Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 55

Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 55
55SkoðunBændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Viltu láta gott af þér leiða í nær- samfélagi þínu eða á alþjóða- vísu? Lionsklúbbar taka þátt í margvíslegum samfélagsverk- efnum sem m.a. fela í sér þætti sem tengjast heilsufari fólks, um- hverfisverkefnum, fræðslu og fleiru. Sértæk verk- efni eru mis- munandi eftir klúbbum og eru sniðin að þörfum hvers samfélags. Eitt af stóru verkefnum klúbb- anna tengist sjónvernd og þar ber helst að nefna sölu Rauðu fjaðrarinnar. Afrakstri af sölu hennar síðustu ár hefur verið varið til að kaupa og þjálfa blindrahunda í samstarfi við Blindrafélag Íslands. Lionsklúbbar eru þekktir fyrir að bregðast hratt og festulega við því þegar neyðarástand skapast í tengslum við ýmiss konar hamfarir. Þeir veita aðstoð og bjóða stuðning sinn með ýmsum hætti, eins og til að afla vista og vinna sjálfboðastarf. Mikið alþjóðlegt starf á sér stað innan Lions International og með alþjóðlegu samstarfi leggja samtökin sitt af mörkum á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála og menntunar. Þó svo að Lionsklúbbar vinni saman á landsvísu og að marg- víslegum verkefnum á alþjóða- vettvangi, fara meginkraftar klúbbanna í nærumhverfi þeirra. Hver klúbbur hefur sín eigin verkefni og starfsemi sem tekur mið af þörfum samfélagsins. Alþjóðleg uppbygging klúbbanna gerir ráð fyrir víðtækum áhrifum með sameiginlegri skuldbindingu þar sem einkunnarorð samtakanna, „Við leggjum lið“ / (We serve), eru höfð að leiðarljósi. Lions er stór fjölskylda, virkilega stór fjölskylda. Við erum 1,4 milljónir karla og kvenna í 48.000 klúbbum í næstum hverju landi. Allir klúbbarnir eru að breyta samfélagi sínu til hins betra og saman erum við einnig að breyta heiminum. Lionsklúbbar eiga sér ríka þjónustusögu sem nær aftur til ársins 1917. Með því að ganga í Lionsklúbb verður þú hluti af lang- varandi hefð mannúðarþjónustu og getur lagt þitt af mörkum til arfleifðar sem hefur haft góð og skapandi áhrif á samfélög um allan heim. Langar þig að leggja lið? Viltu hafa góð og skapandi áhrif á nærumhverfi þitt? Hvort þú ákveður að ganga í Lionsklúbb veltur á persónulegum gildum þínum, áhugamálum og löngun til að hafa jákvæð áhrif. Ef þú fylgir meginreglum Lions og skuldbindingu þeirra, „Við leggjum lið“, gæti það verið ánægjuleg og gefandi reynsla fyrir þig að vera í Lions. Auk þess að láta gott af sér leiða, er einnig hugað að félögunum og þörfum þeirra og margvísleg námskeið eru í boði fyrir félaga í Lions. Hægt er að sækja námskeið um fundarsköp, framkomu og tjáningu, skapandi hugsun og tímastjórnun. Síðast en ekki síst má nefna leiðtogaskóla Lions. Þar eru stutt og hnitmiðuð námskeið. Auk alls þessa gleyma félagar ekki að gera sér glaðan dag saman, einir sér, eða með mökum og börnum. Margvísleg skemmtun getur verið í boði. Að jafnaði funda klúbbarnir einu sinni til tvisvar í mánuði. Frekari upplýsingar um Lions má finna á heimasíðum okkar, www.lions.is www.lionsclubs.org og https://www. facebook.com/LIONSislandi. Höfundur er félagi í Lionsklúbbi Laugardals ásamt því að vera markaðs- og kynningarstjóri Lions á Íslandi. Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Blöndu og Svartá. Veiðifélag Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í Blöndu og Svartá fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2025 til og með 2029, með almennu útboði. Útboðsgögnin fást afhent hjá formanni stjórnar Veiðifélags Blöndu og Svartár, Guðmundi Rúnari Halldórssyni, Finnstungu, 541 Blönduós. Vinsamlegast hafið samband á netfangið: formadur@blanda-svarta.is eða í síma 892-6675. Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000 kr. skilagjaldi. Tilboðum skal skilað í lokuðum umslögum eigi síðar en kl. 15:00 á bæjarskrifsofu á Blönduósi þann 15. júní 2024, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Áskilinn er allur réttur til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna þeim öllum. Veiðifélag Blöndu og Svartár, dags. 16.05.2024 Níels Bjarki Finsen. Hvernig væri að breyta aðeins til og ganga í Lionsklúbb? 5300 6 1307 6 1307 6,7 Herb. 1300 1200 2800 61 30 23 90 75 0 12 10 60 0 11 80 4,5 Snyrt. 14,6 Stofa/eldh. 5,2 Verönd 12 00 80 0 12 00 61 0 34 30 Smáhýsi 30,45 m2 Húsin eru seld án samsetningar og innréttinga. Full einangrun (þak 20 cm, veggir 12 cm). Bygginganefndateikningar. kr. 4.806.452.- án vsk kr. 5. 960.000.- m.vsk sími: 853 9300 - netfang: roggi@husvis.is REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is Aktu á gæðum Merkið sem tryggir að þú fáir íslenskt þegar þú velur íslenskt Íslenskt staðfest er upprunamerki fyrir matvörur og blóm sem framleidd eru á Íslandi. Merkið er svar við óskum neytenda, en allar kannanir segja okkur að yfirgnæfandi meirihluti þeirra vill velja íslenskt og vill skýrar upplýsingar til að hjálpa sér við valið. Kynntu þér merkið og notkun þess á stadfest.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.