Bændablaðið - 13.06.2024, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024
Útvarp, Philips-kassettur, eldspýtur í úrvali, Agfa-segulband, kúrekastígvél,
barnagull, rafhlöður, barnaföt og -skór.
Pálar og rekur í gjarðatunnu, Sambands-lambalifur og fræ sáðmannsins.
Þessi vaski Kaupfjelags-starfsmaður þvoði sjávarseltuna af rúðum kaffihússins svo fögur útsýnin nyti sín. Myndir / sá
Gamalt kaupfélagsgóss
Í gömlu verslunarhúsi á Breiðdalsvík, Kaupfjelaginu, er lítil matvöru- og gjafavöruverslun,
ásamt notalegu kaffihúsi þar sem meðal annars fæst óskaplega góð gulrótarkaka. Þarna hafa
verið nokkrar búðir gegnum tíðina og gengið á með skini og skúrum í verslunarrekstrinum.
Við tiltekt fyrir um áratug fannst alls konar dót á háaloftinu, svo sem sláturhússföt, skór og
gamlir verðlistar frá Sambandinu sem sýndu hvert vöruverð var áratugum. Í efstu hillum
Kaupfjelagsins má líta gamlar vörur sem voru til sölu um miðja síðustu öld eða svo.
Eflaust yljar það einhverjum um hjartarætur að sjá ýmislegt sem áður var til á hverjum
bæ en hefur orðið nútímanum, þeirri skrítnu skepnu, að bráð. /sá
Vísnahornið
Fyrir utan Stein Steinar og
Guðmund Böðvarsson er það
Hjálmar Freysteins sem ég
hef mjög hrifist af.
Í kringum allt og ekki neitt
ókunnur máttur knýr oss
hraðar, hraðar.
Og enginn spyr, hvort ljúft
sé eða leitt.
Löng er vor ferð.
Vér nemum aldrei staðar.
Sagði Steinn Steinar og orti að
sögn líka þessa, sem fleyg varð:
Hýsi ég einn mitt hugarvíl,
hrundir engar þekki.
Sumir hafa sexappeal,
en sumir hafa það ekki.
Steinn mun hafa ort:
Fellur ofan fjúk og snær.
Flest vill dofa ljá mér.
Myrk er stofa, mannlaus bær.
Má ég sofa hjá þér?
Til Tómasar Guðmundssonar
orti hann:
Hér situr Tómas skáld með
bros á brá.
Bjartur og hreinn sem fyrsta
morgunsárið.
Ó, vinur minn hve sorglegt
er að sjá
að sálin skuli grána fyrr
en hárið.
Guðmundur á Kirkjubóli orti:
Stundin sú er sumar bar
og sól í fangi.
Hún mun hljótt og lengi, lengi
leika á þína hugarstrengi.
Hjörtun dreymir, bylgjast blær
björtu heimur krýnist.
Stundin gleymist, gatan hlær,
grundin streyma sýnist.
Mútur bjóðast, böðlar tryllast,
blása í glóðina.
Ertu þjóð mín ekki að villast
út í móðuna.
Gott er að koma að garði þeim
sem góðir vinir byggja.
Þá er meira en hálfnað heim
hvert sem vegir liggja.
Hjálmar Freysteins var snjall.
Hátíðin, hún var að byrja,
þá hrópar Steingerður Yrja;
,,Svein vil ég ei,
ég segi sko NEI.“
Samt var nú enginn að spyrja!
Hjálmar var manna fyndnastur:
Veturinn búinn, breytir allt
um svip,
brátt grænkar jörðin.
Vorboðinn ljúfi,
skemmtiferðarskip,
skríður inn fjörðinn.
Meira um ferðaþjónstuna:
Á ferðamönnum gaman er
að græða,
frá gálausum aleigan fauk.
Þeir ríkustu hafa ráð á
að snæða,
rúnnstykki á Gamla Bauk.
Ferðaþjónusta er fangaráð,
frá því er rétt að skýra.
Síðar mun hennar saga skráð:
Sagan af brauðinu dýra.
Vorið góða grænt og hlýtt,
á gamansemi lumar.
Allt er núna orðið hvítt,
enda komið sumar.
Þetta vor er ekkert einsdæmi.
Umsjón: Magnús Halldórsson
mhalldorsson0610@gmail.com
Kaupfjelagið stendur í hjarta þorpsins og þjónustar heimamenn og
ferðafólk um helstu gögn og nauðsynjar.
Í versluninni má fá ýmsar helstu nauðsynjar og handverk en kaffihúsið er
líka mjög lokkandi og hanga þar uppi fróðleg söguskilti um svæðið.
Hjartaklúbbs-lyftiduft, gulur Bragi, kakó, malt og blár Royal lyftiduftsbaukur
í bökunarvörunni ásamt gulum sumarbollum.
Gömul járn-Husqvarna-2000, skótau, smekklegt hliðarveski, sundgleraugu,
hárkrem og lindarpennar.
Fljótandi Mjallarbón, Winchester-skot, gúmmískór, spúnar, joðkvars-
lampaperur og betrekks-sýnishorn.