Bændablaðið - 13.06.2024, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024Líf & starf
Nafnið á þessu fallega vesti rímar
ekki við þá sól og gleði sem við
ætlum að fá í sumar. Vesti eru
gríðarlega vinsæl núna.
Þetta vesti úr DROPS Alpaca
og DROPS Kid-Silk, en hægt er að
velja hvaða garn í garnflokki A í stað
Drops Alpaca eða nota 1 þráð af garni
í garnflokki C. Stykkið er prjónað
neðan frá og upp með köðlum, klauf
í hliðum og skáhallandi öxl.
DROPS Design: Mynstur z-1027
Stærðir: XS (S) M (L) XL (XXL)
Yfirvídd: 80 (88) 96 (106) 114
(132) cm
Garn:DROPS ALPACA fæst í
Handverkskúnst (tilheyrir garnflokki
A) 200 (200) 250 (350) 300 (300) g
litur á mynd nr 9030, pistasíuís
Og notið: DROPS KID-SILK fæst í
Handverkskúnst (tilheyrir garnflokki
A) 75 (100) 100 (100) 125 (125) g
litur á mynd nr 47, pistasíuís
Prjónar: Hringprjónn 80 cm, nr 3,5
og 4,5. Hringprjónn 40 cm nr 3,5.
Prjónfesta: 18 lykkjur á breidd
og 24 umferðir á hæð með sléttu
prjóni með 1 þræði í hvorri tegund
= 10x10 cm.
VESTI - STUTT ÚTSKÝRING
Á STYKKI: Stykkið er prjónað
fram og til baka. Framstykkið og
bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig.
Prjónað er neðan frá og upp og fram-
og bakstykkið er saumað saman. Í
lokin er prjónaður upp kantur í
hálsmáli sem brotinn er tvöfalt.
BAKSTYKKI: Fitjið upp 102
(114) 126 (134) 146 (166) lykkjur
á hringprjón nr 3,5 með 1 þræði
af hvorri tegund. Prjónið 1 umferð
brugðið frá röngu. Prjónið stroff
með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið 2 lykkjur garðaprjón
(allar umferðir prjónaðar slétt),
prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2
lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru
eftir af umferð, prjónið 2 lykkjur
slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff þar
til stykkið mælist 7 (7) 7 (8) 8 (8)
cm.
Skiptið yfir á hringprjón nr
4,5, prjónið 1 umferð brugðið frá
röngu (kantlykkjur halda áfram í
garðaprjóni) og fækkið um 9 (11)
13 (11) 13 (13) lykkjur jafnt yfir
= 93 (103) 113 (123) 133 (153)
lykkjur. Nú er prjónað mynstur frá
réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni,
prjónið A.1 alls 9 (10) 11 (12) 13
(15) sinnum, endið með fyrstu
lykkju í A.1 þannig að mynstrið
verði alveg eins í hvorri hlið og 1
lykkju í garðaprjóni. Haldið svona
áfram með mynstur þar til stykkið
mælist 23 (24) 25 (26) 27 (28)
cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur fyrir
kant á ermi í lok 2 næstu umferða
= 103 (113) 123 (133) 143 (163)
lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar
í garðaprjóni að loka máli.
Þegar stykkið mælist 44 (46) 48
(50) 52 (54) cm, setjið miðju 35 (37)
39 (41) 43 (45) lykkjur á þráð fyrir
hálsmáli = 34 (38) 42 (46) 50 (59)
lykkjur eftir á hvorri öxl. Hvor öxl
er prjónuð til loka fyrir sig.
Skáhallandi öxl: Í næstu umferð
frá hlið eru felldar af fyrstu 5
lykkjur (kantur á ermi). Nú eru
prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl
þannig að axlirnar fái betra form
og passi betur, með byrjun í næstu
umferð frá hlið / handvegi þannig:
Haldið áfram með A.1 og setjið ystu
lykkjur við handveg á þráð fyrir
skáhallandi öxl, en til að koma í
veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn
frá sem prjónað er með, prjónið
lykkjurnar áður en þær eru settar á
þráðinn. Setjið 8 (9) 10 (11) 12 (14)
lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan
síðustu 5 (6) 7 (8) 9 (12) lykkjur
á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið
felldar af eða settar á þráð. Setjið til
baka 29 (33) 37 (41) 45 (54) lykkjur
af þræði á hringprjón nr 4,5. Prjónið
1 umferð sléttprjón, en til að koma
í veg fyrir göt þar sem snúið er við
mitt í handvegi, takið þráðinn upp
á milli 2 lykkja og prjónið saman
með fyrstu lykkju á vinstri prjóni.
Fellið síðan laust af allar lykkjur.
Stykkið mælist ca 48 (50) 52 (54)
56 (58) cm frá uppfitjunarkanti að
efsta punkti á öxl. Prjónið hina
öxlina á sama hátt.
Framstykki: Fitjið upp og prjónið
á sama hátt og bakstykki þar til
stykkið mælist 42 (44) 46 (46) 48
(50) cm = 103 (113) 123 (133) 143
(163) lykkjur. Nú eru miðju 27 (29)
31 (33) 35 (37) lykkjur settar á þráð
og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir
sig eins og útskýrt er að neðan.
Yfirlit yfir næsta kafla: Fækkið
lykkjum fyrir hálsmáli og setjið
lykkjur á þráð fyrir skáhallandi
öxl eins og útskýrt er að neðan.
Lestu kaflann HÁLSMÁL og
SKÁHALLANDI ÖXL áður en
prjónað er áfram.
Hálsmál: Fækkið um 1 lykkju fyrir
hálsmáli í hverri umferð frá réttu
alls 4 sinnum. Þegar lykkjum er
fækkað í A.1, prjónið sléttar lykkjur
yfir sléttar lykkjur og brugðnar
lykkjur yfir brugðnar lykkjur,
lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í
heilan kaðal eru prjónaðar brugðið.
Frágangur: Saumið axlasauma.
Saumið hliðarsauma niður að stroffi
= klauf í hliðum.
Tvöfaldur kantur í hálsmáli:
Byrjið frá réttu við aðra öxlina og
prjónið upp ca 80 til 104 lykkjur í
kringum hálsmál (ásamt lykkjum
af þræði), á stuttan hringprjón
nr 3,5. Lykkjufjöldinn á að vera
deilanlegur með 2. Prjónið stroff
(= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið)
hringinn í 8 cm. Fellið af aðeins
laust. Brjótið stroffið niður að
innanverðu á stykki og saumið
niður með nokkrum sporum.
Prjónakveðja,
stelpurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
SAMANBRJÓTANLEGUR
ÁLHJÓLAPALLUR 60CM
Pallurinn er með standhæð 196cm og vinnuhæð 396cm og breidd er 50cm
www.byko.is/leiga | leiga@byko.is | 515-4020
59.995
89.995
-3
3%
VNR. 50190824
Hannyrðir:
September-rigning Lyftið 1 lykkju af
prjóni, prjónið 2
lykkjur slétt, steypið
lyftu lykkjunni yfir lykkjur sem voru
prjónaðar.
Engin lykkja þar sem búið er
að fækka um þessar lykkjur
áður, hoppið yfir í næstu rúðu
í mynsturteikningu.
Á milli 2 lykkja er slegið
1 sinni upp á prjóninn,
í næstu umferð er upp-
slátturinn prjónaður brugðið, það á
að myndast gat.
Slétt lykkja frá réttu, brugðin
lykkja frá röngu.
Brugðin lykkja frá réttu, slétt
lykkja frá röngu.
Klettagörðum 11 - 104 Reykjavík - meiraprof.is - meiraprof@meiraprof.is
Réttindin gilda
í Evrópu
Auknir atvinnumöguleikar
Íslensk og ensk námskeið
C-CE-D-C1-C1E-B/Far
Skráning á námskeið er
inni á síðunni meiraprof.is
Fyrirspurnir sendist á
meiraprof@meiraprof.is
Íslensk námskeið mánaðarlega
Ensk námskeið 4 - 6 sinnum á ári