Bændablaðið - 13.06.2024, Page 40
40 Á faglegum nótum Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024
Nánast um allan heim hafa stjórn-
völd mismunandi landa sett kröfur
um losun gróðurhúsalofttegunda
og sett sér skýr markmið um stöðu
sótspors á ákveðum tímamótum og
er oft talað um árin 2030 og 2050 í
þeim efnum.
Krafan um minna sótspor við
mjólkur- og kjötframleiðslu hefur
einnig verið ljós í nokkurn tíma og
oft í því sambandi horft til nautgripa-
ræktar og þá sér í lagi losunar naut-
gripa á metani. Of lítið heyrist rætt
um það hvernig nautgriparæktin getur
í raun hjálpað margs konar iðnaði til
að minnka hið sameiginlega sótspor,
með því að nýta margs konar úrgang,
sem venjulega færi í landfyllingu eða
moltugerð, sem fóður. Nautgripir geta
nefnilega fengið næringu úr því sem
mannskepnan getur ekki nýtt
eða melt, og umbreytt í kjöt
og mjólk.
Úr landfyllingu í fóður
Um allan heim fellur
til gríðarlegt magn af
bæði matarleifum og
margs konar úrgangi frá
matvælaverksmiðjum sem
í dag fer mikið til bara í
landfyllingu eða moltugerð.
Þá fer garðaúrgangur mikið til sömu
leið en ljóst er að nýta mætti töluverðan
hluta sem fóður, ef rétt væri að staðið.
Þessu má og er hægt að breyta og hafa
nokkur lönd þegar stigið áhugaverð
skref í þessum efnum.
Heilfóðrun nautgripa lausnin
Flestir þekkja til fóðrunar á nautgripum
þar sem þeir fá gróffóður og svo
kjarnfóður sem aukaskammt af orku og
öðrum næringarefnum.
En með því að skipta
þessari fóðrunaraðferð
út með heilfóðrun, þ.e.
þar sem öllu fóðri sem
gripurinn fær er blandað
saman í eitt fóður, er
hægt að „smygla“ ofan
í nautgripina alls konar
aukaafurðum og úrgangi
sem þeir myndu ella fúlsa
við og/eða ekki nokkur
skepna líta við yfir höfuð.
Ótal hráefni í boði
Líklega er algengast að nota hrat frá
bjórgerð sem fóður fyrir nautgripi
en ótal aðrar leifar er hægt að nýta,
eins og t.d. hrat/úrkast frá vinnslu
á matvælaolíu-, maísmjöls- og
sojamjöls- eða hrísgrjónaframleiðslu.
Þá geta nautgripir nýtt úrgang frá
bómullarframleiðslu, frá epla- og
appelsínudjúsgerð og ótal fleiri dæmi
mætti nefna. Í raun er hægt að nýta
allt sem fólki dettur í hug að nota, svo
fremi sem næringarefnainnihaldið falli
að fóðrunarþörfum nautgripanna.
Víða erlendis, þar sem kúabú-
skapur er mjög þróaður, er heilfóðrun
algengasta form fóðrunar og í dag
er oft 20–30% fóðursins einhvers
konar úrgangur sem kemur sem
hliðarafurð við vinnslu á matvælum
fyrir fólk. Þetta hlutfall getur verið
enn hærra en þó aldrei allt fóðrið,
enda þurfa nautgripir að fá rétt hlutfall
fóðurefna svo vambarstarfsemin
haldist virk. Rannsóknir sýna að þar
sem hefðbundnu korni og þekktum
hefðbundum fóðurefnum er skipt
út fyrir matarleifar eða úrgang
frá matvælavinnslu þá gefur það
áþekka niðurstöðu þegar kemur að
mjólkurframleiðslu kúa eða vaxtargetu
nautgripa. Undirstaðan er vissulega
að rétt sé fóðrað og fóðrið blandað á
réttan hátt.
Fyrsta skrefið er að flokka rétt
Til þess að geta náð árangri við nýtingu
á matarleifum og sambærilegum
úrgangi þarf að flokka rétt og hér er
mikilvægast að frumframleiðendur
og söluaðilar standi sig vel. Í Banda-
ríkjunum, þar sem mikið af matvælum
og úrgangi sem í raun mætti nýta sem
fóður fyrir skepnur endar á haugunum,
er búið að útbúa flokkunarkerfi fyrir
svona úrgang og er um að ræða 41
mismunandi flokk matvæla sem nýta
má sem fóður fyrir skepnur í stað
þess að hann fari til spillis og endi
sem landfylling eða molta. Þetta eru
t.d. úrgangur frá bakaríum, fráflokkað
grænmeti og ávextir, niðursuðuvörur
og fleira mætti nefna.
Bændur og verslanir vinna
saman í Kanada
Í Kanada hefur verið komið upp
áhugaverðu kerfi sem tengir saman
bændur og verslanir. Þetta kerfi
kallast „Loop“ sem mætti snara yfir
á íslensku sem „Hringur“ en bændum
og verslunum er valfrjálst að taka þátt í
þessum „Hring“. Um er að ræða kerfi
sem tengir saman bændur og verslanir
og snýst í stuttu máli um að flokka
úrgang og matarleifar rétt í verslunum,
svo úrganginn megi nýta sem fóður
fyrir skepnur. Þeir sem taka þátt í
kerfinu fá sérstaka endurmenntun í því
hvernig á að flokka og hvernig á að
nýta matvælaúrganginn sem bændurnir
fá til að gefa sínum skepnum.
Hvað er nothæft?
Það er í raun ótrúlega margs konar
matvæli sem má nota sem fóður fyrir
jórtrandi skepnur, svo fremi sem fóðrið
sé rétt blandað og samsett.
Á listanum hjá Loop í Kanada
er t.d. hið augljósa eins og vörur frá
bakaríum, grænmeti og ávextir frá
dreifingarfyrirtækjum og verslunum
en einnig útrunnar eða skemmdar
mjólkurvörur, kaffikorgur, samlokur
og ýmislegt annað mætti nefna. Í
raun má segja að allar matvörur séu
nothæfar nema kjöt og fiskur.
Laga- og reglugerðarumhverfi
þarf að vera í lagi
Þrátt fyrir að þetta verkefni sé gert
í nánu samstarfi við yfirvöld sýnir
reynslan af þessu kanadíska verkefni
að aðalvandamálið við að koma
þessu samstarfi bænda og verslana á
koppinn hafi einmitt verið opinbera
eftirlitskerfið og lagaumhverfið, sem
var í raun ekki hannað eða aðlagað því
að nýta matarleifar eða matarúrgang
sem fóður fyrir skepnur.
Yfirvöld hafa þó verið öll af
vilja gerð til að liðka til fyrir þessari
nýtingu á úrgangi, enda hafa kanadísk
yfirvöld skuldbundið sig til þess að
draga úr landfyllingu matarleifa og
-úrgangs um 50% fyrir árið 2030.
Það sem er sérstaklega áhugavert
við þetta kanadíska kerfi er að það
er upprunnið hjá bónda, sem tók það
upp hjá sjálfum sér að gera samninga
við verslanir o.s.frv. Nú hefur kerfið
undið upp á sig og félagasamtök og
stofnanir slegist í hóp þúsunda bænda
og fyrirtækja sem nú eru þátttakendur
í þessu Loop-kerfi.
Þegar vel nýtt á Indlandi
Það er áhugavert að skoða hvernig
staðið er að þessum málum í ólíkum
löndum og Indland er á allt öðrum stað
en t.d. Kanada. Ástæðan er sú að þar
er enn mikið um fullvinnslu matvæla
á hverju heimili og þar fellur minna til
af úrgangi en ella.
Enn fremur er þar hátt hlutfall
nautgripa um nánast allt land, sem
m.a. skýrist af trúarlegum ástæðum,
og þessir nautgripir ganga um lausir og
éta nánast allt sem þeir komast í. Það er
því ekki beint heilfóðrun þar sem leysir
málið heldur hungraðir nautgripir sem
gæða sér á úrganginum áður en hann
nær því að verða ónýtur. Þetta skilar
sér þó líklega síður sem lækkun á
heildarsótspori enda eru indverskir
nautgripir afurðalitlir og oft ekki einu
sinni nýttir til annars en dýrkunar.
Þurrka matarúrgang
I Indlandi er þó áhugavert verkefni í
gangi, en það snýr að því að þurrka
matarúrgang við stýrðar aðstæður og
breyta honum þannig í fóður fyrir
nautgripi. Aðferðin gerir það að
verkum að bæði er hægt að staðla
fóðrið og lengja nýtingartíma þess
enda skemmist það síður ef það er
þurrkað. Þetta er nýstárleg aðferð
sem gæti reynst einkar áhugaverð
ef vel gengur og má sjá fyrir sér
slíka lausn notaða á Íslandi, þar sem
bændur búa dreift.
Regluverk þarf að breytast
Innan Evrópusambandsins hefur
þróunin á því að nýta úrgang í
fóður verið heldur hægari en í
framangreindum löndum og felst
skýringin í fæðuöryggissjónarmiðum.
Þar á bæ hafa sérfræðingar enn
áhyggjur af því að ekki takist að gera
ferlið nógu gagnsætt og þar með
geti skapast hætta á því að ekki sé
hægt að tryggja öryggi matvælanna,
þ.e. kjöts og mjólkur, sem framleitt
yrði með úrganginum. Regluverkið
dregur þannig, a.m.k. enn sem komið
er, úr hraðri þróun á þessu en unnið
er að lausn málsins enda brýnt að
finna lausn sem horfir heildrænt á
ferlið svo hægt sé að nýta enn betur
það sem framleitt er í dag.
Fóðuráætlanir nauðsynlegar
Þegar komið hefur verið á fót kerfi
til að safna og dreifa matarleifum og
-úrgangi þarf að blanda fóðrið rétt eins
og áður segir. Hér þarf því að koma til
nokkuð viðamikil upplýsingaöflun um
helstu virku næringarefni sem finna
má í hinum söfnuðu fóðurefnum og
svo þurfa sérfræðingar í fóðrun að gera
uppskrift að réttri fóðurblöndu fyrir
nautgripina.
Þetta kann að virka svolítið flókið
en er í raun frekar einfalt, sé flokkun
úrgangsins og matarleifanna rétt
gerð, þá er næringarefnainnihaldið
nokkuð stöðugt í hinum mismunandi
úrgangsflokkum.
Hvað er fram undan?
Það er líklega þónokkuð löng leið
sem þarf að fara þar til raunverulega
góð nýting fæst á úrgangi sem nýta
mætti sem fóður. Auðveldast er að nýta
úrgang frá hvers konar matvælavinnslu
eða -framleiðslu, en erfiðara er að eiga
við nýtingu á matvælum sem t.d. eru
runnin út á tíma í verslunum og/eða
heimilum.
Lausnin á þessu gæti þó komið
fyrr en síðar, enda er verið að horfa á
þessi atriði í ótal löndum og einungis
tímaspursmál hvenær heppileg
lausn finnst. Dæmið frá Kanada
sýnir m.a. að þetta er hægt upp að
ákveðnu marki og með þurrkun eins
og verið er að vinna með í Indlandi
gæti farvegur verið kominn fyrir
mun betri hringrás næringarefna en
nú er, með því að nýta úrgang sem
fóður fyrir skepnur í stað þess að
hann endi sem molta eða landfylling.
Byggt að hluta til á greininni
„From the US to India and turning
food waste into milk“,
Dairy Global 23-06-2021
Nautgripir geta nýtt
matarleifar og -úrgang
Þó svo að nautgripum megi gefa alls konar matarafganga beint, eins og hér má sjá, er mælt með því að blanda
þeim saman við gróffóður í svokallað heilfóður. Mynd / Loop
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com