Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 21

Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 21
21FréttaskýringBændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Barrskógar endurvarpa hvað minnstu Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor í vistfræði við Háskóla Íslands, segist telja rétt að staldra við þegar farið sé út í umfangsmiklar breytingar á landnýtingu, með það að markmiði að vinna gegn hlýnun jarðar, og huga að öllu þeim þáttum sem sú breyting kunni að hafa áhrif á svo við „skjótum okkur ekki í fótinn“. „Þar með talið er einmitt minnkandi endurvarp, en barrskógar eru sú yfirborðsgerð lands sem hefur einna minnst endurvarp. Þennan þátt þarf því að vega inn og hin nýja vísindagrein í Science (Weber o.fl., 2024) bendir skýrt á að við ákveðnar aðstæður geti hlýnun vegna minnkandi endurvarps unnið upp hugsanlegan ávinning af bindingu gróðurhúsalofttegunda úr andrúmslofti í skóga. Um þetta snýst málið,“ segir Ingibjörg. Grunnforsendan Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands og Ólafur S. Andrésson, lífefnafræðingur og prófessor emeritus við Háskóla Íslands, útskýra að næstum öll orka sem berist inn í lífkerfi jarðar sé bundin af grænum plöntum á landi og af ljóstillífandi þörungum í sjó og vötnum. „Plöntur nota orku sólarljóss til að mynda orkurík kolvetni úr einföldu hráefni, bara vatni og koltvísýringi. Ljóstillífun grænna frumna fjarlægir koltvísýring úr andrúmsloftinu en skilar súrefni í staðinn og þessi starfsemi plantna hefur á sl. 450 milljónum ára byggt upp súrefnisríkt andrúmsloft og núverandi lífsskilyrði á jörðinni. Orkan berst síðan frá plöntum um alla fæðukeðjuna, til grasbíta og rándýra og til sveppa og annarra niðurbrotslífvera. Vefir plantna eru að mestu úr sellulósa (beðmi) og tréni, kolvetnum sem flestir hópar örvera geta ekki brotið niður. Þá geta vefir trjákenndra plantna orðið mjög gamlir. Við sumar aðstæður getur því liðið mjög langur tími frá því plöntur binda koltvísýring í vefjum sínum þangað til hann losnar aftur út í andrúmsloftið við rotnun, bruna eða meltingu dýra. Þetta er í stuttu máli grunnforsendan að baki þeirri hugmynd að nota langlífar trjákenndar tegundir til að fjarlægja koltvísýring úr andrúmslofti og draga þannig úr hlýnun jarðar af mannavöldum,“ segja Þóra Ellen og Ólafur. Ljóst eða dökkt Um það hvort skógrækt sé ekki eins þénug til kolefnisbindingar hérlendis og almennt hefur verið talið segja Aðalsteinn, Arnór, Bjarni, Brynhildur og Pétur að betur þyrfti að kvarða þau líkön sem stuðst sé við í rannsókninni sem birtist í Nature Communications svo að þau gætu endurspeglað raunveruleikann á hverjum stað. Til þess þurfi mældar stærðir. Hérlendis liggi áætlaðar tölur fyrir um mögulega kolefnisbindingu í skógum mismunandi trjátegunda á mestöllu láglendi Íslands sem byggi á raungögnum. Þær séu mun áreiðanlegri grundvöllur að mati á mögulegri kolefnisbindingu ræktaðra, íslenskra skóga en tölur í líkani Walker o.fl. (2022) sem byggi á mælingum annars staðar á norðurslóðum. „Ef gróðursett tré vaxa hægt verður kolefnisbinding ræktaðs skógar lítil. Þetta getur t.d. gerst í þurrkaeyðimörkum eða gresjum sunnan Sahara, í Mið-Asíu eða vestanverðri Norður-Ameríku vegna langvarandi þurrka. En segjum sem svo að forsendan sem höfundar gefa sér sé rétt og að staðbundin hitagleypni (vegna lægra endurskins) leggi sinn skerf til hnattrænnar aukningar hita í andrúmsloftinu: Endurskin ræðst þá af því hve mikil inngeislun sólar er á sama stað og hvort yfirborð lands er ljóst eða dökkt. Yfirborð fyrrnefndra þurrkaeyðimerkursvæða er að jafnaði ljósleitt (gulir sandar eða ljósar gresjur). Þar yrði ávinningurinn lítill með nýskógrækt vegna meiri ljósgleypni í hægvöxnum, dökkleitum skógi,“ segja þau. Náttúruskógar með góðri aldursdreifingu Varðandi hvort íslensk skógrækt sé eins heppileg til kolefnisbindingar og talið hefur verið, segir Ingibjörg hins vegar að svarið velti á því hvers konar skógrækt sé um að ræða. Hún bendir í því sambandi á umfjöllun sína í grein, „Skógrækt er ekki alltaf sjálfsögð sem loftslagsaðgerð“, sem birtist í Heimildinni í október í fyrra. „Skógrækt getur haft margvísleg markmið og ef sett eru skýr markmið og hugað að því að mæta þeim stöðlum sem settir hafa verið upp fyrir náttúrumiðaðar lausnir (Seddon o.fl., 2021, IUCN, 2020) má búast við talsverðum ávinningi til lengri tíma, sérstaklega ef skógræktin miðar að endurheimt náttúruskóga með góðri aldursdreifingu trjáa og líffræðilegrar fjölbreytni. Ef vísað er til þeirrar skógræktar sem nú viðgengst hér á landi í nafni loftslagsaðgerða þar sem plantað er samtímis framandi tegundum í stór svæði, oft og tíðum vel gróið mólendi sem geymir umtalsvert magn kolefnis, er svarið afdráttarlaust nei,“ segir Ingibjörg og bætir við að vaxandi fjöldi rannsókna styðji að vænlegasta leiðin til að auka bindingu vistkerfa til lengri tíma sé endurheimt náttúrulegra vistkerfa, þar með talið skóga (Lewis o.fl., 2019, EEA, 2022). Meiri áhrif á norðlægum slóðum Innt nánar eftir útskýringu á því hvað átt er við með að endurskin geti dregið úr áhrifum af kolefnisbindingu skóga á vissum svæðum en ekki öðrum, svarar Ingibjörg að sé spurningin um hvort áhrif skógræktar á endurvarp hafi mismunandi áhrif eftir svæðum þá sé svarið já. „Rannsóknir sýna að áhrif skógræktar á endurvarp eru meiri á norðlægum slóðum en í hitabeltinu (Betts, 2000, Weber o.fl., 2024). Þetta skýrist m.a. af tvennu, annars vegar dregur skógrækt enn meira úr endurvarpi vegna snjóþekju á norðlægum slóðum, hins vegar er minni losun á rokgjörnum efnum og örsmáum kvoðuögnum (e. aerosols) frá gróðrinum þar vegna lægra hitastigs. Í hitabeltinu dreifa þessi rokgjörnu efni og kvoðuagnir inngeislun og vega þar með að hluta upp minnkandi endurvarp yfirborðs skógarins,“ segir hún. Gæti mest norðanlands og austan „Þegar sól skín á yfirborð jarðar gerist tvennt: Hluti geislunarinnar endurkastast út í geiminn en jörðin gleypir hluta sólarorkunnar og hún breytist í varma,“ segja þau Þóra Ellen og Ólafur og halda áfram: „Þessi varmi dreifist á endanum um lofthjúpinn og veldur loftslagshlýnun. Það fer eftir því hversu dökkt yfirborðið er hvað það dregur mikinn hluta sólargeisla í sig og hversu stórum hluta er endurvarpað. Þannig er endurskinshlutfall góðs spegils 1,0 (100%) en alsvarts yfirborðs 0,0 (0%). Enska orðið albedo vísar til þess hlutfalls sólargeislunar sem er endurkastað frá jörðu og hefur verið þýtt sem endurskinshæfni. Hátt gildi segir að miklu sé endurkastað en lágt að mikið sé tekið upp. Endurskinshlutfall barrskóga er oft um 0,1 en graslendis oft um 0,3. Þannig veldur breyting á graslendi í barrskóga 20% aukningu á ísogi sólargeisla og þar með varmaaukningu í lofthjúpnum. Með því að meta mynstur sólargeislunar og endurskins er hægt að áætla þá aukningu eða minnkun á varma sem nær til lofthjúpsins,“ segja þau. Barrskógar séu dökkir yfirlitum, mun dekkri en laufskógar, og að auki haldi barrtrén nálum sínum yfir veturinn meðan lauftrén verði lauflaus. „Snjór hefur hátt endurskins- hlutfall (gjarnan um 0,8) og þar sem snjór stendur fram eftir vori getur orðið umtalsverð aukning á ísogi sólarljóss við að planta barrskógi á svæðið. Ísogað sólarljós breytist að mestu leyti í varmaorku sem fer til hlýnunar lofthjúpsins.“ Þóra Ellen og Ólafur segja þessi áhrif líkleg til að vera mest norðanlands og austan en minni á Suðurlandi, og geti vegið upp kælingarávinning af kolefnisbindingu. Þau benda á umfjöllun Ólafs á vefnum náttúruvinir.is um tvær greinar sem birtust í Nature og Science, sem fjalli báðar um hvernig endurskinsáhrif kunni að vega upp að hluta eða gera að engu jákvæð loftslagsáhrif aukinnar kolefnisbindingar með skógrækt. Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Sumaropnun: Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga LOKAÐ Hjarta heimilisins Við hönnum innréttingar að þínum þörfum 2000 — 2022 Ingibjörg Svala Jónsdóttir. Ólafur S. Andrésson. Þóra Ellen Þórhallsdóttir. Pétur Halldórsson. „Í grein Hasler o.fl. er birt kort sem sýnir nettóloftslagsáhrif nýskógræktar. Þar er gerð grein fyrir bæði breytingum á endurskini og kolefnisbindingu til að áætla hámark loftslagsmögnunar í koltvísýringsígildum (CO2e) á hektara. Rauð og appelsínugul skygging gefur til kynna svæði þar sem endurheimt trjáþekju leiðir til nettó-hlýnunar; blár gefur til kynna svæði þar sem ræktun nýrra skóga leiðir til nettókælingar en daufgulur litur táknar lítil áhrif. Láglendi Íslands lendir, skv. þessari greiningu, í fremur hlutlausum flokki; í kringum núll (sýnt sem daufgult) þegar kemur að þessum nettó-loftslagsáhrifum. Að baki tölum um mögulega kolefnisbindingu skógar á hverjum stað á hnettinum liggur líkan Walker o.fl. (2022).“ (AS, BB, BDS, AS, PH). Framhald á næstu opnu. „Þrjátíu og fjögurra ára laufskógur (alaskaaspar) í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Engin trjátegund á Íslandi bindur kolefni hraðar en öspin. Náið hefur verið fylgst með þessum tilraunareit frá því hann var gróðursettur árið 1990. Þarna hefur mælst örasta kolefnisbinding í nokkrum íslenskum skógi.“ (AS, BB, BDS, AS, PH). Mynd / Aðalsteinn Sigurgeirsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.