Bændablaðið - 13.06.2024, Page 54
54 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024
Bændablaðið fékk til prufu
minnsta sendibílinn frá Mercedes
Benz í Business Pro útfærslu. Þetta
er praktískur bíll sem er í sama
stærðarflokki og Volkswagen
Caddy og Citroën Berlingo.
Þegar horft er á Citan frá réttu
sjónarhorni að framan væri hægt að
rugla honum saman við aðra fólksbíla
frá Mercedes Benz. Frá öllum öðrum
hliðum væri skiljanlegt ef menn tækju
feil á þessum og Renault Kangoo.
Það er ekki leiðum að líkjast, enda
framleiðir Benz þennan bíl í nánu
samstarfi við Renault.
Eins og lítill Sprinter
Samkvæmt upplýsingum frá
umboðinu liggur munurinn á þessum
tveimur bílum helst í innréttingunni,
en þar má sjá ættareinkenni frá
þeim þýsku, eins og hringlaga op á
miðstöð sem minna á þotuhreyfla. Sé
horft á neðri hluta innréttingarinnar
er erfitt að sjá mun á þessum og
Renault Kangoo. Þrátt fyrir það er
auðvelt að ímynda sér að setið sé í
smækkaðri útgáfu af nýjustu Sprinter
sendibílunum.
Stýrið er afar vandað og klætt
með efni sem minnir á mjúkt
leður. Þar eru takkar fyrir helstu
skipanir og er hægt að fletta í
gegnum margmiðlunarskjáinn
með lítilli snertimús við þumalinn.
Ökumannssætið er vel mótað og
hæðarstillanlegt. Enn fremur er
ágætur aðdráttur í stýri, þannig að
fólk af flestum stærðum ætti að geta
komið sér vel fyrir. Engar stillingar
eru á farþegasætinu, en það er mjúkt
og prýðilega þægilegt.
Margmiðlunarskjárinn er afar
sambærilegur þeim sem eru í öðrum
vinnubílum frá Mercedes Benz. Hann
er snöggur og einfaldur, sama hvort
hann er notaður sem snertiskjár eða
stuðst sé við snertimúsina í stýrinu.
Það er hægt að tengja símann með
Android Auto og Apple CarPlay, að
því gefnu að maður muni eftir að taka
með sér snúru.
Ekkert mál að bakka
Í litlum sendibílum er ósjaldan fullt
af sniðugum lausnum til að auðvelda
vinnandi fólki lífið, eins og tölvuborð
eða hleri aftur í farangursrýmið. Þessi
er lítið af slíku fyrir utan að auðvelt
er að fella niður farþegasætið og fá
alveg flatt geymslupláss sem virðist
geta borið nokkurn þunga.
Þá er nóg af geymsluplássi
í farþegarýminu, en fyrir ofan
sólskyggnin er hilla þar sem er
hægt að týna haug af kvittunum og
öðru smáu. Fyrir ofan hraðamælinn
er lokað hólf sem rúmar tvær
samlokur, ásamt því sem hurðirnar
geyma rúmgóða vasa. Hanskahólfið
er af meðalstærð.
Hægt er að opna afturhurðirnar
í allt að 180 gráður og skilja minni
hlerann eftir opinn í 90 gráðum
í akstri þegar flytja þarf löng
borð eða pípur. Hann kemur með
rennihurðum á báðum hliðum og er
rétt að nefna að í lengri útgáfunni
eru þær nógu stórar til að hægt sé
að setja inn EURO-bretti. Annars
er fátt um farangursrýmið að segja.
Þetta er stórt kassalaga hólf skilið
frá farþegarýminu með öflugu þili.
Þrátt fyrir að afturrúðurnar séu
engar kom þessi bíll útbúinn með
baksýnisspegli sem mun helst
gagnast í að fylgjast með hvort
hárgreiðslan sé í lagi. Sem betur fer
er Citan með góða bakkskynjara og
myndavél sem sýnir víða mynd aftur
og til hliða. Því er auðvelt að bakka
úr stæði og átta sig á umferð sem
kemur frá hlið.
Business Pro útfærslan kemur
með afar skilvirkri blindpunkts-
viðvörun sem lætur vita ef öku-
maðurinn er við það að keyra í
hliðina á öðrum bíl þegar skipt
er um akrein. Akstursaðstoðin í
þessum bíl er að öðru leyti nokkuð
takmörkuð, en hann er útbúinn
hraðastilli sem aðlagar sig ekki að
aksturshraða bílsins fyrir framan.
Vinalegt dísil-mal
Lyklalausa aðgengið er afbragð.
Notandinn þarf aldrei að taka
lykilinn úr vasanum og er bíllinn
alltaf fljótur að fara úr lás þegar
gengið er að honum og snöggur að
læsa sér þegar farið er í burtu. Þetta
er eiginleiki sem sendlar og aðrir sem
þurfa oft að stökkva úr bílnum ættu
að verða þakklátir fyrir.
Bifreiðin er ræst með hnappi og
heyrist vinalegt dísil-mal í vélinni.
Bíllinn í þessum prufuakstri var
með sjálfskiptingu sem er afar þíð
og veit ökumaðurinn ekkert af henni.
Strax á fyrstu metrunum finnst að
akstursupplifunin er býsna fáguð og
mikil framför frá eldri gerðinni af
Citan. Bíllinn er nokkuð hljóðlátur,
fyrir utan smá glym sem berst úr
farangursrýminu. Fjöðrunin er
mjúk og er hægt að keyra nokkuð
áhyggjulaus yfir hraðahindranir.
Veghæðin er jafnframt talsvert
meiri en á hefðbundnum fólksbílum,
sem kemur sér vel þegar skrölt
er yfir grófar akstursleiðir á
framkvæmdasvæðum.
Að lokum
Citan kemur með margreyndri 1,5
lítra dísilvél sem hefur verið notuð
í fjölmarga bíla frá Renault–Nissan–
Mitsubishi samsteypunni og nokkra
minni bíla frá Mercedes Benz. Þar
má nefna Nissan Qashqai, Dacia
Duster og Mercedes Benz A-Class.
Einn af hennar helstu kostum er
mikið tog á lágum snúningum, sem
finnst sérstaklega vel á beinskiptum
bílum.
Hérna skilar vélin 95 hestöflum
og 260 newton metra togi.
Beinskipti bíllinn eyðir 5,3 lítrum
á hundraði á meðan sá sjálfskipti
eyðir 5,6. Styttri bíllinn er 4.498
millimetrar að lengd, á meðan sá
lengri er 4.922. Báðir eru 1.802
mm á breidd án spegla og 1.832 á
hæð án loftnets. Beinskiptur Citan í
Basic útfærslu kostar frá 3.943.548
krónur án vsk. Sá sem tekinn
var fyrir hér var styttri gerðin af
sjálfskiptum Citan í Business Pro
útfæslunni og kostar frá 4.911.290
krónum án vsk. Hægt er að fá allar
gerðir í lengri útfærslu sem kostar
300.000 krónur aukalega.
Citan er sendibíll fyrir iðnaðar-
menn sem vilja smá Benz í lífið.
Hann kemur á samkeppnishæfu
verði og stenst vel samanburð.
Nánari upplýsingar er hægt að
fá hjá Öskju, söluaðila Mercedes
Benz á Íslandi.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Mercedes Benz Citan sendiferðabíl
Citan býður vinnandi fólki upp á smá skammt af Benz í líf þeirra á verði sem er ekki hærra en hjá öðrum framleiðendum sendibíla. Að framan sjást greinileg
ættartengsl við aðra bíla frá sama framleiðanda. Myndir / ál
Sé horft aftan á bílinn væri auðvelt að rugla honum við Renault Kangoo, en
Citan er framleiddur í nánu samstarfi við franska fyrirtækið.
Vélabásinn:
Fyrir fágaða iðnaðarmenn
Innréttingin er greinilega Benz ef horft er á efri hluta hennar. Neðri
helmingurinn er nánast óþekkjanlegur frá Kangoo.
Farangursrýmið er stór og einfaldur kassi.