Bændablaðið - 13.06.2024, Qupperneq 51

Bændablaðið - 13.06.2024, Qupperneq 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 Líf & starf Í Rauðbarðaholti í Dölum búa þau Ingibjörg Þóranna Steinudóttir og Einar Hlöðver Erlingsson sem hafa sett stefnuna á að reisa smáspunaverksmiðju á næsta ári. Ef allt gengur að óskum verður hún gangsett í apríl. Einar Hlöðver er uppalinn í Rauðbarðaholti, en það eru móðir hans og maður hennar sem eru með sauðfjárbúskap á bænum. Í bígerð er að gera upp gömul fjárhús á bænum sem eiga svo að hýsa verksmiðjuna sem verður rekin undir heitinu Urður Ull. „Okkur langar, að minnsta kosti fyrst um sinn, að vinna lambsullina eina og sér enda er það mýksta og verðmætasta ullin. Við viljum nýta mislita ull jafnt sem þá hvítu, gráu, svörtu og mórauðu og leyfa náttúrulegri litadýrð að njóta sín þannig að hver framleiðslulota verði einstök. Við viljum einnig stuðla að hærra afurðaverði til bænda og mun verða greitt jafnt fyrir alla liti. Það er búið að leggja inn pöntun fyrir ullarvinnsluvélunum en þær eru ekki væntanlegar til landsins fyrr en um áramót,“ segir Ingibjörg. „Þetta verður lítil smáspuna- verksmiðja sem á ensku er kallað MiniMill og er sambærileg við verksmiðjurnar í Gilhaga og Uppspuna,“ heldur hún áfram. Ullin rakin á bæina Varðandi verkferlana í verk- smiðjunni, þá sér Ingibjörg fyrir sér að geta rakið ullina niður á þann bæ sem hún kemur frá en ekki niður á stakt reyfi. „Það verður þó aðeins að fá að koma í ljós þegar við fáum vélarnar og byrjum að vinna með þær. Við erum ekki farin af stað enn þá að kynna verkefnið fyrir bændum sérstaklega en ég geri ráð fyrir að gera það í haust. En okkur finnst mikilvægt að koma á beinu samtali á milli okkar og bænda. Við finnum nú þegar fyrir miklum áhuga í samfélaginu á þessu verkefni og vonumst til að fá góð viðbrögð frá bændum í Dalabyggð þegar við förum að kynna verkefnið nánar.“ Áætlaður kostnaður 60 milljónir Að sögn Ingibjargar hafa fengist tæpar þrjár milljónir króna í styrk í gegnum verkefnið DalaAuð og tvær milljónir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. „Við erum að gera ráð fyrir að það kosti um 60 milljónir að koma verksmiðjunni upp, það er vélar og húsnæði, þannig að þetta er um átta prósent sem við erum búin að fá í styrki. Við erum í samtali við Byggðastofnun um lán til fjármögnunar á því sem stendur út af.“ /smh Miðhrauni 6, 210 Garðabæ, s. 544 8900 m@malmsteypa.is malmsteypa.is M yn d: B öð va r Le ós Rör og fittings Viðgerðarefni Þorgrímsfótur Festihulsur Ídráttarrör Topphringir Trjáristar Drenrör Brunnkarmar/lok Sandföng/ristar Rennustokkar/ristar Spindillok Kerfislok Tengistykki Húsbrunnar Kúluristar Götubrunnar Tengibrunnar Verð: 1.736 kr. Smáspunaverksmiðja mun rísa í Dölunum Lambsullin er mýksta og verðmætasta ullin. Myndir / Urður Ull Fjárhúsin sem stendur til að endurreisa svo þau geti hýst verksmiðjuna. Ingibjörg Þóranna Steinudóttir í fjárhúsunum. Einar Hlöðver Erlingsson og dætur hans Auður Linda tíu ára og Freyja Sjöfn sjö ára.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.