Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024
Hvanneyrarbúið ehf. tók við
rekstri kúabúsins á Hvanneyri
árið 2015. Tilgangur félagsins
er að reka á hagkvæman hátt
kúabú á Hvanneyri í þágu
kennslu og rannsóknastarfs
Landbúnaðarháskóla Íslands.
F o r m a ð u r
þess er Ragn-
heiður Inga
Þórarinsdóttir,
rektor Land-
búnaðarháskóla
Íslands. Aðrir
s t j ó r n a r m e n n
eru Baldur Helgi
Benjamínsson,
b ú f j á r e r f ð a -
fræðingur og bóndi á Ytri-Tjörnum í
Eyjafirði og Pétur Diðriksson, bóndi
á Helgavatni í Þverárhlíð. Bústjóri
er Egill Gunnarsson og fjósameistari
er Björn Ingi Ólafsson.
Aukin innvigtun
Árskýr á búinu 2023 voru 76,9
(73,5) sem að meðaltali skiluðu
7.707 (7.389) kg mjólkur og af
þeim komu 7.095 ltr til innleggs,
mjólkurnýtingin var því 95%.
Innlögð mjólk árið 2023 var alls
545.577 (520.152) lítrar með 4,12
fitu og 3,35 próteini, mfm líftölu
var 17 (14) og mfm frumutölu
158 (88). Tölur frá fyrra ári eru í
sviga. Hlutfall fitu hækkaði aðeins
en próteinhlutfall lækkaði. Líftala
var nær óbreytt en frumutala
hækkaði talsvert. Heilt yfir er
staða mjólkurgæða viðunandi en
hækkun á frumutölu er áhyggjuefni
sem þarf að taka á. Búið lagði inn
úrvalsmjólk í 7 mánuði á árinu en
forsvarsmenn búsins vilja setja
markið mun hærra í þeim efnum.
Heildarinnlegg búsins hækkaði
dálítið frá fyrra ári, má einkum
rekja það til betri gróffóðurgæða
auk annarra þátta. Meðalnytin
er heldur varla viðunandi ef búið
vill og ætlar að vera í fararbroddi
á landsvísu. Horfur á árinu 2024
benda til þess að það takist að
skila svipuðum afurðum, en margt
er þó óráðið enn t.d. gæði fóðurs.
Nyt hefur þó verið vel viðunandi
og hefur ekki raskast þótt núna séu
stöðugar breytingar og tilfæringar
vegna rannsóknarstarfsemi.
Sæmilegur rekstur
Rekstur félagsins gekk sæmilega
á árinu 2023 þrátt fyrir erfiðar
ytri aðstæður en verð á áburði og
kjarnfóðri hélst hátt, nú eru horfur
um heldur lægra verð á þessum
liðum. Verðbólga hefur verið nálægt
7–10% allt árið, vaxtakostnaður á
lánsfjármagni hefur hækkað verulega
í takti við stýrivaxtahækkanir og
kjarasamningar hafa hækkað og
munu hækka verð á annarri vöru
og þjónustu. Reynt var að minnka
áburðarkaup án þess að það kæmi
niður á uppskeru og fóðurgæðum,
var einkum tvennt sem var
forsenda þess. Annars vegar kaup á
niðurlagningarbúnaði á haugsugu en
niðurlagning tryggir að áburðarefni
í mykjunni nýtast mun betur til
grasvaxtar en með hefðbundinni
yfirborðsbreiðslu.
Hins vegar hefur frá árinu
2016 verið borinn umtalsverður
skeljasandur í flög sem hækkar
sýrustig og plöntunæringarefni
nýtast þar með betur (einkum
fosfór). Búið þreytti frumraun sína
í byggrækt í markverðu magni og
mun það vonandi ganga betur næst.
Heildartekjur félagsins á árinu voru
117,9 m. kr. (110,9), en gjöld fyrir
fjármagnsliði voru 115,2 m. kr.
(109,9 m. kr). Hagnaður félagsins á
árinu eftir fjármagnsliði var 1,9 m.
kr (0,4 m. kr.). Stjórn leggur til að
hagnaður félagsins leggist við eigið
fé þess.
Áætlun yfirstandandi árs gerir
ráð fyrir tekjuafgangi þannig að
halda megi áfram að byggja upp
eigið fé félagsins, búa í haginn
fyrir áframhaldandi endurnýjun á
tækjum, búnaði og ræktun, ásamt
því að efla fjárhagslegan styrk
Hvanneyrarbúsins. Eigið fé félagsins
jókst um 3,1 milljón kr. á árinu og
nemur það nú 65,5 m. kr.
Kornuppskera haustið 2023
Miklar rigningar og bleyta og
kuldi voru í maí og júní og tafðist
jarðvinnsla fram eftir sumri þó bygg
færi niður 3. maí 2023. Veturinn á
undan hafði verið mjög kaldur og
heyskapur hófst ekki fyrr en síðustu
dagana í júní en rigningar töfðu
líka. Eftir að fyrsta slætti lauk tók
við mikill þurrkur það sem eftir lifði
sumars og varð mun minni uppskera
í öðrum slætti og grænfóðri og
algjör uppskerubrestur í nýræktum
sem var líka vegna þess hve seint
var sáð í þær.
Skeljungur ehf. (Sprettur áburður)
kom til móts við stór- gallaðan
áburð sem búið keypti af félaginu
og bætti það tjón að nokkru leyti.
Þrátt fyrir þetta var reksturinn í
meginþáttum í samræmi við þær
áætlanir sem stjórnendur félagsins
lögðu upp með. Munaði um að
þrisvar á rekstrarárinu hækkaði
verðlagsnefnd búvara lágmarksverð
á mjólk og stjórnvöld skipuðu
sérstakan ráðuneytisstjórahóp til að
greina afkomubrest í landbúnaði. Í
kjölfarið var veitt 2,1 milljarði kr.
aukalega í stuðningsgreiðslur til
landbúnaðar, þeim fjármunum var
einkum beint til skuldsettari búa og
naut Hvanneyrarbúið ekki mikils af
því.
Fjárfestingar og framfaramál
• LbhÍ lét reisa girðingu á Mið-
Fossum til að varna því að sauðfé
frá Hesti hefði óheftan aðgang að
ræktarlandi þar.
• Ljós voru endurnýjuð í fjósinu
og sá Lbhí um það. Þau eru
orkusparandi LED ljós sem bæði
er hægt að stilla ljósstyrk (Lux)
og ljóshitastig (Kelvin) í. Þau eru
keyrð með svokölluðu dalí-kerfi
sem þýðir að í forriti í tölvu er
hægt að hópa saman ákveðnum
lömpum og stilla sjálfstætt á
þeim ljósstyrk og ljóshitastig eftir
klukku. Ljósgjafinn ehf. á Akureyri
sá um að smíða kerfið.
• LbhÍ keypti brunavarnarkerfi
í fjósið frá Nortek ehf., eftir er
að setja það upp. Það byggist á
notkun svokallaðra línuskynjara
sem skynja reyk.
• Loftpressan hrundi og þurfti að
kaupa nýja í skyndi. Gamla var
í ábyrgð og var gert við hana
á kostnað framleiðanda. Hún
verður seld.
• Ýmis búnaður vegna rannsókna,
þar á meðal notaður heilfóðurvagn,
flokkunarhlið og íhlutir fyrir þau.
• Steypt var moðgryfja við fjósið, svo
afgangshey og útmokstur er ekki
lengur geymt innandyra.
• Ekki var slegið slöku við í ræktun
og fjárfest dyggilega þar eins og
síðustu ár en um 30 hektarar voru
til endurræktunar. Reyndur var
nýr fræsibúnaður við hreinsun
framræsluskurða sem reyndist
vel og mun spara búinu talsverðar
upphæðir í skurðahreinsun ef
vel gengur.
Helstu rannsóknarverkefni
Hvanneyrarbúið tók virkan þátt
í rannsóknastarfi Landbúnaðar-
háskólans, þá aðallega við
jarðræktarrannsóknir en meira hefur
líka verið um verkefni í fjósinu.
Áframhald var á beitarrannsóknum
mjólkurkúa og er fyrirhugað að halda
því áfram. Ekki má heldur gleyma
metanbásnum Mumma (C-Lock
Greenfeed) sem mældi iðragerjun
hjá mjólkurkúnum og núna er verið
að skoða sérstaklega metanhamlandi
fóðurefni.
Útlit er fyrir að Mummi og fjósið
verði uppbókuð í slíkar rannsóknir
næstu misseri og ár. Bæði hafa
yfirvöld komið með fjármagn í
frekari iðragerjunarrannsóknir og
Landbúnaðarháskólinn sem hluti
af þróunarverkefnum í þá veru.
Skólinn og búið eiga í samstarfi við
Veðurstofu Íslands og settu upp nýja
fullkomna búveðurstöð á Hvanneyri
á svokölluðum Ásgarðshól og
jarðvegshitamæli í spildu sem nefnist
Biafra. Stöðin komst í fullan rekstur
á síðasta ári og er nýtt í veðurspár og
starfsemi Landbúnaðarháskólans.
Endurnýjun á aðstöðu
Stjórn leggur áfram áherslu á
uppbyggingu á aðstöðu og búnaði
Hvanneyrarbúsins til að viðhalda
og bæta aðstöðu til rannsókna
og tilrauna. Áfram verður sótt
um styrki til að fjármagna
viðunandi rannsóknaraðstöðu fyrir
einstaklingsfóðrunar-, verkunar-,
umhverfis-, aðstöðu- og velferðar-
tilraunir tengdri nautgriparækt.
Í þeim efnum er rétt að minnast
þess að í sumar verða liðin 20 ár frá
því að Hvanneyrarfjósið var tekið
í notkun. Landbúnaðarháskólinn
hefur verið að efla aðstöðu sína í
jarðrækt og rannsóknir á því sviði
hafa farið vaxandi. Áfram verður
hugað að aukinni sjálfbærni og
samstarfsverkefnum við skólann á því
sviði. Mikil gleðitíðindi bárust nýlega
þegar tekin voru af öll vafamál um
uppbyggingu jarðræktarmiðstöðvar á
Hvanneyri en það er stórt skref fyrir
jarðræktar- rannsóknir, kynbætur
nytjajurta og íslenskan landbúnað
í heild sinni. Það ber að nýta
þann meðbyr til að beina sjónum
að mikilvægi þess að fjárfesta í
rannsóknum í mjólkurframleiðslu og
nautgriparækt.
Þakkir til starfsmanna
Stjórn þakkar starfsmönnum
búsins fyrir gott samstarf á
árinu, auk Egils og Björns voru
Birna Lind Hafdísardóttir og
Ingólfur Árni Jakobsson ráðin í
sumarstörf og aðrar afleysingar.
Pétur Snær Ómarsson var svo aðal
dráttarvélaekill búsins um sumarið
en með breyttu sniði í verktöku.
Höfundur er stjórnarmaður í
Hvanneyrarbúinu ehf.
Hvanneyrarbúið rær á ný mið
Baldur Helgi
Benjamínsson.
Fræst upp úr framræsluskurði.
Búið prófar JCB skotbómulyftara
sem gengur á rafmagni.
Metanbásinn Mummi.
Kornuppskera haustið 2023. Myndir / Aðsendar
honda@byko.is | 821-4034
HONDA
GARÐVERKFÆRI
FÁST Í BYKO
FAGVERSLUN
SELHELLU 1
Sölutengiliður
Gunnar Ólason