósólamir mörkuðu spor í bókmenntasöguna fyrr en löngu eftir að þeir komu út, og þá á svipaðan hátt og stílæfing Halldórs Laxness frá 1919, Barn náttúrunnar13. Það að 111 Kristján Karlsson 1986, bls. 53. 11 Sama rit, bls. 52 12 Slík samsetning er enda samkvæm uppskriftinni að nýrómantísku skáldi. Þórbergur gaf þessa bók út, en í henni skopast hann m.a. að nýrómantíkinni, sýnir þó að stefnan hafði náð að festa sig nokkuð í sessi hér á landi. Þegar þama var komið sögu voru þjóðskáldin gömlu hvert af öðru að tínast úr tölu lifenda og hálfgert tómarúm að myndast í ljóðalífi lands- manna. Inn í þetta tómarúm gengu ný-rómantísku skáldin og Stefán frá Hvítadal var fyrstur til að vekja almenna eftirtekt. Með Söngvum föru- mannsins var kominn nýr tónn í bókmenntir ís- lendinga. Bæði var, að kvæðin voru mörg hver í nýstárlegum bragarháttum og auk þess var í henni léttari og lýrískari tónn en menn áttu orðið að venjast, ekki síst eftir langa sigurgöngu hins brag- þunga og oft og tíðum torskiljanlega Einars Benediktssonar. Talið er næsta víst að bragarhættinum nýstefi hafi Stefán kynnst meðan á Noregsdvöl hans stóð, í gegnum verk Sivle, Ibsens og fleiri mætra höfunda. Hann mótaði háttinn þó að eigin vild og setti handbragð sitt á hann, einkum með því að losa um taktinn. Þótt hann fylgi hættinum ekki út í æsar, heldur noti ýmis afbrigði hans, hefur naumast nokkur annar lagt í að nota þennan hátt að nokkru marki. Flestum fannst að Stefán ætti þennan bragarhátt, sem er ákaflega hentugur til að túlka örar tilfinningar og geðbrigði. Það er ekki síst vegna hans sem Söngvum förumannsins var svona vel tekið af ungu kynslóðinni. En fleira kom til. í bókinni var ekki eitt einasta ættjarðarljóð, þrátt 12 Fyrsta bók skáída er enda yfirleitt merkilegri eftir á, að því tilskyldu að eitthvað verði úr þeim. 29

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.