Bændablaðið - 13.06.2024, Side 55

Bændablaðið - 13.06.2024, Side 55
55Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 Hamrahlíð 17 Hús Blindrafélagsins Sími • 552-2002 ÓDÝR Margskipt gleraugu Verð 39.900 kr Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur) Gleraugu með glampa og rispuvörn Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0 19.900 kr. Margskipt gleraugu Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tv r vikur) 39.900 kr. gleraugu umgjörð og gler OG VINNUM ÚR ÞEIM LAUSNIR TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is Bóndinn: Reksturinn í góðum höndum Bústjóri og fjósameistari Flateyjar á Mýrum taka nú við keflinu en lesendur geta fylgst með fjölskyldunni á Instagram-reikningi Bændablaðsins á næstu tveimur vikum. Þau Birgir Freyr Ragnarsson og Vilborg Rún Guðmundsdóttir tóku við rekstri Flateyjarbúsins haustið 2016, en búið er eitt stærsta kúabú landsins. Birgir kemur frá Akurnesi í Nesjum, skammt frá flugvellinum í Hornafirði þar sem rekið er stærðarinnar sauðfjárbú auk kartöfluræktar. Vilborg kemur frá bæ í Vatnsleysu í Biskupstungum þar sem stundaður er blandaður búskapur með kýr, sauðfé og hross. Býli, staðsetning? Flatey á Mýrum í Hornafirði. Ábúendur, fjölskyldustærð (og gæludýra)? Vilborg Rún Guðmundsdóttir, Birgir Freyr Ragnarsson og Hjörtur Logi Birgisson. Kettirnir þrír, þau Junior, Skoppa og Skrítla. Gerð bús og fjöldi búfjár? Mjólkurframleiðsla, kjötframleiðsla og akuryrkja. Fjósið er lausagöngufjós með fóðurgangi fyrir miðju. Kúnum í fjósinu er skipt í fjóra hópa: geldstöðu, velferð, lágnytja og hánytja. Fóðurkerfið er frá Triolet. Það gefur 24 sinnum á sólarhring. Það eru fjórir mjaltaþjónar frá Lely af gerðinni A4. Í Flatey eru 230 árskýr, 180 uxar og 230 kvígur á öllum aldri. Hvers vegna veljið þið þessa búgrein? Okkur bauðst þetta tækifæri að taka við bústjórn í Flatey haustið 2016 og langaði að takast á við þá áskorun. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hann byrjar alla morgna í fjósinu á milli kl. 7 og 8 og fram til kl. 10. Þá er verið að sinna mjöltum og umhirðu gripa. Að því loknu er hinum ýmsum bústörfum sinnt, s.s. fóðrun, þrifum og viðhaldi. Dagurinn endar svo þar sem hann byrjaði í mjöltum og umhirðu gripa. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin?Skemmti- legast er þegar gengur vel, sama hvort það er í fjósinu eða úti á akri. Leiðinlegast er þegar gripir veikjast og þegar er ótíð. Hvað er það jákvæða við að vera bóndi? Fjölbreyttir vinnudagar og þegar vel gengur og maður sér árangur eftir margra mánaða vinnu. Hverjar eru áskoranirnar? Að framleiða mikið af afurðum: mjólk, kjöt og korn og af sem bestum gæðum og magni. Hvernig væri hægt að gera búskapinn ykkar hag- kvæmari? Með auknum afurðum. Hvernig sjáið þið landbúnað á Íslandi þróast næstu árin? Þetta verður blómlegt og tækifærin liggja víða. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar við náum þeim markmiðum sem við sjálf höfum sett okkur. Bændurnir í Flatey á Mýrum taka yfir Instagram Bændablaðsins næstu tvær vikurnar. Bæjarstæði Flateyjarbúsins á Mýrum á fallegu kvöldi. Myndir / Aðsendar Vilborg Rún Guðmundsdóttir og Birgir Freyr Ragnarsson ásamt syni sínum, Hirti Loga. Hjörtur Logi Birgisson tekur sig mjög vel út sem upprennandi bústjóri og fjósameistari. Fylgist með lífi bænda á samfélagsmiðlum Bændablaðsins

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.