Bændablaðið - 16.05.2024, Side 43

Bændablaðið - 16.05.2024, Side 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Þetta segir Edda Björnsdóttir, skógarbóndi og fyrsti framkvæmda- stjóri Landssamtaka skógareigenda. Hún býr á Miðhúsum sem er í útjaðri Egilsstaða. Á Miðhúsum eru elstu trén yfir 30 ára gömul. Hún tekur vel eftir aukinni umferð göngufólks í skógi sínum sem og skógum almennt á Héraði. Fólk er fyrst og fremst að stunda útivist en einnig er það að nýta afurðir skógarins svo sem ber og sveppi. Áhrifa bændaskógræktar gætir víða um sveitir austanlands. Áhrifin eru sennilega mun meiri en samtímamenn þorðu að vona þegar verkefni Héraðsskóga var sett af stað á hinni öldinni. Ungir skógar vaxa víðar en á Héraði og eru nú stór uppvaxandi skógarsvæði í grennd við nær öll þéttbýli landshlutans. Skógar bænda eru eftirsóknarverðir til útivistar, timburnytja, matvælaframleiðslu og til að glæða samfélög lífi inn í komandi framtíð. Ekki er gott að segja hvað hefði orðið um bændur á Héraði ef ríkið hefði ekki lagt hönd á bagga. Ríkisstudd skógrækt fyrir bændur í búrekstri hefur skilað sér enn búsældarlegri sveit þar sem nú er ekki einungis suðrænna loftslag heldur eru skógarnir líka farnir að veita störf og skapa tekjur fyrir bændur og samfélagið allt. Skógar gera land búsældarlegt. Á faðmi trjáa leynast ýmis tækifæri og landið er glætt lífi. Fólk sækir í skógana ekkert síður en tvívængja farfuglar, ferfættir grasbítar eða sexfættar fjórvængjur. Í þessari grein hefur verið farið yfir margs konar ágæti skóga. Hvernig skógrækt fyrri tíðar skópu atvinnu í sveitinni. Hvernig skógar eru farnir að gefa af sér til samfélagsins. Og síðast enn ekki síst, hvernig byggð og búseta í víðum skilningi getur þróast samhliða skógrækt um land allt. Skógrækt er miklu meira en bara búgrein. Höfundur er sérfræðingur í umhverfismálum hjá BÍ. Vinnslustöð viðarperlanna hjá Tandrabretti er tilkomumikið mannvirki. Kyndiaðstaðan í Vallanesi er klædd viði sem fengin er úr skóginum þar. Fyrir framan húsið stendur danskur TP kurlari. Hjörtur leggur við hlustir þegar Helgi Gíslason segir frá sögu Héraðsskóga. Helluhraun 4, Hafnarfirði sími 565 2727 & 892 7502 www.rag.is TILBOÐSVERÐ Kr. 4.100.000 Við auglýsum svo sannarlega ekki “verð frá”. VIÐ AUGLÝSUM ALDREI „VERÐ FRÁ“ SERES 3 Luxury Rafmagnsbíllinn býður upp á ríkulegan staðalbúnað og frágang í hæsta gæðaflokki! Vilt þú slást í hópinn? Jurt ehf. auglýsir stöðu ræktunarstjóra í skógarplöntuframleiðslu. Jurt er leiðandi fyrirtæki í nýsköpun í ræktun. Um er að ræða fullt stöðugildi yfirmanns ræktunar á skógarplöntum. Starfið felst í yfirumsjón með ræktun á skógarplöntum. Ræktunarstjóri mun einnig taka þátt í að þróa verkferla sem stuðla að áframhaldandi uppbyggingu skógarplöntuframleiðslu fyrirtækisins. Jurt er ört vaxandi fyrirtæki og felast mikil tækifæri í starfinu. Sækja um: Senda kynningarbréf og ferilskrá á info@jurt.is Jurt ehf., Valgerðarstöðum 4, 701 Egilsstöðum, info@jurt.is Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464 www.wendel.is - wendel@wendel.is STAURAHAMAR FRÁ HYCON ____________________ FRÁBÆRT VERKFÆRI TIL AÐ REKA NIÐUR GRIÐINGASTAURA

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.