Mímir - 01.06.1997, Page 32

Mímir - 01.06.1997, Page 32
fyrir að skáldið hefði löngum verið fjarri fóstur- jörðinni, enda sá nú fyrir endann á sjálfstæðis- baráttunni sem lengi hafði litað allan kveðskap þjóðarinnar og í einungis einu af 29 kvæðum kom íslandssagan fyrir, þó ekki í söguljóði í anda Stephans G. Stephanssonar og margra annarra, heldur vísun, svo sært hjarta æskumanns gæti sýnt hatrið sem brynni í mönnunum14. „Þótt mál Stefáns væri íslenska með afbrigðum fögur og hrein, þá lá allur ljóðstfll Saungvanna utan inn- lendra takmarkana, hefðbundinna og þvældra, hann var landvinningamaður, flutti heim með sér nýa strauma, óvæntar hugmyndasamstæður, framandi lagboða”15 segir Halldór Laxness, enda var efni bókarinnar allt sótt í innra líf skáldsins og náttúran, árstíðirnar og yfirleitt allt jarðbundið, þjónaði eingöngu viðleitni þess til að draga fram þær kenndir sem það vildi lýsa. En helsta nýjungin í Söngvum förumannsins var samt sem áður ríg- bundin jarðnesku lífi því hún fólst í því að skáldið ræddi ástalíf sitt af meira hispursleysi en áður hafði þekkst í hérlendri kvæðagerð og vegsamaði frjálsar ástir í þokkabót. Svona lýsir norski fræðimaðurinn Ivar Orgland, sem ritað hefur tvær bækur um Stefán, þessari nýjung: I Söngvum förumannsins hefjast frjálsar ásta- lífslýsingar fyrst í íslenskum skáldskap. Uti í heimi hafði heimsstyrjöldin fyrri svipt fólkið staðfestu, gert það hvikult og eirðarlaust, en um leið skapað skáld- skapnum svigrúm í djarfari orðum og hraðari æð- aslætti. Stefán hafði að baki sér þá persónulegu reynslu, sem skóp hina æstu lífsvímu í ljóðum hans. Þessi lífsreynsla hafði endurskapað í bestu og persónulegustu ljóðum hans það lífsviðhorf, sem banhungraðir ljóðaunnendur þráðu innilegast.16 Eins og vænta má voru ekki allir hrifnir af þessari nýjung, en væntanlega hefur fölskvalaus einlægni skáldsins orðið þess valdandi að iítið fór fyrir óánægjuröddum. Að auki var einhver ævintýraljómi yfir Stefáni frá Hvítadal, enda hálf- gildings förumaður „...nýkominn heim eftir 14 Kvæðið sem hér um ræðir nefnist Brennumenn og vísar í flótta Kára Sölmundarsonar úr Njálsbrennu, hann fylgdi reyknum til að sleppa lífs og hið sama gerir sá sem ljóðið fjallar um. ^ Halldór Laxness 1972, bls. 42. ^lvarOrgland 1990, bls. 117. alllanga dvöl í framandi landi, fátækur og heilsu- laus og þó enginn hversdagsmaður heldur höfðing- legur í allri sinni fátækt, öruggur í framgöngu og ágætlega til þess fallinn að verða persónuleg fyrirmynd hinnar ungu, óþreyjufullu skálda- kynslóðar sem fagnaði nýjum skáldum í draumóra- kenndri hrifningu. Og næsta áratuginn kom út fjöldi bóka sem báru með sér svipuð einkenni og Söngvar förumannsins”.17 Hið geðþekka skáld Tómas Guðmundsson, sem var 17 ára mennta- skólanemi þegar Söngvar förumannsins komu út, minnist þeirra nýju tíma sem bókin boðaði með þessum orðum: Söngvum förumannsins var [...] tekið tveim höndum, jafnt af ritdómendum sem almenningi, og í meðvitund þjóðarinnar var höfundur þeirra seztur formálalaust á bekk með hennar öndvegisskáldum. Á Alþingi hafði Bjarni frá Vogi forgöngu um að tryggja hinu nýja ljóðskáldi nokkum rithöfundar- styrk og tókst það, meira að segja í fyrstu atrennu. Auðvitað var þessi fjárveiting naumari en svo, að hún gæti komið að verulegum notum, en hún var þó eftirtektarverður vitnisburður um þann óvenjulega sigur, sem list Stefáns frá Hvítadal hafði unnið á hinni íslenzku tregðu18 Það er raunar merkilegt hvað bókinni var vel tekið með það í huga að þar er ekkert brotið til mergjar sem hefur skírskotun út fyrir brjóst skáldsins. En einmitt í því fólst galdurinn sem veitti honum áheyrn hinnar ungu kynslóðar, þarna fann hún þær tilfinningar sem hún annaðhvort átti eða þráði að eiga. Draumur og veruleiki Draumur Stefáns um að verða frægt skáld rættist rækilega með útkomu bókarinnar. Þar tókst honum að stilla vonir æskunnar og vonbrigði saman á nýjan og glæsilegan hátt í smekklega bundnum búningi og gekk æskudraumnum á hönd, kynslóðin „...sem hann var samferða, hugði æfintýrin og drauminn höndlanleg, gerði sér dýrlegri vonir og 17 Erlendur Jónsson 1977, bls. 144. 18 Tómas Guðmundsson 1945, bls IX. 30

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.