Bændablaðið - 13.06.2024, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024
Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar
fyrir sumarið og með það til hliðsjónar mun í næstu
blöðum birtast yfirlit yfir helstu skemmtanir og
húllumhæ hérlendis.
Hér til hliðar má sjá brot af því helsta sem er á döfinni
í júnímánuði, fyrir þá sem vilja gera sér dagamun, en
uppákomur næstu vikna verða á dagskrá í næstu blöðum.
Hér er um auðugan garð að gresja og næsta víst að ekki
komist allt á lista.
Hins vegar fyrir þá sem vilja koma á framfæri hvers
konar skemmtunum, opnunum eða uppákomum, má hafa
samband í gegnum netfangið sigrunpeturs@bondi.is og
við reynum okkar besta til að koma því að.
Fjölskylduhátíðin Skógardagurinn mikli 2024
verður haldinn í hinum rómaða Hallormsstaðaskógi,
laugardaginn 22. júní. Þar mun fara fram Íslandsmót í
skógarhöggi, grillveisla, ketilkaffi og heilmikil skemmti-
dagskrá að venju.
Í ár fagnar hátíðin 20 ára afmæli og í tilefni þess var
nýverið haldin samkeppni um frumsamið lag og texta sem
gaman verður að hlýða á.
Kunnugir vita að ekki er langt í hið vel þekkta Lagarfljót,
híbýli Lagarfljótsormsins, en fljótið teygir sig um endilangt
Fljótsdalshérað. Segir sagan að fyrir mörgum árum hafi
stúlka ein sett gull sitt undir lyngorm, með það fyrir augum
að auður hennar yxi. Ekki fór betur en svo að bæði ormur
og gull uxu svo mikið að stúlkan hræddist og skutlaði
hvoru tveggja út í Lagarfljót þar sem enn þann dag í dag
telja sumir sig verða vara við dýrið.
Aðfaranótt Jónsmessunætur þykir mögnuð töfranótt
þar sem draumar rætast, dýr tala og allir yfirskilvitlegir
hæfileikar og mættir koma í ljós.
Óskasteinar, lausnarsteinar, draumagras, lásagras og
huliðssteinar eru fólki til láns á Jónsmessunni, auk þess sem
sumir telja lukku sína fólgna í því að vera sem frjálslegast
til klæða svo auðvelt sé að velta sér nakinn í dögginni er
líða tekur á nóttu.
Jónsmessuhátíðir eru haldnar allvíða og um að gera að
njóta þeirra töfrandi stunda sem nóttin veitir.
Hinseginhátíð Vesturlands verður haldin í fjórða
skipti í ár og mun renna saman við hina sívinsælu Brákar-
hátíð, helgina 27.–30. júní nk.
Brákarhátíðin er rótgróin skemmtun sem haldin hefur
verið í Borgarnesi síðan 2009 og fest sig í sessi sem fjölskyldu-
og skemmtihátíð. Bátasiglingar björgunarsveitarinnar,
dögurður kvenfélagsins, dansleikur, götugrill og skreytingar
víða um bæinn gleðja viðstadda en ákveðið hefur verið
að sameina þetta allt í stærstu bæjarhátíðar- og partíhelgi
Vesturlands, nóg af regnbogum, gleði, hamingju og
glimmeri ... enda verður hápunktur helgarinnar gleðiganga
Hinseginhátíðar Vesturlands á laugardeginum ásamt
fjölbreyttri skemmtidagskrá að henni lokinni.
Það verður, eins og nærri má geta, mikið líf og fjör í
boði alla helgina. Skipuleggjendur og samfélagið í heild
sinni eru tilbúin að taka vel á móti gestum og gangandi og
því um að gera að líta við í Borgarnesi þessa helgi. /sp
Júnímánuður
Þriðja helgin, 13.–16. júní
Bíladagar á Akureyri fara fram með pomp og prakt í tæpa viku,
13.–17. júní nk. en um ræðir einn stærsta íþróttaviðburð sinnar tegundar
sem haldinn er hérlendis.
Dagana 13.–18. júní fer Víkingahátíðin í Hafnarfirði fram á Víðistaða-
túni þar sem gestir geta m.a. upplifað eldsmíði, jurtalitun og bogfimi
auk tónlistar hljómsveitanna Krauku og Hrafnboða.
Bráðskemmtileg bæjarhátíð, Hofsós heim, verður haldin dagana
14.–16. júní, dansiböll, gleði og glaumur.
Berjadagar á Ólafsfirði dagana 14.–17. júní er fjölskylduvæn tónlistar-
hátíð klassískrar tónlistar, djass, brasilískrar tónlistar, þjóðlaga, íslenskra
sönglaga og óperu.
Þjóðhátíðardagur Íslands, 17. júní, er haldinn hátíðlegur ár hvert um
allt land svo nærri má geta að heilmikil stemning verði hvarvetna.
Salthúsmarkaðurinn á Stöðvarfirði opnar dyr sínar þann 18. júní en
opið verður alla daga í sumar frá kl. 10–17. Er markaðurinn rekinn af
félagi eldri borgara á Stöðvarfirði, en versla má m.a. íslenskt handverk,
bakstur og annað. Fyrir heimsóknir utan venjulegs opnunartíma má
hringja í 8960349/8938861.
15. júní munu Sæskrímslin, kynjaverur Listahátíðar,
mæta í Neskaupstað!
Þann 19. júní verður kvennaganga á Hólmanes á Austurlandi, í
fararstjórn Hrannar Grímsdóttur og Kömmu Daggar Gísladóttur.
Mæting kl. 17 á bílastæði við útsýnisstaðinn á Hólmahálsi, en þaðan
verður gengið út á Hólmanesið þar sem leitt verður jóga.
Upplýsingar í síma 847-1690.
Farin verður Sólstöðuganga í Hrísey þann 19. júní með Ferðafélagi
Akureyrar. Lagt verður af stað á einkabílum frá Strandgötu 23, Akureyri
kl. 18:30 og ekið út á Ársskógssand, þaðan sem ferjan leggur af stað
klukkan 19:30, í fararstjórn Jóhannesar Áslaugssonar og Marínu
Sigurgeirsdóttur. Áætlað er að ganga suður og austur í gegnum
þorpið í Hrísey og svo haldið norður gönguleið austan á eynni. Farið
verður norður að Borgabrík og þaðan til baka inn í þorpið. Stoppað
verður á góðum stað til þess að njóta nestisbita og ferjan tekin til
baka klukkan 23:00.
Fjórða helgin, 21.–23. júní
18.–22. júní verður tónlistarhátíðin Við Djúpið haldin, en um ræðir
sex daga tónlistarhátíð á Ísafirði þar sem alla daga er boðið upp á
fjölbreytta tónleikadagskrá. Tónlistarmenn frá Evrópu, Bandaríkjunum,
Reykjavík og Ísafirði troða upp, ýmist á styttri hádegistónleikum eða
lengri tónleikum að kvöldi. Tónlistarnemendur geta sótt námskeið hjá
reyndum kennurum og börnum býðst að sækja tónlistarleikjanámskeið.
HIP Fest! Dagana 21.–23. júní verður haldin brúðulistahátíðin
Hvammstangi International Puppet Festival á Hvammstanga,
Norðurlandi vestra, þar sem brúðuleiksýningar og -kvikmyndir verða í
hávegum hafðar.
Sumarsólstöðuganga að Svarthamarsvatni! Þann 22. júní stendur
Ferðafélag Djúpavogs fyrir sumarsólstöðugöngu þegar gengið verður
upp að Svarthamarsvatni í Álftafirði í fararstjórn Eiðs Ragnarssonar.
Farið verður frá Bakka 1, 765 Djúpavogshreppi, klukkan 22.
Sólstöðuhátíðin á Kópaskeri verður haldin dagana 21.–23. júní,
en þar bjóða Kópaskersbúar og nærsveitamenn gestum heim og
skemmta sér og öðrum. Til dæmis býður íþróttafélagið Þingeyingur
upp á afþreyingu fyrir börn, haldið verður hið sívinsæla kjötsúpukvöld,
Sólstöðutónleikar Flygilvina verða haldnir auk þess sem gleðisveitin
Í góðu lagi stendur fyrir balli og lofar þéttum dansleik.
Hátíðin Sumarsólstöður í Grímsey verður haldin dagana 21.–23. júní.
Verður dagskráin nokkuð háð veðri, en ef vel stendur á verður farið í
siglingu á föstudagskvöldinu umhverfis Grímsey, gönguferð norður fyrir
flugvöllinn og miðnætursólarinnar notið ... ef hún lætur sjá sig!
Á laugardeginum verður svo blásið til ratleiks og síðan sjávarréttakvölds
í félagsheimilinu Múla og heljarinnar dansiball á eftir.
Fjölskylduhátíðin Skógardagurinn mikli 2024 verður haldin í hinum
rómaða Hallormsstaðaskógi laugardaginn 22. júní.
Fimmta helgin, 28.–30. júní
Alla laugardaga frá lok júní fram til loka ágúst verður Sumarmarkaður
á Selfossi í Tryggvagarði, laugardaga á milli kl. 10–16.
Bæjarhátíðin á Höfn í Hornafirði – Humarhátíð 2024 verður haldin með
pomp og prakt 27.–30. júní 2024. Boðið verður upp á humarsúpu í bland
við fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Íbúar Bakkafjarðar tilkynna skemmtilegustu sveitahátíðina, Bakkafest
2024, helgina 28.–29 júní. 2024 á tjaldsvæði Bakkafjarðar. Meðal annars
koma fram þeir JóiPé og Króli, Færibandið, Stebbi Jak og Drottningar
... en fjölbreyttari dagskrá má finna á Facebook er nær dregur.
Hinseginhátíð Vesturlands verður haldin í fjórða skipti í ár og mun
renna saman við hina sívinsælu Brákarhátíð, helgina 27.–30. júní nk.
Sumar 2024:
Gerum okkur dagamun
Hér má sjá sögulega mynd þegar hinseginhátíðin var haldin
í fyrsta skipti í Borgarnesi. Mynd / Hinsegin Vesturland
Jónsmessubrenna á Eyrarbakka gleður hjörtu viðstaddra.
Mynd / Eyrarbakki
Þessi litli drengur taldi varhugavert að hætta sér nálægt
bökkum Lagarfljóts nema vera með trjágrein sér til halds
og trausts. Gróðursæld Hallormsstaðar umvefur þó gesti
sína og veitir að öllu jöfnu öruggt skjól. Mynd / sp