Mímir - 01.06.1997, Síða 63

Mímir - 01.06.1997, Síða 63
Eins og ég gat um áður er þó stigsmunur á rytmískum kveðskap víkinganna og rappinu. Rytminn er í orðunum sjálfum í dróttkvæðum enda trommur sjaldséðar þá, og kveðandinn hægari en í Ameríkurappinu. Þar er orðaflaumurinn stríðari og rytminn fyrir utan orðin, enda ekki eins dýrt kveðið. Eg sé fyrir mér að hinn harði rapprytmi dróttkvæðakveðskaparins hafi mildast með komu kristninnar og leifar af honum sé að finna í vissum fornum rímnastemmum sem varðveist hafa og hlýða má á bæði á Amastofnun eða í Lagboðasafni kvæðamannafélagsins Iðunnar. Jafnvel mætti finna spor eftir dróttkvæðakveðskap í gömlum rytmísk- um þjóðlögum eins og Hani, krummi, hundur, svín, o.fl. En hví er þessi harði rytmi og rímelja aðall skáld- skaparins á víkingaöld og á strætum Harlem? Svarið felst m.a. í því að mannlífið sem hann sprettur úr einkennist af karlmennsku. Karlmann- leg einkenni, harka og digurbarkaleg kveðandi drottna yfir hinni kvenlegu, lýrísku mýkt. Þama ríkir hnefarétturinn, sá sem vill vera gildur í sam- félaginu verður að sýna hörku: You’re just a number, another piece of tough meat. Killers and robbers are all you greet, Act soft you will get beat! (Power.1988). Hreystin, víman og hugrekkið sitja að borðum en konan vappar um á bakvið í hlutverki gengil- beinunnar líkt og valkyrjurnar í Valhöll. Skáld- skapurinn, líkt og hjá víkingunum, er mönnunum brynja gagnvart hörkunni, óttanum. Sú brynja er steypt úr hörðum rytma og hert í eldi rímsins. Skýrasta dæmið um þessa hugsun er stefið hans Ice-T , þar sem hann segir að enginn muni nokkru sinni drepa hann vegna þess hvemig hann rímar (sjá ofar). En seint verður tungan tamin eins og segir í Hómilíunni og það er einmitt fyrir tilstilli hennar sem hægt er að ræna menn karlmennsku sinni; þar með er sjálfsímynd þeirra ógnað, þeirra mannorð í hættu. Þetta er einfaldlega gert með því að líkja manni við konu í lausu eða bundnu máli; níða hann. Slík ásökun um ergi er n.k. tabú meðal norrænna víkinga. Til að mynda hjó fyrsti kristni- boðinn, Þorvaldur víðförli, tvo menn til bana á Alþingi fyrir að hafa búið til níðvísu um hann og Friðrik biskup. Þar kom fram að Þorvaldur ætti níu börn með biskupi. Konunni eru viss takmörk sett, hún á að vera beygð undir vald karlmannsins og verður að gæta þess að skerða ekki tign hans. Þessi einkenni má finna í drápunni ,,6’n the mornin'" á plötunni „Rhyme pays“. Þar segir Ice-T frá konu einni sem byrjar að „láta heimskulega“ og hefur ósæmilegt orðbragð í frammi gagnvart þeim sem er ekki til að hafa eftir hér. Þar líkir hún þeim röppurunum við „kvenlega ræfla“, svo að hegning frá höndum karl- mennskunnar verður ekki umílúinn: So we beat the bitch down in the god damn street. Þetta sýnir kannski hvað best það vægðarleysi sem einkennir heimkynni rappsins. Heimur Ice-T líkt og heimur Egils er „machismo-extreme", hinir veikari mega sín einskis. Það ber að ítreka að hér hefur s.k. gengilsrapp verið til umfjöllunar. Allt rapp verður ekki sett undir þennan hatt. Rappið er einnig að verða gæða- legri tónlist eftir því sem menn geta lifað af því sem tónlistarmenn en um leið og það verður vin- sælt virðist bæði tónninn og rytminn mildast. Nú orðið eru jafnvel til múslimskir rapparar sem boða fagrar kenningar í textum sínum og líkt og Nguyen Ha bendir á er rappið aðalformið fyrir uppfræðslu barna og unglinga í úthverfum stórborganna á því hver þau sjálf eru, sögu þeirra og takmarki hvað varðar mannréttindi (Nguyen Ha: 1996). Rappið er nú orðið alþjóðlegt fyrirbæri og það er jafnvel orðið sameiningartákn fyrir hinar ólíku þjóðir heims. Einn vinsælasti DJ þar vestra, AFRIKA, segir í viðtali: „I have been blessed by the creator to travel the Earth and witness hiphop worldwide from people in Greece, Germany, South Africa, Morocco, England, France, Croatia, the West Indies, Latin America - all over the Earth - speaking in their own native tounges and funkin’ it up on the turntables and spreading that hiphop love from country to country, land to land, continent to continent." (AFRIKA: 1996). Hliðstæðumar með hinurn norrænu víkingum og röppurunum í gengjum Harlem og Bronx eru sláandi og reyndar mun lleiri en slíkur smápistill getur borið. 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.