Bændablaðið - 16.05.2024, Page 30

Bændablaðið - 16.05.2024, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024Viðtal Loðdýrarækt: Úrgangur endurunninn sem fóður Á Selfossi er starfrækt Fóðurstöð Suðurlands sem framleiðir fóður fyrir fimm af sex minkabúum landsins. Hráefnið er að stærstum hluta fisk- og sláturúrgangur sem annars færi til spillis. Bjarni Stefánsson, starfandi stjórnarformaður, segir að skilgreina mætti Fóðurstöð Suðurlands sem endurvinnslufyrirtæki og hafi hugsanlega verið eitt af þeim fyrstu á því sviði. „Við erum að minnka kolefnis- spor landsins með því að vinna lífrænan úrgang,“ segir hann og vísar þar til skýrslu sem var gerð á vegum verkfræðistofunnar Eflu árið 2019. Þegar mest var á fyrri hluta síðasta áratugar voru framleidd 3.300 tonn af fóðri á ári. Nú sé framleiðslan undir helmingi af því sem hún gæti verið. Lykillinn að góðu minkafóðri sé ferskt hráefni og hreinlæti. „Þetta er raunverulega eins og að elda mat,“ segir Bjarni og líkir afurðinni við kjötfars hvað varðar útlit og áferð. Þar sem hráefnið komi yfirleitt allt úr matvælavinnslu væri tæknilega hægt að nýta minkafóðrið til manneldis þó Bjarni segist ekki hafa lagt það sér til munns. Lítil sem engin lykt finnst af minkafóðrinu í vinnslusalnum. Hráefnið innlent Hann segir að yfir 90% af hrá efnunum sé úrgangur úr matvæla- vinnslu, 60–70% komi úr slátur- húsunum og 20–30% komi úr fisk- vinnslu. Nálægt 10% innihaldsins sé bygg sem sé til að binda fóðrið saman og sé leitast við að nota innlent. Þá sé fóðrið vítamín- og steinefnabætt og blandað með sýru til þess að auka geymsluþol. Hráefnið geti því verið nær alfarið íslenskt. Um þessar mundir sé sláturúrgangurinn aðallega frá kjúklingarækt, en fóðurstöðin hafi einnig nýtt innmat úr öðru búfé. „Þetta hefur rokkað eftir því hvað er hentugast að vinna og hvernig framboðið er af hverju efni,“ segir Bjarni. Vegna samdráttar í framleiðslunni séu ekki notuð eins mörg hráefni og áður sem leiði af sér einfaldari framleiðslu. Frá fiskvinnslunni komi aðal- lega hryggir og hausar sem verða eftir við flökun. Sævar Jóelsson verkstjóri segir nýjustu viðbótina í hráefnaflóruna vera seiði sem misfarist hjá fiskeldinu sem hafi verið notuð á tímabili og gáfu góða raun. Fóðurstöðin fær greitt úrvinnslugjald fyrir þann úrgang sem hún tekur við og telur Sævar þá aðila sem nýta þennan farveg vera þakkláta fyrir að eiga fóðurstöðina að. Bjarni bætir við að þetta sé afar hagkvæm leið til endurvinnslu þar sem ekki þurfi að hita hráefnið eða gera miklar breytingar á því. Breytilegt milli árstíða Orkuþörf minkanna er mismunandi eftir árstíðum. Yfir háveturinn er framleitt orkuminnsta fóðrið, en Bjarni segir að þá skipti ferskleikinn höfuðmáli til þess að pörun og meðganga dýranna heppnist sem best. Minkalæðurnar gjóta á vorin og eftir því sem hvolparnir færa sig meira frá mjólk þurfi að auka orkuna í fóðrinu, sem trappast svo upp og er það sterkast síðsumars og á haustin. Yfir háveturinn er keyrt með fóður á bæina einu sinni í viku þar sem það geymist betur í kuldanum og þörfin er minni. Á vorin og fram í júní er keyrt tvisvar í viku og eftir það er keyrt þrisvar í viku fram í desember. Fóðrið er geymt í einangruðum sílóum á búunum. Sex tonn í einu Hráefnið kemur á Fóðurstöðina í körum og er sett inn á kæli. Síðan er það hakkað til að fara beint í fóðurgerð eða fryst í blokkir sem fara í geymslu. Þegar fóðrið er framleitt úr frosnum blokkum eru þær fyrst mölvaðar með sérstökum brjót áður en hráefnið fer í hakkarann. Þegar unnið er með ferskt fóður fer það beint í hakkavélina þaðan sem það fer í blandara. Eftir það fer fóðrið í síló, þaðan sem hægt er að dæla því beint á tankbíl. Sævar segist blanda sex tonnum í einu og tekur ferlið einn og hálfan tíma. Fóðurbíllinn tekur mest fjórtán tonn, en þar sem flest minkabúin eru nálægt Selfossi er hægt að keyra út á milli þess sem útbúin er næsta blanda. Þegar búið er að vinna fóðrið og koma því á búin greiða bændur nálægt fjörutíu krónum fyrir kílóið, sem Bjarni segir aðallega skýrast af miklum fastakostnaði sem hafi aukist hlutfallslega eftir að framleiðslan minnkaði. Sævar Jóelsson verkstjóri er eini starfsmaður fóðurstöðvarinnar í fullu starfi á meðan einn bílstjóri sinnir útkeyrslu í verktöku þegar þess þarf. Fyrirtækið er í sameign loðdýrabænda. /ál Sævar Jóelsson og Bjarni Stefánsson hjá Fóðurstöð Suðurlands. Þeir eru báðir minkabændur á Suðurlandi. Minkafóðrinu er hægt að líkja við kjötfars hvað varðar útlit og áferð. Fóðurstöð Suðurlands er í iðnaðarhúsi á Selfossi. Myndir / ál Bjarni Stefánsson er starfandi stjórnarformaður Fóðurstöðvar Suðurlands sem er sameign loðdýrabænda.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.