Bændablaðið - 13.06.2024, Page 55
55Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
Bóndinn:
Reksturinn í góðum höndum
Bústjóri og fjósameistari Flateyjar á Mýrum taka nú
við keflinu en lesendur geta fylgst með fjölskyldunni
á Instagram-reikningi Bændablaðsins á næstu
tveimur vikum.
Þau Birgir Freyr Ragnarsson og Vilborg Rún
Guðmundsdóttir tóku við rekstri Flateyjarbúsins haustið
2016, en búið er eitt stærsta kúabú landsins. Birgir
kemur frá Akurnesi í Nesjum, skammt frá flugvellinum
í Hornafirði þar sem rekið er stærðarinnar sauðfjárbú
auk kartöfluræktar. Vilborg kemur frá bæ í Vatnsleysu í
Biskupstungum þar sem stundaður er blandaður búskapur
með kýr, sauðfé og hross.
Býli, staðsetning? Flatey á Mýrum í Hornafirði.
Ábúendur, fjölskyldustærð (og gæludýra)? Vilborg
Rún Guðmundsdóttir, Birgir Freyr Ragnarsson og
Hjörtur Logi Birgisson. Kettirnir þrír, þau Junior,
Skoppa og Skrítla.
Gerð bús og fjöldi búfjár? Mjólkurframleiðsla,
kjötframleiðsla og akuryrkja. Fjósið er lausagöngufjós
með fóðurgangi fyrir miðju. Kúnum í fjósinu er skipt
í fjóra hópa: geldstöðu, velferð, lágnytja og hánytja.
Fóðurkerfið er frá Triolet. Það gefur 24 sinnum á
sólarhring. Það eru fjórir mjaltaþjónar frá Lely af
gerðinni A4. Í Flatey eru 230 árskýr, 180 uxar og 230
kvígur á öllum aldri.
Hvers vegna veljið þið þessa búgrein? Okkur bauðst
þetta tækifæri að taka við bústjórn í Flatey haustið 2016
og langaði að takast á við þá áskorun.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á
bænum? Hann byrjar alla morgna í fjósinu á milli kl. 7
og 8 og fram til kl. 10. Þá er verið að sinna mjöltum og
umhirðu gripa. Að því loknu er hinum ýmsum bústörfum
sinnt, s.s. fóðrun, þrifum og viðhaldi. Dagurinn endar
svo þar sem hann byrjaði í mjöltum og umhirðu gripa.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin?Skemmti-
legast er þegar gengur vel, sama hvort það er í fjósinu
eða úti á akri. Leiðinlegast er þegar gripir veikjast og
þegar er ótíð.
Hvað er það jákvæða við að vera bóndi? Fjölbreyttir
vinnudagar og þegar vel gengur og maður sér árangur
eftir margra mánaða vinnu.
Hverjar eru áskoranirnar? Að framleiða mikið af
afurðum: mjólk, kjöt og korn og af sem bestum gæðum
og magni.
Hvernig væri hægt að gera búskapinn ykkar hag-
kvæmari? Með auknum afurðum.
Hvernig sjáið þið landbúnað á Íslandi þróast næstu
árin? Þetta verður blómlegt og tækifærin liggja víða.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar við
náum þeim markmiðum sem við sjálf höfum sett okkur.
Bændurnir í Flatey á Mýrum taka yfir Instagram
Bændablaðsins næstu tvær vikurnar.
Bæjarstæði Flateyjarbúsins á Mýrum á fallegu kvöldi. Myndir / Aðsendar
Vilborg Rún Guðmundsdóttir og Birgir Freyr Ragnarsson
ásamt syni sínum, Hirti Loga.
Hjörtur Logi Birgisson tekur sig mjög vel út sem upprennandi bústjóri og fjósameistari.
Fylgist með lífi bænda
á samfélagsmiðlum Bændablaðsins