Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 58

Bændablaðið - 16.05.2024, Qupperneq 58
58 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Þeir voru ekki margir sem komust í slemmu með spil austur-vestur á Kjördæmamótinu sem kannski sætir furðu þar sem sjö tíglar standa án vandkvæða. Spilarar á kjördæmamótum eru þekktir fyrir að melda mikið á spilin sín en flest pör spiluðu 3 grönd eða fimm tígla. Umsjónarmaður Briddsþáttar Bændablaðsins, sem frá og með deginum í dag er hleypt af stokkunum, var meðal spilara á mótinu sem misstu af slemmunni. Við mitt borð laumaðist suður til að opna létt á einu hjarta, ég doblaði, norður sagði pass og makker minn í austur stökk í þrjú grönd. Þar dóu sagnir. Við makker vorum sammála í umræðu eftir spilið að hann hefði kannski átt að melda 2 hjörtu en lausnin er ekki auðfundin. En eitt par meldaði mjög skilvirkt á spilin sín, skáldið Þorsteinn Bergsson úr liði Austurlands og framsóknarmaðurinn Magnús Ásgrímsson. Þorsteinn var með 4054-skiptinguna og opnaði á einum precision tígli. Makker sagði hjarta, nú laumaði suður inn tveimur spöðum – sennilega ekki til útspils. Þorsteinn meldaði tvö lauf og eftir pass norðurs vissi Magnús af níu spilum eða fleirum í láglitum hjá Steina skáldi og taldi kannski líklegra að spaði kæmi út en hjarta! Hann meldaði 5 grönd sem þýddi: Veldu slemmu, makker minn. Þorsteinn valdi og meldaði sex tígla. Rúsínan í pylsuendanum var að samningurinn var doblaður – plús einn. Kjördæmamótið er bráðskemmtilegt mót og þekkt fyrir þátttöku bændahöfðingja og skrautlegra liðsmanna úr sveitum landsins. Komu um 150 spilarar af öllu landinu saman og skemmtu sér ýmist með eigin heilafrumum eða tónlist og öðru. Sveit Norðurlands eystra bar sigur úr býtum undir stjórn Stefáns Vilhjálmssonar fyrirliða. Bikarkeppnin fram undan Eitt skemmtilegasta mót hvers árs hefst bráðlega – bikarkeppni Bridgesambands Íslands. Í bikarnum er hreinn útsláttur. Sú sveit sem skorar fleiri impa í 40 spilum heldur áfram keppni og fara lokaúrslit fram síðsumars. Margar skemmtilegar sögur hafa verið sagðar af heimaleikjum sem í góðu briddsári þegar þátttaka er góð fara fram um land allt. Aðalsteinn Jörgensen heimsmeistari hefur rifjað upp gestrisni og ýmis ævintýri sem hann hefur ratað í þegar hans lið hefur dregist gegn sveitum úti á landi. Stundum detta lítil lið í lukkupottinn þegar þau dragast gegn bestu spilurum landsins og kemur sér þá vel að bridds er fyrst og fremst félagsleg skemmtun. Horfur eru á að Bændablaðið og Bridgesamband Íslands taki upp samstarf vegna bikarkeppninnar. Spilarar sem ferðast um landið vegna bikarkeppninnar mættu hafa í huga að senda umsjónarmanni Briddsþáttar Bændablaðsins áhugaverð spil eða myndir af viðureignum eða léttum augnablikum í pósti. Umsjón: Björn Þorláksson, bjornthorlaksson@gmail.com Notaðir bílar Opnunartímar: Virka daga 9 til 17 og laugardaga 12 til 16 Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035 Jeep Compass S 4XE Phev, ‘22, sjálfskiptur, ekinn 61 þús. km. Verð: 4.990.000 kr. Toyota C-HR C-LUB, ‘21, sjálfskiptur, ekinn 71 þús. km. Verð: 3.490.000 kr. MG5 Luxury, rafmagn, ‘23, sjálfskiptur, ekinn 7 þús. km. Verð: 5.490.000 kr. 558228 384589 758774 Nissan Leaf Tekna 40KWH, rafmagn, ‘21, sjálfsk., ekinn 48 þús. km. Verð: 3.290.000 kr. SsangYong Rexton Adventure, 4x4, ‘23, sjálfsk., ekinn 45 þús. km. Verð: 9.490.000 kr. Jeep Wrangler Rubicon Unl. 4XE, hybrid, ‘22, sjálfsk., ekinn 33 þús. km. Verð: 13.990.000 kr. 414707 989124 203810 Meira úrval á notadir.benni.is Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. Úrval nýlegra bíla Skáldið, framsóknarmaðurinn og fimm granda meldingin Stefán Vilhjálmsson, fyrirliði sveitar Norðurlands eystra, með makker, Ragnheiði Haraldsdóttur. Mynd / bþ Björn Þorláksson. Norður 102 973 962 75432 Vestur QJ85 KQJ104 KJ86 Austur AK J10542 A75 AQ10 Suður 97653 AKQ86 83 9 Spilið örlagaríka á Kjördæmamótinu í Stykkishólmi. Orðsins list kemur að þessu sinni frá Snorra Aðalsteinssyni. Hann er fæddur árið 1962 og uppalinn á Vaðbrekku í Hra fnke l sda l og bjó þar fram yfir tvítugsaldur. Segir á bókarkápu að fó lk ið , umræðan og orðfærið þar hafi orðið honum innblástur til ljóðrænnar hugsunar. Snorri býr á Hornafirði þar sem hann stundaði lengst af veiðar á trillu og var hann m.a. frá árinu 2002 og um allnokkurt skeið formaður Hrollaugs, félags smábátaeigenda á Höfn. Hann starfar hjá Alcoa Fjarðaáli. „Einveran á miðunum veitti honum gott næði til að hugsa í bundnu máli,“ segir á kápu og jafnframt: „Þrátt fyrir að næðið sé minna nú, halda ljóðin áfram að verða til. Sum þessara ljóða litu ekki dagsins ljós fyrr en Ragnar Ingi, frændi hans frá Vaðbrekku, togaði þau upp úr skúffunni og hvatti til útgáfu.“ Ljóðabókin Gullvör kom út árið 2022 og er höfundur útgefandi. Bókin er 85 síður og skiptist í nokkra kafla: Ljóð og lausavísur, Engilsaxnesku og Af hagyrðingamótum. /sá Páskareið Um bljúga bænadaga, í blíðu er gott að ríða. Blanda geði glöðu, góðhesta í stóði. Taka klár til kosta, kaupa hross á hlaupum. Staldra við um stundu, stelast ögn í pelann. Þeysa mikinn þjónar þarfir, Örn og Narfi. Í vekurð jafnt sem vilja, vaxandi er Axel. Reglumenn í reiðum, röngu flagga öngvu. Helgisvip þeir hafa, heitra bæna leita. Varhug ber í vegi, varnir bresta atarna. Magga ríður meri, mátuleg í látum. Hryssa ei klára hrífur, hrelldar sinar geldings. Rjóðir sig knapar ræskja, rísa hátt og frísa. Gullvör, ljóð, bls. 56. „Röngu flagga öngvu“ Snorri Aðalsteinsson. Eftir vel heppnaðan dag helguðum Beint frá býli í fyrra mun félagið endurtaka leikinn í ár. Þá munu gestgjafar hringinn í kringum landið bjóða heim á lögbýlin sín til að kynna og selja vörur smáframleiðenda. Beint frá býli dagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í fyrra. Tilefnið var fimmtán ára afmæli félagsins, en tilgangurinn var að kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum og byggja upp tengsl milli þeirra. Dagurinn var haldinn á sex lögbýlum hringinn í kringum landið, einu í hverjum landshluta. „Á býli gestgjafanna söfnuðust saman aðrir framleiðendur af lögbýlum úr landshlutanum til að kynna og selja sínar vörur. Ýmis afþreying var í boði til viðbótar við það sem býlin sjálf höfðu upp á að bjóða og var dagurinn sérlega barnvænn. Afar góð mæting var í öllum landshlutum og almennt mikil ánægja,“ segir í tilkynningu frá samtökunum en skipuleggjendur áætla að 3–4.000 manns hafi lagt leið sína á bæina samanlagt. Því var ákveðið að gera daginn að árlegum viðburði. Beint frá býli-dagurinn verður aftur haldinn sunnudaginn 18. ágúst. Öllum þeim ríflega 200 framleiðendum sem eru í Samtökum smáframleiðenda matvæla, sem Beint frá býli er aðildarfélag að, verður boðið að taka þátt, en ríflega helmingur þeirra er á lögbýlum að því er fram kemur í tilkynningunni. „Gestgjöfunum hefur verið fjölgað úr sex í sjö, þar sem í ár verða tveir á hinu víðfeðma Suðurlandi. Á Suðurlandi eystra verður gestgjafinn Háhóll geitabú á Hornafirði. Á Suðurlandi vestra Hreppamjólk í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Á Vesturlandi verður gestgjafinn Grímsstaðaket á Grímsstöðum í Borgarbyggð. Á Vestfjörðum verður gestgjafinn Húsavík á Ströndum, en hátíðin verður sameinuð Hrútaþukli og verður því haldin á Sauðfjársetrinu Sævangi sem er rétt hjá. Á Norðurlandi vestra verður gestgjafinn Brúnastaðir í Fljótum í Skagafirði og á Norðurlandi eystra Svartárkot í Bárðardal. Á Austurlandi verður gestgjafinn Sauðagull á Egilsstaðabúinu í Fljótsdal, í samstarfi við Óbyggða- setrið sem er staðsett á býlinu.“ /ghp Smáframleiðendur endurtaka daginn Börn heilsa upp á geitur á Beint frá býli-deginum í fyrra. Mynd / Aðsend
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.