Bændablaðið - 13.06.2024, Blaðsíða 46
46 Skoðun Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024
Tandrabretti ehf. hefur undanfarin
ár unnið að uppbyggingu á viðar-
perluframleiðslu þar sem hráefnið
er ýmist úr íslenskum skógum eða
úrgangstimbri ýmiss konar.
Viðarperlur
hafa margt til síns
ágætis, eru notaðar
sem undirburður
undir hesta og
sem orkugjafi.
Varan er þegar
orðin talsvert
þekkt undir
v ö r u m e r k i n u
Ilmur. Í þessum
pistli ætla ég að fjalla um verkefni
þar sem viðarperlur úr íslensku lerki
voru notaðar sem orkugjafi í stað olíu.
Þegar timbri er umbreytt úr hrávið
í viðarperlur verður til formuð og
pressuð afurð sem er orkuríkari en
óunnið timbur á þyngdareiningu.
Auðvelt er að stjórna brennslu
viðarperla þar sem einingarnar
eru staðlaðar og innihalda lítinn
raka. Perluofnar nútímans eru
útbúnir stýringum svo ávallt sé
rétt hlutfall eldsneytis og súrefnis
í brunahólfinu til þess að hámarka
nýtinguna og lágmarka útblástur.
Yfirleitt er ekki sjáanlegur reykur
úr perluofnum. Samkvæmt stöðlum
ESB er brennsla á viðarperlum
skilgreind umhverfisvæn þar sem
ekki er heilsuspillandi mengun frá
þeim og kolefnið sem losnar við
bruna er hluti af kolefnishringrás
andrúmsloftsins öfugt við kolefni úr
jarðefnaeldsneyti sem er hrein viðbót
við það kolefni sem nauðsynlegt er
öllu lífi á jörðu. Einnig er samkvæmt
reglum ESB leyfilegt að starfrækja
perluofna inni í íbúðabyggðum án
sérstaks leyfis vegna áðurgreindra
kosta brunans.
Á Íslandi höfum við búið við
gnægð orku undanfarin ár, orku sem
er afar umhverfisvæn og auðveld í
notkun. Það má segja að við búum
við forréttindi að geta keypt heitt
vatn eða rafmagn á verði sem er
aðeins brotabrot af því verði sem
nágrannaþjóðir okkar búa við. Nú er
hún Snorrabúð stekkur og er ljóst að
ekki eru ótakmarkaðar orkuauðlindir
á Íslandi frekar en annars staðar og
í nútíma neyslusamfélagi hrannast
úrgangur upp með tilheyrandi
neikvæðum umhverfisáhrifum, þá
þarf að grípa til aðgerða, margs
konar aðgerða sem falla að ólíkum
aðstæðum.
Á síðastliðnum vetri fékk
Tandrabretti tækifæri til að gera
alvörutilraun að framleiða hitaorku
með viðarperlum fyrir hitaveitur í
Fjarðabyggð, þar sem á liðnum vetri
varð orkuskortur á Íslandi og brenna
þurfti þúsundum tonna af olíu með
tilheyrandi kolefnisspori til þess að
mæta orkuskortinum.
Skemmst er frá því að segja að
með því að setja upp perlukatla ásamt
aðhaldsaðgerðum sveitarfélagsins
tókst að komast hjá því að brenna
olíu við hitaveitur Fjarðabyggðar.
Tölulegar upplýsingar
Á tímabilinu frá miðjum janúar sl.
fram í byrjum maí voru í Fjarðabyggð
framleiddar með viðarperlum 2.250
megawattsstundir í formi heits vatns.
Til framleiðslunnar þurfti 490 tonn
af viðarperlum, en hvert kg af
viðarperlum skilar um 4,5 kwh. Ef
orkugjafinn hefði verið olía hefðu
verið notaðir u.þ.b. 225 þúsund lítrar
og kolefnislosun verið um 550 tonn
af jarðefnakolefni. Fjárhagslegur
ávinningur Fjarðabyggðar var 17
milljónir króna, sem er mismunurinn
á kostnaði við að nota perlur frekar
en olíu sem eldsneyti, auk þess sem
beint skattaspor framleiðslunnar var
um 3,5 milljónir.
Við höfum áætlað kolefnisspor
þessa verkefnis og borið það undir
sérfræðinga. Til orkuvinnslunnar í
vetur var eingöngu notast við lerki úr
skógum á Fljótsdalshéraði. Var þetta
grisjunarviður sem ekki er hæfur til
áframhaldandi timburvinnslu, þ.e.a.s.
er ekki hæfur til flettingar. Til þess
að framleiða 490 tonn af perlum
þarf að grisja um það bil 25 hektara
skóglendis. Úr hverjum hektara fæst
við grisjun að meðaltali um 20 tonn
af hráefni til perluframleiðslu og
8–10 tonn af flettivið sem notaður
er til að vinna t.d. húsaklæðningar
o.fl. Samkvæmt upplýsingum frá
Landi og skógi bindur einn hektari
með síberíulerki, eins og mest er
af á Fljótsdalshéraði, um 7 tonn af
koltvísýringi (CO2) árlega.
Til að hámarka tekjur af skógrækt
og viðhalda heilbrigði skóganna þarf
að hirða um þá og grisja, til að skapa
vaxtarrými fyrir þá einstaklinga sem
eru af mestum gæðum og viðhalda
góðum vexti og þar með talið
kolefnisbindingu.
Líftími lerkiskóga er langur,
en vöxtur og kolefnisbinding
minnka verulega við 50–60 ára
aldur, enda má reikna með að við
þann aldur sé skógurinn orðinn að
verðmætu hráefni til viðarvinnslu.
Við brennsluna á þeim 490 tonnum
af perlum sem notuð voru í vetur
var kolefnislosun um 500 tonn af
koltvísýringi sem er hlutlaus losun.
Ef hins vegar þessi vinnsla
og notkun á grisjunarvið er sett
í samhengi með nýtingu skógar,
skógarheilbrigði og umhirðu,
þá má rökstyðja að aðgerðin sé
kolefnisjákvæð og muni hjálpa
skógunum að framleiða verðmæta
vöru og binda kolefni næstu 25–30
ár. Því má draga þá ályktun að losun
okkar á 500 tonnum af koltvísýringi
sé eðlilegur þáttur í því að skógurinn
sem grisjaður var geti á 50–60 ára
líftíma bundið um 9–10 þúsund tonn
af kolefni. Þannig að ávinningurinn
er mikill.
Jákvæð umhverfisáhrif
Að framansögðu er ljóst að
umhverfisáhrif þess að kynda með
viðarperlum eru mjög jákvæð auk
þess sem hagræn áhrif á samfélagið
eru góð. Ég hef ekki minnst á þau áhrif
sem það hefur á skógareigendur að
orðin séu til verðmæti í grisjunarvið
sem áður var skilinn eftir inni í
skógum, auk þess sem áhrifin eru þau
að meira er grisjað af skógum vegna
þeirra tekna sem til verða.
Það eru mikil tækifæri falin
í skógrækt og skógarvinnslu en
til þess að hægt sé að byggja upp
timburiðnað þurfa allir aðilar
sem að því koma að vinna saman
að uppbyggingu þar sem hver
vinnslugrein er stoð annarra
vinnslugreina. Stjórnvöld þurfa
einnig að hafa framtíðarsýn og
skapa aðstæður svo hægt sé að
styðja enn frekar við uppbyggingu
skógarvinnslu sem styrkir byggð í
sveitum landsins.
Það má nefna að við grisjun
skóga fellur til eitthvert magn af
flettivið sem vinnslur á borð við
Skógarafurðir ehf. í Fljótsdal geta nýtt
sér í afurðir, eins og klæðningar á hús
og sólpalla svo eitthvað sé nefnt. Við
þá framleiðslu fellur einnig til hráefni
sem hægt er að nýta til framleiðslu á
viðarperlum.
Tilraunin sem Tandrabretti stóð
að í Fjarðabyggð í vetur í góðu
samstarfi við bæjaryfirvöld tókst að
okkar mati vel, þrátt fyrir að aðstæður
hafi ekki verið eins og best verður á
kosið. Kyndistöðvarnar voru í gámum
með tilheyrandi takmörkunum.
Erfitt var að nálgast hráefnið sem
að mestu var enn í stæðum inni í
skógum, vegna snjóa. Fyrirvarinn á
raforkuskerðingunni var mjög lítill
og þess vegna var undirbúningurinn
nánast enginn. Við unnum í kappi
við tímann að koma verkefninu af
stað. Það er erfitt rekstrarumhverfi
fyrir okkur sem einkafyrirtæki að
búa við rekstraróvissu til framtíðar
og nær ómögulegt. Nauðsynlegt er
að stjórnvöld komi að því hvernig
hitaveitur sem nýta svokallaða
skerðanlega orku tryggi varaafl annað
en olíu. Með fyrirsjáanleika er hægt
að byggja upp kyndistöðvar sem nota
viðarperlur sem varaafl á hagkvæman
hátt.
Tilraunaverkefni af þessu tagi
er ekki gert nema með aðkomu
fleiri aðila og viljum við sem
stöndum að Tandrabrettum nefna
Land og skóg sem hafa komið að
grisjunarverkefnum til að tryggja
hráefni í okkar vinnslu. Verkefnið
hefur notið mikilvægra styrkja frá
Orkusjóði til kaupa á nauðsynlegum
búnaði. Mikilvægt var einnig að
bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð höfðu
trú á verkefninu og unnu þétt með
okkur að framgangi þess.
Við hjá Tandrabrettum gerum
okkur grein fyrir að viðarperlur
úr íslenskum skógum eru ekki
heildarlausn gegn orkuskorti á Íslandi
en með skynsamlegum aðgerðum
yfirvalda getur brennsla þeirra verið
jákvæður þáttur í hagnýtri orkuöflun
og kolefnisbindingu íslenskra skóga.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Tandrabretta ehf.
Einar Birgir
Kristjánsson.
Kynding með viðarperlum úr íslensku lerki
Peruketill. Með uppsetningu þeirra ásamt aðhaldsaðgerðum sveitarfélagsins Fjarðabyggðar tókst
að komast hjá því að brenna olíu við hitaveituna. Myndir / Aðsendar
Stæða af grisjunarvið. Notast var við lerki úr skógum á Fljótsdalshéraði.
SÉRHANNAÐ BREMSUKERFI
FYRIR HJÓLAGRÖFUR
HARDOX® 500 TUF STÁLSVEIGÐUR
FRAMGAFL
skralli@skralli.is
779 1886
VERKFÆRAKASSI
VÖKVAVÖR
... OG FESTINGAR FYRIR GARÐVERKFÆRI OG LED LJÓS OG MARGT, MARGT FLEIRA. HAFÐU SAMBAND Í DAG!
FYRIR ÞÁ KRÖFUHÖRÐU
HJÓLAGRÖFUVAGNAR
Farsæl tilraun var gerð við að framleiða hitaorku með viðarperlum fyrir hitaveitur í Fjarðabyggð
síðastliðinn vetur.