Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 53

Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 53
53SkoðunBændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Árið 2011 var Viðey eða Minna- núpshólmi í Þjórsá friðuð. Eyjan er rúmir þrír hektarar að stærð, afar gróin og falleg á að líta. Í eyjunni hafa fundist yfir 70 gróðurtegundir, þar af tvær sjaldgæfar á landsvísu. Þetta er ekki það eina sem gerir Viðey einstaka, heldur veitir straumþung Þjórsá eyjunni mikilvæga umgjörð og hefur séð til þess að flóra eyjunnar er lítt snortin af áhrifum manns og dýra. Slíkt er mikilvæg auðlind enda markmið með friðlýsingu hennar að vernda náttúrulegan, lítt snortinn og gróskumikinn birkiskóg eyjarinnar með öllu því lífríki sem honum fylgir. Lífbreytileiki eyjunnar hefur einstakt vísinda- og fræðslugildi sem okkur ber að vernda og líta á sem auðlind í þeirri óráðsíu og rányrkju sem frekari virkjunarhugmyndir í Þjórsá eru. Samkvæmt verndarmarkmiðum náttúruverndarlaga á að vernda vatnsfarvegi og landslag sem er sérstætt eða fágætt vegna fagurfræðilegs og/eða menningarlegs gildis. Nú þegar eru sjö virkjanir í Þjórsár- og Tungnaársvæðinu (Búrfellsvirkjun 1966, Sigalda 1978, Hrauneyjarfossvirkjun 1981, Sultartangastöð 1999, Vatnsfellsstöð 2001, Búðarhálsstöð 2014, Búrfellsstöð II 2018) og þykir mörgum það feikinóg. Enda voru hugmyndir um Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun færðar yfir í biðflokk og illskiljanlegt hvers vegna Hvammsvirkjun fékk ekki að fylgja með. Ef af virkjun yrði færi 55 ferkílómetra svæði rétt fyrir ofan Viðey undir virkjunarmannvirki sem yrði vel sýnilegt og um leið óafturkræft inngrip í náttúrulegt landslag svæðisins. Þjórsá með sínum vatnsflaumi hefur hlíft eyjunni við ágangi og stendur Viðey nú sem mikilvægur minnisvarði um gróðurfar fyrr á öldum. Með virkjun mun eyjan verða opin fyrir ágangi dýra og birkiskógurinn og lífríkið allt í hættu. Líkt og segir í 55. grein laga um náttúruvernd (nr 60/2013) er óheimilt að nýta svæði sem friðlýst eru samkvæmt þessari grein til orkuframleiðslu og allar framkvæmdir sem raskað geta viðkomandi vatnakerfi séu bannaðar. Þess utan yrði þessi virkjunarframkvæmd dýr og afllítill kostur þegar upp er staðið, svo hugmyndin er í raun afleit og óskiljanlegt hvers vegna fleiri vatnsaflsvirkjanir í Þjórsá eru á dagskrá. Víst er að Hvammsvirkjun, með öllu því raski sem byggingu hennar fylgdi, myndi valda miklum umhverfisskaða og yrði í raun manngerðar náttúruhamfarir sem hefðu gríðarleg neikvæð áhrif á samfélagið. Nærsamfélagið hefur talað skýrt gegn þessum áformum og lýst yfir andstöðu sinni á ýmsan hátt enda auðséð að 4 km² lón með stíflugörðum muni hafa neikvæð áhrif á líf og störf heimafólks, atvinnuuppbyggingu og ferðaþjónustu og er í bága við þau samfélagslegu viðhorf sem eru í nærsamfélagi Þjórsár. Í þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða er áréttað að tryggt sé að þar sem talið er að finna megi virkjunarkosti verði ákvarðanataka að vera byggð á langtíma sjónarmiðum, heildstæðu hagsmunamati með tilliti til verndargildis náttúru, menningarsögulegra minja og annarra gilda er varðar þjóðarhag, vernd og sjálfbæra þróun. Hvammsvirkjun er afar umdeild og mörg sem vilja að náttúran fái að njóta vafans og hætt verði við óafturkræf og eyðileggjandi náttúruspjöll sem framkvæmd hennar myndi sannarlega valda enda margt sem hefur breyst hvað varðar náttúruvernd, atvinnulíf og samfélagið í heild síðan fyrstu hugmyndir um Hvammsvirkjun litu dagsins ljós. Þjórsá, sem er lengst allra íslenskra áa, rennur að miklu leyti á Þjórsárhrauni hinu mikla sem er stærsta flæðihraun sem runnið hefur í nútíma á jörðinni og er sannarlega einstakt. Telur Landvernd Þjórsá hafa sérstöðu á heimsmælikvarða og þá sérstaklega neðsta hluta hennar, hið fyrirhugaða virkjanasvæði, sem að mestu er ósnortið í dag. Viðey eða Minnanúpshólmi er einstök náttúruperla sem og allt það svæði sem færi undir Hagalón. Við horfum upp á þær hamfarir sem eiga sér stað á Suðurnesjum af náttúrunnar völdum. Getum við verið sammála um að manngerðar hamfarir eru í raun verri því þær eiga sér stað með upplýsingar að vopni? Höfundur er oddviti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi og stjórnarkona í hreyfingunni. Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir. Verndum Viðey NT ryksugur HDS háþrýsti/hitadælur Hreinsibúnaður og vélar PGG rafstöðvar K háþrýstidælur HD háþrystidælur rafver.is - S: 581 2333 - rafver@rafver.is Miðhrauni 6, 210 Garðabæ, s. 544 8900 m@malmsteypa.is malmsteypa.is M yn d : B ö ð va r Le ó s Rör og fittings Viðgerðarefni Þorgrímsfótur Festihulsur Ídráttarrör Topphringir Trjáristar Drenrör Brunnkarmar/lok Sandföng/ristar Rennustokkar/ristar Spindillok Kerfislok Tengistykki Húsbrunnar Kúluristar Götubrunnar Tengibrunnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.