Bændablaðið - 16.05.2024, Síða 32

Bændablaðið - 16.05.2024, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Póstþjónusta landsmanna hefur verið hitamál svo lengi sem menn muna og ekki síst nú í ár. Skellt hefur verið í lás á tugum pósthúsa víða um land á undanförnum árum en í yfirlýsingu Póstsins nýverið kom fram að tekin hefði verið ákvörðun um að loka alls tíu pósthúsum til viðbótar nú í júní. Um ræðir lokun pósthúsa á Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Breiðdals- vík og í Neskaupstað innan Austur- lands, á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Hvammstanga á Norðurlandi og svo í Grundarfirði og Búðardal á Vesturlandi. Við eftirgrennslan kom í ljós að íbúar þessara byggðarlaga virðast sammælast um að eftirsjá sé að persónulegri þjónustu og þó nokkuð er um að þeir vilji flytja viðskipti sín yfir til annarra flutningafyrirtækja. Þar bar helst á góma nöfn á borð við Vörumiðlun og Dropp sem að sögn reynast ódýrari kostur en Pósturinn. Um áramótin tók Íslandspóstur ákvörðun um að hætta dreifingu á fjölpósti á borð við auglýsinga- bæklinga og fjölmiðla í dreifbýli. Er ein uppgefinna ástæðna fyrirtækisins, að í takt við umhverfisstefnu þess leiti það stöðugt leiða til að draga úr sóun, sem m.a. er hægt að sporna við með þessum hætti. Vegna þessa var t.a.m. Bændablaðinu gert að nafn- merkja og plasta tölublöð sín sem rata eiga til bænda. Niðurgreiðslu ríkissjóðs hætt Forsvarsmenn Íslandspósts vilja meina að ástæða minnkandi þjónustu heilt yfir sé að dregið hafi verulega úr eftirspurn afgreiðsluþjónustu innan pósthúsanna en á vefsíðu Póstsins kemur fram að frá árinu 2010 hafi fjöldi bréfasendinga dregist saman um 74% á sama tíma og pakkasendingar hafi margfaldast. Samkvæmt vefsíðu póstsins standa þá eftir alls 27 pósthús á landsvísu. Póstboxin á móti eru nú nær hundrað talsins og áætlað er að fjöldinn verði 120 í árslok. Til þess að nýta sér sendingarþjónustu með póstboxum þarf að virkja sjálfvirkar greiðslur á Mínum síðum eða í svokölluðu Póst-appi. Fækkun pósthúsa og stöðugilda í vinnu er allt liður í hagræðingaraðgerðum Íslandspósts og sem þróun fyrirtækisins úr bréfafyrirtæki í pakkafyrirtæki. Til viðbótar hefur verðskrá breyst allnokkuð síðastliðin ár, m.a. í kjölfar lagabreytinga um póstþjónustu árið 2021. Þá var ekki lengur kveðið á um niðurgreiðslu ríkissjóðs af hluta þess kostnaðar sem til féll við póstþjónustu dreifðra byggða. Í kjölfarið var Íslandspósti einungis heimilt að viðhafa sömu verðskrá um allt land á bréfum undir 51 grammi. Breytingarnar óvinsælar Ljóst er að mikil hækkun kostnaðar vegna póstsendinga þeirra sem búa utan þéttbýlis hafi verulega neikvæð áhrif á íbúana, sem og notkun snjall- tækja og tölvu sem ekki allir hafa tækifæri til að tileinka sér. Þetta eru þó þeir þegnar landsins sem eiga hvað síst greiðan aðgang að póst- þjónustu, sem og annarri. Guðjón Bjarnason, bóndi í Hænuvík í sunnanverðum Patreks- firði, segist horfa á heiminn þróast yfir í algera yfirtöku ýmiss konar snjalltækja. „Með því að leggja niður póst- húsin nú í sumar, lítur út fyrir að heilsársvegur verði frá okkar svæði að Ísafirði, enda væntanlega ekki langt þar til pósthúsið á Patreksfirði verði lagt niður eins og annars staðar. Það verður einhver bíll á ferðinni hérna sem sinnir þessu líkt og landpósturinn forðum gerði, sem mun þjónusta okkur vitleysingana sem kjósa að búa afskekkt. Auðvitað bjuggu fleiri í dreifbýli þá en nú, en í dag skiptir byggð eins og á Vestfjörðum þjóðfélagið engu máli. Landbúnaður er að verða búinn á Vestfjörðum, þau eru að tínast út, búin,“ segir Guðjón sem sér fyrir sér að innan nokkurra ára verði þjónusta póstbílsins runnin sitt skeið. Honum þykir miður að fólki, búsettu utan byggðar, sé mismunað og fái ekki þá þjónustu sem áður hefur verið. „Við verðum bara að kyngja þessu og skapa okkur eigin tilveru með þeim verkfærum sem við höfum – án þess að vonast til eða ætlast til þess að samfélagið sé að þjóna okkur,“ segir hann, sem ásamt fjölskyldu sinni nýtir landgæði jarðar sinnar til sjálfsþurftarbúskapar. Guðjón bendir á að því miður séu Vestfirðirnir ekki eina dæmið, t.a.m. sjái kunningjar hans í Borgarfirði eystra þessa sömu þróun hverfandi þjónustu. Sveitamenningin farin, kirkjur, skólar og samfélagið sem heild ekki til. Fólk á landsvísu er uggandi Einhverjir eiga bágt með að aðlaga sig nýjustu tækni, öðrum þykir fækkun starfa í sínu nærumhverfi miður og enn aðrir telja póst- þjónustuna sem slíka sér runna úr greipum og upplifa sig lítið geta spornað við þeirri framvindu. Sem dæmi má nefna ályktun frá Verkalýðsfélagi Suðurlands árið 2022 þar sem stjórn s té t tarfélagsins mótmælti fyrir- hugaðri lokun póst- afgreiðslustöðva á Hellu og Hvols- velli. Stóð í ályktun- inni að fyrir lægi að með þessari ákvörðun hyrfu störf af svæðinu og við það væri ekki unað. Fór þó svo að lokunin gekk eftir og þjónustar pósthús Selfoss nú byggðarlög Suðurlands að mestu auk póst- hússins í Vík. Þótt gagnrýnin augu landsmanna beinist ef til vill helst að byggð og strjálbýli utan höfuðborgarsvæðisins eru íbúar borgarinnar ekki undan- skildir. Til að mynda fengu íbúar Vesturbæjar og nágrennis úthlutuðu þjónustupósthúsi í Síðumúla, nú einu tveggja starfandi pósthúsa á Reykjavíkursvæðinu. Þarna er töluverður spotti úr Vesturbænum fyrir þá sem ekki eiga auðvelt með að komast frá einum stað til annars, né heldur að tileinka sér tilheyrandi tækni. Taka skal fram að greinargóðar upplýsingar er að finna á vefsíðum Íslandspósts hvað varðar bréf og bögglasendingar auk almennrar þjónustu þó ekki séu allir sáttir við þjónustuleiðirnar. Óhamingjusamir Fossvogsbúar Í menningar- og samfélagslegu tilliti þykir oft mörgum fækkun pósthúsa sorgleg og ópersónuleg framþróun. Urðu margir slegnir þegar Pósthúsið í Pósthússtræti, sem staðið hefur með reisn síðan árið1915, var gert að mathöll. Það má þó segja að enn ríki þar menning - en hins vegar er sjarmi mannlegra samskipta pósthúsa á undanhaldi og enn fremur þegar kemur að því að standa veðurbarinn í röð við póstbox. Í sögu póstþjónustunnar hérlendis hefur ánægjustuðull landsmanna eðlilega sveiflast upp og niður enda póstþjónusta sem slík ein grunnstoða samfélagsins. Árið 1902 má finna grein í tímaritinu Arnfirðingi sem hefst á þessum orðum: „Það eru eingar öfgar, að nú er svo komið póstgaungum um landið, að bæði póststjórn og landslýður finna það jafn átakanlega, að á þeim þarf gagngerðrar breytingar, og hafa fundið þetta leingi.“ Um það bil hálfri öld síðar, árið 1949, í Morgunblaðinu má finna kvörtun úr Fossvogi þar sem segir: „Við sem erum svo óhamingju- söm að búa í Fossvogi verðum að sætta okkur við að fara á mis við flest hlunnindi þeirra sem búa innan Hringbrautar. Enginn sími, enginn póstburður, enginn blaðaútburður, engin sorphreinsun, strætisvagnar á klukkutíma fresti og hálfrar stundar ferð í næstu verslun!“ Sögur fara af bréfberum sem stöldruðu gjarnan við og fengu kaffisopa í völdum húsum, en virðist sá siður hafa tíðkast alllengi. Í bókinni Fortíð Reykjavíkur frá árinu 1950 segir frá nýju embætti póstmeistara skipuðu árið 1872. Þar er Árni „gáta“ bréfberi bæjarins og honum lýst þannig: „Hafði hann ekki hraðann á, þegar hann var að bera út bréfin því að oft beið hann eftir kaffi og öðrum hressingum ef honum var boðið.“ Starfsánægja og samfélagsleg ábyrgð Samkvæmt skoðana- könnunum þykir annars starfsánægja hjá Póstinum með hærra móti og samskipti alla jafna góð, auk þess sem bréfberar dagsins í dag fá jákvæðari svörun samfélagsins en oft áður. Að auki var Pósturinn á Akureyri eitt fimmtán fyrirtækja sem hlutu tilnefningu frá VIRK nú í ár, en um ræðir viðurkenningu til fyrirtækja sem sinnt hafa samstarfi við VIRK sérlega vel og sýnt samfélagslega ábyrgð. Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Póstþjónusta: Samdráttur samfélags Í menningar- og samfélagslegu tilliti þykir oft mörgum fækkun pósthúsa sorgleg og ópersónu- leg framþróun ...“ Guðjón Bjarnason. Íbúar í dreifðari byggðum landsins upplifa skerta þjónustu samfélagsins sem mismunun á lífsgæðum. Hér glyttir í Hænuvík, ysta bæinn í sunnanverðum Patreksfirði. Myndir / ál Úrklippa úr Morgunblaðinu 23. apríl 1949 þar sem óánægður lesandi kvartar yfir takmarkaðri þjónustu. Mynd / Tímarit.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.