Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 14

Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 14
14 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Orkumál: Fleiri kostir, meiri sveigjanleiki og bætt nýtni það sem koma skal Út er komin skýrslan Bætt orkunýtni og ný tækifæri til orkuöflunar. Hún hefur að geyma um 50 tillögur sem m.a. snúa að sólarorku, sjávarorku, smávirkjunum fyrir vatnsafl, varmadæluvæðingu á smærri og stærri skala, bættri orkunýtni og sveigjanlegri orkunotkun. Í skýrslunni Bætt orkunýtni og ný tækifæri til orkuöflunar segir að mikil gerjun eigi sér stað á orkumarkaði á Íslandi og að landsmenn þurfi að hafa sig alla við til að brjóta niður huglæga múra fyrir nýjum lausnum í orkuöflun og nýtingu hennar. Raforkuverð hérlendis sé það lágt að nýir orkukostir eigi erfitt uppdráttar í samkeppni við þá sem fyrir eru, vegna stofnkostnaðar og lágs söluverðs raforku. Þrátt fyrir það búi ákveðin svæði og landshlutar við hærra orkuverð en er ásættanlegt og mikilvægt sé að jafna orkukostnað hérlendis. M.a. sé mikilvægt að auðvelda bændum og landeigendum að virkja bæjarlækinn og nýta heimavirkjanir. „Með slíkum aðgerðum gætu orðið til orkusamfélög sem gætu orðið sjálfstæðar eyjar í raforkukerfinu og sjálfar sér nægar um raforku. Kaup og sala raforku með tengingu inn á flutnings- og dreifikerfið er afar mikilvæg fyrir þessa aðila og þarf tenging að fást fyrir lægri kostnað en nú er,“ segir í skýrslunni. Varmadæluvæðing á landsbyggðinni spari mikla raforku og sé afar góður kostur til húshitunar. Starfshópurinn telur að til að flýta fyrir orkuskiptum og nýjum orkukostum verði að einfalda leyfis- og umsóknarferla, sem nú taki of langan tíma. Orkusalar bjóði sveigjanleika í gjaldskrá Áréttuð er í skýrslunni nauðsyn þess að vekja almenning til umhugsunar um bætta orkunýtingu og hvetja orkusala til að bjóða upp á sveigjanleika í gjaldskrá, sem hvetji til betri orkunýtingar og álagsstýringar. „Aflnotkun innan dagsins í almenna raforkukerfinu getur sveiflast um 200 MW og árstíðasveiflan milli júlí og desember er einnig um 200 MW, en til að setja það í samhengi þá er uppsett afl Hellisheiðarvirkjunar, næststærstu virkjunar landsins, um 300 MW í rafmagni. Það er því mikilvægt að leita leiða til að fletja út orkukúrfuna yfir daginn og lengja nýtingartíma flutnings- og dreifikerfisins með hagrænum hvötum og aukinni samkeppni orkusala,“ segir í skýrslunni. Liðka fyrir endursölu glatvarma Fram kemur einnig að stórir aðilar á raforkumarkaði séu að nýta glatvarma frá iðnaði og varmaskipta til að bæta nýtingu og notkun á heitu vatni. Fiskimjölsverksmiðjur hafi tækifæri til afhendingar glatvarma meðan þær eru í gangi nokkrar vikur eða mánuði á ári og í Vestmannaeyjum sé slíkur glatvarmi t.d. nýttur til húshitunar. „Tryggja þarf að engar hindranir séu fyrir endursölu á glatvarma í formi raforku og heits vatns til að bæta nýtingu og auka framboð orku, en slík orka getur nýst m.a. sundlaugum í sveitarfélögum og til húshitunar, ein sér eða með öðrum orkugjöfum,“ segir jafnframt. Annað en vatnsafl +10 MW, jarðvarmi og vindur Umhverfis-, orku- og lofts lags- ráðherra skipaði starfshópinn til að kanna helstu leiðir til bættrar orkunýtingar og orkuöflunar, með hliðsjón af sviðsmyndum um aukna orkuþörf vegna markmiða ríkisstjórnarinnar um full orkuskipti 2040. Var starfshópnum falið að skoða sérstaklega aðra orkukosti en þá sem felast í vatnsafli yfir 10 MW, jarðvarma og vindi og standa utan rammaáætlunar, með áherslu á sólarorku/birtuorku, sjávarorku og smávirkjanir fyrir vatnsafl. Jafnframt að skoða bætta orkunýtni og sveigjanlegri orkunotkun, m.a. varmadæluvæðingu og jarðhitaleit til að draga úr notkun raforku til húshitunar á rafhituðum svæðum. Um 10% landsmanna búa nú á rafhituðum svæðum þar sem ekki eru hitaveitur sem nýta jarðvarma. Starfshópinn skipuðu þau Ásmundur Friðriksson alþingis- maður, Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, MSc. í sjálfbærum orkuvísindum og Lilja Rafney Magnúsdóttir, fv. alþingismaður. Starfsmaður hópsins var Hreinn Hrafnkelsson, sérfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Skýrslan er aðgengileg á vef ráðuneytisins. /sá Búast má við að sólarorkupanelar verði mun víðar hérlendis í framtíðinni og er ríkið hvatt til að ganga þar á undan með góðu fordæmi. Mynd / CommonSence Jöfnun orkukostnaðar „Í vinnu starfshópsins kom fram að fjárhagslega væri oft hagkvæmast að fara í aðgerðir á landsbyggðinni til að flýta fyrir nýtingu nýrra orkugjafa og bæta orkunýtni, þar sem orkuverð væri hærra þar en á höfuðborgarsvæðinu. Stjórnvöld þurfa að auka fjármagn til jöfnunar orkukostnaðar til að standa við fyrirheit í stjórnarsáttmála og aðgerðaáætlun byggðaáætlunar 2022–2026 um jöfnun orkukostnaðar á landsvísu, bæði varðandi jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku og jöfnun húshitunarkostnaðar. Stórnotendur raforku ættu að koma að fjármögnun jöfnunarkerfisins og greiða jöfnunargjald eins og aðrir raforkunotendur, en þeir eru undanþegnir því í dag. Endurskoða þarf núverandi niðurgreiðslu- og styrkjakerfi vegna húshitunar og raforkudreifingar í dreifbýli til að hægt sé að nýta það betur til að styrkja verkefni á sviði bættrar orkunýtni og nýtingu nýrra orkugjafa, t.d. með eingreiðslum í stað árlegra niðurgreiðslna, líkt og gert er varðandi stofnstyrki til nýrra hitaveitna. Gæta þarf þó að því að slíkar breytingar hafi ekki í för með sér lægri niðurgreiðslur eða styrki á viðkomandi svæðum.“ Bætt orkunýtni og ný tækifæri til orkuöflunar, apríl 2024, bls. 15. Helstu tillögur um bætta orkunýtingu og orkuöflun • Mótuð verði stefna og umgjörð um nýtingu sólarorku/birtuorku og sjávarorku. • Löggjöf verði endurskoðuð, með hliðsjón af nýtingu sólarorku/birtuorku og sjávarorku. • Einstaklingar, fyrirtæki og opinberir aðilar geti verið virkir notendur, þ.e. hafi kost á að framleiða og geyma orku til eigin nota, sem og selja inn á dreifikerfi eða til nágranna sinna. • Mótað verði einfalt og skilvirkt leyfisveitingarferli og sett upp ein gátt fyrir umsóknir um leyfi og leyfisveitingar. • Frá og með 2030 verði gerð krafa um að nýjar byggingar verði tilbúnar fyrir sólarsellur. • Huga ætti að ívilnunum/hvötum til að hvetja til uppsetningar á sólarsellum í núverandi atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði. • Huga þarf sérstaklega að því hvort leyfa eigi sólarorkuver á landbúnaðarlandi, að því gefnu að það hafi ekki áhrif á landbúnað og matvælaframleiðslu, en í því geta falist ný tækifæri og tekjumöguleikar fyrir bændur. • Hugað verði að almennum reglum um staðsetningu stærri sólarorkuvera. • Áfram verði stutt við nýsköpunarverkefni á sviði sjávarorku. • Orkustofnun verði falið að vinna greinargerð og fylgjast með þróun og stöðu á nýtingu sjávarorku í öðrum ríkjum. • Mikilvægt er að orkufyrirtæki fylgist áfram með þróuninni og taki þátt í verkefnum sem þau telja að geti skilað árangri varðandi rannsóknir og þróun á nýtingu sjávarorku hérlendis. • Liðkað verði fyrir frekari nýtingu smávirkjana fyrir vatnsafl með einfaldari leyfisveitingum og lægri gjöldum fyrir tengingar við dreifikerfi raforku. • Hækka þarf undanþágu frá virkjanaleyfi í 4. gr. raforkulaga úr 100 kW í 250 kW. • Sérstakar örvirkjanir undir 100 kW verði skilgreindar í raforkulögum/reglu- gerðum og kveðið á um að þær greiði fyrir tengingu og dreifingu samkvæmt sérstakri og lægri gjaldskrá fyrir örvirkjanir. • Lögð verði áhersla á bætta orkunýtni á rafhituðum svæðum, m.a. með áfram- haldandi styrkjum við kaup á varmadælum og kröfum um orkusparandi búnað. • Áfram verði stutt við jarðhitaleit á rafhituðum svæðum. Fleiri tillögur má finna í Bætt orkunýtni og ný tækifæri til orkuöflunar, apríl 2024. „Orkustofnun verði falið að vinna greinargerð og fylgjast með þróun og stöðu á nýtingu sjávarorku í öðrum ríkjum,“ segir í nýju orkuskýrslunni. Myndin er af einni útfærslu Jóns Kristinssonar á úthafsölduvirkjun. Mynd / De ontwikkeling van een Golf en Deining Centrale, 2013-2021/Jón Kristinsson. Sorpa og Bambahús eru handhafar Kuðungsins árið 2024. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti umhverfisviðurkenninguna 2. maí. Auk þess fékk lögreglan á Vesturlandi sérstök hvatningarverðlaun Kuðungsins, en embættið hefur náð fullum orkuskiptum. Nemendur í 10. bekk Árbæjarskóla voru útnefndir Varðliðar umhverfisins árið 2024 fyrir samþætt umhverfisverkefni sitt um sjálfbæra þróun. Góður árangur í flokkun á lífrænum úrgangi Sorpa annast meðhöndlun úrgangs, rekstur á móttöku- og flokkunarstöð, urðunarstað, gas- og jarðgerðarstöð og sex endurvinnslustöðvum, sem reknar eru samkvæmt þjónustusamningi við sveitarfélögin sem eiga Sorpu; Reykjavík, Kópavog, Hafnarfjörð, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes. Hlýtur Sorpa viðurkenninguna vegna þess góða árangurs sem náðst hafi í flokkun á lífrænum úrgangi á síðasta ári, í samstarfi við almenning. Ráðist hafi verið í mikilvæg umbótaverkefni sem gengu út á innleiðingu samræmds flokkunarkerfis og sérsöfnun matvæla á höfuðborgarsvæðinu. Endurvinnsla á bömbum Bambahús eru íslensk gróðurhús smíðuð úr galvaníseraðri stálgrind, klædd með 10 mm einangruðu gróður- húsaplasti. Við hönnun og smíði Bambahúsa er talið að sýnt hafi verið eftirtektarvert frumkvæði með því að nýta hráefni sem annars hefði verið fargað eða það sent úr landi, til dæmis á bömbum sem eru þúsund lítra plasttankar gerðir úr plasti og galvaníseruðu járni. Vörur fyrirtækisins tali beint inn í hringrásarhagkerfið og sýni og sanni eina ferðina enn að það sem er úrgangur í augum eins getur verið gull í augum annars. /smh Afhending Kuðungsins Bambahús endurnýtir plasttanka.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.