Mímir - 01.06.1997, Blaðsíða 69
Hafþór Ragnarsson
Undir áhrifum
Listarhugmyndir Benedikts Gröndals
Á þessu ári eru liðin
90 ár frá láti Benedikts
Gröndals, þó ekki hafi
það farið hátt. í þeirri
umfjöllun um listar-
hugmyndir hans sem
hér fer á eftir, er lengst
staldrað við hugmynd-
ir hans frá seinni hluta
ævinnar. Það sem helst
verður í brennidepli
eru deilur hans við
raunsæismenn um
bókmenntir og verður því leitast við að útskýra það
andrúmsloft sem ríkti hér á seinni heimingi síðustu
aldar. Lengst verður dvalið við fyrirlestur
Benedikts frá árinu 1888, sem hann hélt til að
svara fyrir sig og sínar listarhugmyndir eftir að
Hannes Hafstein hafði haldið fyrirlestur stuttu áður
þar sem hann hélt raunsæiskröfunni á loft og gagn-
rýndi þá sem ekki fylgdu henni, en að þeim fyrir-
lestri verður einnig vikið. Áður en að fyrirlestri
Gröndals kemur, er ætlunin að draga saman eitt-
hvað af því sem á undan honum fór og gæti skipt
máli ef einhvers konar heildarsýn á hugmyndir
Gröndals á að fást og einnig til að gera sér örlitla
grein fyrir persónunni Benedikt Gröndal. Þó orðið
listarhugmyndir komi fyrir í titlinum er rétt að taka
fram, að hér verður skáldskapurinn helsta um-
fjöllunarefnið en ekki listir í heild sinni. Menn að
voru ekki alltaf alveg samkvæmir sjálfum sér í
þessum skoðanaskiptum, en með því að fara ekki
fram yfir árið 1888 einfaldast hlutimir til muna,
því þá brann ennþá hugsjónaeldur skáldanna sem
hér um ræðir, hvað sem seinna gerðist.
Æska og áhrifavaldar
Benedikt Sveinbjamarson Gröndal fæddist 6.
október 1826 á Bessastöðum á Álftanesi. Foreldrar
hans voru Sveinbjöm Egilsson, skáld, þýðandi og
kennari og Helga dóttir Benedikts Gröndals'
skálds og dómara. Benedikt bjó mestan hluta æsku
sinnar, frá níu ára aldri og til tvítugs, að Eyvindar-
stöðum á Álftanesi en faðir hans kenndi við Bessa-
staðaskóla.
Það er ekki hægt að fjalla um listarhugmyndir
Benedikts öðruvísi en gera sér fyrst grein fyrir
hversu mikil áhrif það hafði á hann að eiga jafn
merkilegan föður og hann átti.
Sveinbjörn Egilsson er að öllum líkindum sá
Islendingur sem hvað best hefur verið lesinn í
fagurfræði grískrar fornaldar, og þó þekking hans
hafi vissulega spannað fleiri svið er það þetta sem
stendur upp úr þegar hans er minnst. Þar sem vitað
er að Benedikt leit mjög upp til föður síns, þó ekki
hafi þeir verið nánir á nútímavísu, er ekkert undar-
legt við það að hugmyndir sínar um listir og skáld-
skap hafi Benedikt sótt að stórum hluta til
Aristótelesar, Platons og fleiri slíkra fyrirmynda
föður síns. Stíll hans er líka mjög áþekkur stíl
Sveinbjarnar um margt. Ekki má gleyma að
Fjölnismenn sem án alls vafa höfðu mikil áhrif á
Gröndal lærðu allir hjá Sveinbimi og um föður
sinn segir Benedikt m.a. í ævisögu sinni: „Hann
var með fremstu og liprustu skáldum á sinni tíð, og
af honum hefur Jónas Hallgrímsson helzt fengið
áhrifin, bæði í bundnum og óbundnum stíl...”2 og
seinna í sömu bók segir hann: „Venjulega er tekið
fram að endurreisn íslenzkunnar sé Fjölni að
þakka, einkum Konráð og Jónasi, en menn gæta
þess ekki, eða vilja ekki kannast við, að
[Hallgrímur] Scheving og faðir minn lögðu
grundvöllinn...”3
Hil aðgreiningar hefur hann í seinni tíð jafnan verið kallaður Benedikt
Gröndal eldri.
^Benedikt Gröndal 1965, bls 80.
^Sama rit, bls 82.
67