Mímir - 01.06.1997, Side 59

Mímir - 01.06.1997, Side 59
Bergsveinn Birgisson Rappsamfélag víkinganna (EgiII Skallagrímsson og Ice-T) í þessum pistli hyggst ég gera nokkum samanburð á samfélagi þeirrar nýfæddu tónlistargreinar er rapp nefnist og mannlífinu hér í norðurálfu á víkingaöld, ca. 850- 1050 e. Krist. Ég mun fyrst og fremst beina sjónum mínurn að tveim einstaklingum sem eru verðugir fulltrúar fyrir samfélag sitt og einkenni þess. Þeir eru víkingurinn Egill Skallagrímsson og rapparinn Ice-T (Tracy Marrow) frá Los Angeles. Ég mun sýna hvemig skáldskapur þeirra líkist og síðan mun ég álykta um kveðskap víkinganna, hvernig þeir fluttu dróttkvæði sín, en þar verður rappið til saman- burðar. Má vera að sumir fetti fingur út í slíkar get- gátur en um kveðskap víkinganna höfum við lítil- fjörlegar heimildir. Hitt er augljóst að slíkur samanburður liggur mjög vel við höggi líkt og Þor- geir Hávarson hefði sagt. Rappið er grein af meiði hins svokallaða hipp- hopp kúltúrs, en hann felur einnig í sér tvær aðrar höfuðgreinar: „graffiti“-list (veggjaskraut) og breakdans. Við lok áttunda áratugarins fer að örla á rapp- inu fyrir eyrum almennings. Brautryðjendur voru hljómsveitin The Sugarhill Gang sem gáfu út plöt- una „Rappers delight“ 1979. Hið kröftuga „beat“ ættað frá Afríku var aðaleinkenni þessarar tónlistar sem fór sem eldur í sinu um hinn vestræna heim, en dafnaði þó best á fæðingarstöðum sínum í út- hverfum New York: á strætum Harlem og Bronx. Þar hafði rappið reyndar lengi verið í mótun áður en það kemur á plötur. Rappið hefur verið rakið til fyrirbæris sem kallast „griot“ og var iðkað í sam- félögum Vestur-Afríku á 15. og 16. öld. Þar fengu óbreyttir borgarar að tjá vilja sinn með rytmískum söng þannig að valdsmenn heyrðu til, og þessa menningu höfðu þrælarnir síðan með sér til Ameríku (Nguyen Ha:1996). I pistli sínum „Hip Hop and it’s place in society“ skilgreinir Nguyen Ha hipp-hopp kúltúr- inn sem „the Black nationalistic voice of the urban youth.“ (Ibid). Rappið er þannig umgjörðin fyrir raddir úthverfanna, og tjáir umbúðalaust þær hættur og þá hörku sem sætir færis á einstakling- unum eins og þetta litla stef sýnir af plötunni „The Message“ sem hljómsveitin Grandmaster Flash and the Furious Five gáfu út 1982: Don’t push me, cause I’m close to the edge I‘m tryin not to lose my head. I þessu vafasama mannlífi vestur þar fer snemma að myndast samfélagsskipan sem er keim- lík þeirri skipan sem var á samfélagi Noregs á dög- um smákóngaveldisins og einnig höfðingjaveldinu á Islandi. Samfélag úthverfanna deilist upp í hópa „gangs“ sem er sennilega komið frá fornenska orð- inu gegenge og þýddi hópur eða herflokkur (Asgeir Blöndal). Þessi gengi eiga síðan í erjum sín á milli. Þetta orð er til í svipaðri merkingu í norrænu máli. í Hákonarmálum Eyvinds skálda- spillis segir um Hákon konung „Gótt hafði enn gjpfli/gengi Norðmanna“. Gengi er þar þýtt sem liðsinni en getur einnig þýtt föruneyti eða vinnu- flokkur í norrænu máli (Ásgeir Blöndal). Gengin eru mörg og misstór í úthverfum New York og annara stórborga lfkt og ættirnar og hirðirnar hér áður. Hér mætti nefna eitt stærsta gengið á austur- ströndinni; Wutang-gengið, en því tilheyra rúmlega 300 manns. Rappskáld þessa gengis eru mörg, þar meðal eru Method man og Iron man hátt skrifaðir. Raekwon, Genius/GZA, Ghost face killa og 57

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.