Bændablaðið - 13.06.2024, Síða 7

Bændablaðið - 13.06.2024, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 Útvarp, Philips-kassettur, eldspýtur í úrvali, Agfa-segulband, kúrekastígvél, barnagull, rafhlöður, barnaföt og -skór. Pálar og rekur í gjarðatunnu, Sambands-lambalifur og fræ sáðmannsins. Þessi vaski Kaupfjelags-starfsmaður þvoði sjávarseltuna af rúðum kaffihússins svo fögur útsýnin nyti sín. Myndir / sá Gamalt kaupfélagsgóss Í gömlu verslunarhúsi á Breiðdalsvík, Kaupfjelaginu, er lítil matvöru- og gjafavöruverslun, ásamt notalegu kaffihúsi þar sem meðal annars fæst óskaplega góð gulrótarkaka. Þarna hafa verið nokkrar búðir gegnum tíðina og gengið á með skini og skúrum í verslunarrekstrinum. Við tiltekt fyrir um áratug fannst alls konar dót á háaloftinu, svo sem sláturhússföt, skór og gamlir verðlistar frá Sambandinu sem sýndu hvert vöruverð var áratugum. Í efstu hillum Kaupfjelagsins má líta gamlar vörur sem voru til sölu um miðja síðustu öld eða svo. Eflaust yljar það einhverjum um hjartarætur að sjá ýmislegt sem áður var til á hverjum bæ en hefur orðið nútímanum, þeirri skrítnu skepnu, að bráð. /sá Vísnahornið Fyrir utan Stein Steinar og Guðmund Böðvarsson er það Hjálmar Freysteins sem ég hef mjög hrifist af. Í kringum allt og ekki neitt ókunnur máttur knýr oss hraðar, hraðar. Og enginn spyr, hvort ljúft sé eða leitt. Löng er vor ferð. Vér nemum aldrei staðar. Sagði Steinn Steinar og orti að sögn líka þessa, sem fleyg varð: Hýsi ég einn mitt hugarvíl, hrundir engar þekki. Sumir hafa sexappeal, en sumir hafa það ekki. Steinn mun hafa ort: Fellur ofan fjúk og snær. Flest vill dofa ljá mér. Myrk er stofa, mannlaus bær. Má ég sofa hjá þér? Til Tómasar Guðmundssonar orti hann: Hér situr Tómas skáld með bros á brá. Bjartur og hreinn sem fyrsta morgunsárið. Ó, vinur minn hve sorglegt er að sjá að sálin skuli grána fyrr en hárið. Guðmundur á Kirkjubóli orti: Stundin sú er sumar bar og sól í fangi. Hún mun hljótt og lengi, lengi leika á þína hugarstrengi. Hjörtun dreymir, bylgjast blær björtu heimur krýnist. Stundin gleymist, gatan hlær, grundin streyma sýnist. Mútur bjóðast, böðlar tryllast, blása í glóðina. Ertu þjóð mín ekki að villast út í móðuna. Gott er að koma að garði þeim sem góðir vinir byggja. Þá er meira en hálfnað heim hvert sem vegir liggja. Hjálmar Freysteins var snjall. Hátíðin, hún var að byrja, þá hrópar Steingerður Yrja; ,,Svein vil ég ei, ég segi sko NEI.“ Samt var nú enginn að spyrja! Hjálmar var manna fyndnastur: Veturinn búinn, breytir allt um svip, brátt grænkar jörðin. Vorboðinn ljúfi, skemmtiferðarskip, skríður inn fjörðinn. Meira um ferðaþjónstuna: Á ferðamönnum gaman er að græða, frá gálausum aleigan fauk. Þeir ríkustu hafa ráð á að snæða, rúnnstykki á Gamla Bauk. Ferðaþjónusta er fangaráð, frá því er rétt að skýra. Síðar mun hennar saga skráð: Sagan af brauðinu dýra. Vorið góða grænt og hlýtt, á gamansemi lumar. Allt er núna orðið hvítt, enda komið sumar. Þetta vor er ekkert einsdæmi. Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610@gmail.com Kaupfjelagið stendur í hjarta þorpsins og þjónustar heimamenn og ferðafólk um helstu gögn og nauðsynjar. Í versluninni má fá ýmsar helstu nauðsynjar og handverk en kaffihúsið er líka mjög lokkandi og hanga þar uppi fróðleg söguskilti um svæðið. Hjartaklúbbs-lyftiduft, gulur Bragi, kakó, malt og blár Royal lyftiduftsbaukur í bökunarvörunni ásamt gulum sumarbollum. Gömul járn-Husqvarna-2000, skótau, smekklegt hliðarveski, sundgleraugu, hárkrem og lindarpennar. Fljótandi Mjallarbón, Winchester-skot, gúmmískór, spúnar, joðkvars- lampaperur og betrekks-sýnishorn.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.