Bændablaðið - 13.06.2024, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024Viðtal
Þorvaldur Kristjánsson er að snúa
til baka eftir þriggja ára fjarveru
sem hrossaræktarráðunautur hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
og ræktunarleiðtogi íslenska
hestsins.
Þorvaldur er öllum hnútum
kunnugur innan hrossaræktarinnar
en hann hóf störf sem ábyrgðarmaður
hrossaræktar hjá RML í ársbyrjun
2015 og sinnti starfi ræktunarleiðtoga
þangað til 2020 þegar hann sagði
starfi sínu lausu.
„Ég stökk í að hjálpa móður minni
í hennar rekstri og ætlaði að gera það
áfram. Síðan var staðan auglýst eftir
jólin og það var möguleiki fyrir mig
að taka þetta að mér aftur á þessum
tímapunkti þannig ég ákvað að slá
til. Ég hef alltaf haft mestan áhuga á
hrossaræktinni. Ég er búinn að vera
virkur í ýmsum þáttum síðan ég hætti
og úr því staðan losnaði var spennandi
að kýla á það aftur,“ segir Þorvaldur
en verkefni á hrossaræktarsviði eru
mörg og ýmislegt sem bíður hans
Þorvaldar og samstarfsmönnum á
næstu misserum.
Þróun WorldFengs eitt
af stærstu verkefnum
Á ársþingi FEIF í byrjun ársins
var samþykkt að skapa sterkari
tekjugrundvöll fyrir uppruna-
ættbókina WorldFeng með það að
markmiði að koma gagnagrunninum
í nútímalegra horf. Þorvaldur telur
það eitt af forgangsverkefnum ársins.
„WorldFengur er í sama for-
ritunar umhverfi frá því hann var
stofnaður og það þarf að byrja á því
að koma honum yfir í nýtt umhverfi
sem býður upp á fleiri möguleika.
Grunnverkefni sem þarf að leysa
og gera gagnagrunninn að betra
úrvalstæki fyrir ræktendur íslenska
hestsins.“ Í því felist t.a.m. að bæta
leitarmöguleika ræktenda og auka
myndræna framsetningu.
Stöndum vörð um
erfðafjölbreytileikann
Erfðafjölbreytileiki stofnsins er
Þorvaldi hugleikinn. Hann telur
brýnt að móta stefnu um vernd
erfðafjölbreytileikans til framtíðar,
íslenskri hrossarækt til framdráttar.
„Við megum ekki gleyma því
að við erum að rækta íslenska
hestinn í lokuðum erfðahópi hér
á Íslandi. Við þurfum að fara að
taka afstöðu til þess fljótlega með
hvaða hætti við ætlum að vernda
erfðafjölbreytileikann hér á landi.
Við erum að sigla inn í tímabil þar
sem sæðingar eru að verða notaðar
í meira mæli. Það er verðmætt að
dreifa notkun á stóðhestum meira
en við erum að gera. Tiltölulega
fáir hestar fá mikla notkun og svo
margir góðir fyrstu verðlauna hestar
sem fá of litla notkun. Nú er líka
kannski sú staða að koma upp að við
erum að fara að flytja út erfðaefni í
ríkara mæli ef við förum að flytja
út fryst sæði. Þá þarf líka að taka
afstöðu til þess hvort við ætlum
að leyfa innflutning á erfðaefni.
Þannig eru mörg mál varðandi
erfðafjölbreytileika sem við þurfum
að fara að ræða og marka stefnu til
framtíðar. Kannski það sé stærsta
áskorun okkar til framtíðar að standa
vörð um erfðafjölbreytileikann
þannig að stofninn verði ekki of
einsleitur hjá okkur.“
Aukin samskipti við ræktendur
Efst á baugi hjá þeim sem stunda
hrossarækt eru gjarnan kynbóta-
sýningar og allt sem þeim tengist.
Hrossarækt og kynbótasýningar eru
í eðli sínu samstarfsverkefni á milli
ræktenda, sýnenda og starfsfólks
kynbótasýninga að sögn Þorvaldar.
„Engar nýjar áherslur eru kynntar
fyrir sumarið, hvorki í dómum né
kynbótamati. Það verður hefðbundið
sumar. En svo í haust er ýmislegt í
kringum kynbótamatið sem þarf að
velta fyrir sér og þróun þess. Stærsta
verkefnið verður að ákveða með
hvaða hætti keppnisgögnin verða
nýtt inn í kynbótamatið. Þar liggja
spennandi niðurstöður fyrir sem
þarf að taka afstöðu til og sjá með
hvaða hætti best sé að matreiða
þær,“ segir Þorvaldur en þar er stór
gagnauppspretta sem er ónýtt.
Áframhaldandi vinna verður í
kringum kynbótastarfið enda að
ýmsu að hyggja varðandi þróun
dómskerfisins.
„Það voru gerðar nokkrar
breytingar á dómkerfinu árið 2020,
eins og fólk veit, og nú er verkefnið
að halda áfram þessari þróun og
fara yfir hvernig til hefur tekist.
Við þurfum að einfalda vissa hluti í
matinu og passa að kynbótadómurinn
verði sem aðgengilegastur.
Við viljum vera sífellt að
betrumbæta kerfið okkar og það
í samstarfi við ræktendur. Ég hef
reynt að vera í góðum samskiptum
við ræktendur og tók þann pól
í hæðina þegar ég byrjaði núna í
vor að halda námskeið. Það var
mikil eftirspurn eftir fræðslu og
hef ég verið að fara um og halda
námskeið og hitta mikið af fólki. Í
heildina er ánægja með dómkerfið
sem slíkt en kynbótakerfið hefur
verið að slípast til í áratugi. Kerfið
heldur vel utan um hrossaræktina
en það er alltaf mikilvægt að hlusta
á gagnrýnisraddir og halda áfram
þessari góðu vinnu sem hefur átt
sér stað.“
Auka mætingu til dóms
Mæting hrossa til kynbótadóms er
oft á milli tannanna á fólki og eru
margir á þeirri skoðun að forvalið
sé alltaf að verða meira og meira.
Þannig var fjöldinn á síðasta ári undir
væntingum en færri en þúsund hross
hlutu fullnaðardóm.
„Þetta hefur farið niður á við
undanfarin ár. Þetta er eitt af
þessum verkefnum sem við þurfum
að fara í og það er hreinlega að
markaðssetja kynbótadóma betur og
sýna fólki fram á mikilvægi þeirra.
Mín draumsýn er að ríkið styðji við
kynbótadóma hrossa eins og þeir gera
í öðrum búgreinum. Ég sé fyrir mér
í framtíðinni að fyrsti dómur kosti
ekki neitt, dómar á ungum hrossum
kosti lítið og dómar á þeim eldri séu
á kostnaðarverði,“ segir Þorvaldur og
bætir við að þeir sem sýna hross búi
til verðmætustu upplýsingar í kerfinu.
„Við þurfum að nýta okkur kerfið
til að búa til hvata í því að fleiri hross
séu sýnd.“
Of fáar sýndar hryssur í ræktun
Samkvæmt Þorvaldi eru um 11
prósent af hryssum á tamningaaldri
sýnd og 5 prósent af stóðhestunum.
Íslenskir hrossaræktendur standa
ágætlega samanborið við önnur FEIF
lönd. Þá eru um 75 prósent stóðhesta
að koma til dóms fjögurra eða fimm
vetra og er hlutfallið svipað með
hryssurnar, eða um 70 prósent.
„Það er mikilvægt að hlutfallið
sé hæst á hrossum á þessum aldri en
við viljum fá hrossin sem fyrst til
dóms. Ég myndi vilja sjá í framtíðinni
hærra hlutfall af sýndum hryssum
í ræktun. Ef við tökum burt kjöt-
og blóðhryssurnar og skoðum
bara hryssur sem ætlaðar eru í
reiðhestaræktun þá er enn þá um
fimmtíu prósent af þeim hryssum
ósýndar. Þetta hlutfall er síðan enn
lægra í hinum FEIF-löndunum. Þetta
er hópur sem ég myndi vilja einblína
á og fá fleiri sýndar hryssur í ræktun.“
Lítill hópur af vel þjálfuðu fólki
Þó er ekki bara mæting til kynbóta-
dóms sem liggur hrossaræktendum á
hjarta heldur er það líka hið umtalaða
samræmi.
„Eðlilegt er að það sé eitt af
aðalumræðuefnunum enda er það
stærsta vinnan við öll dómkerfi að
það sé gott samræmi. Við vinnum í
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 13. febrúar 2024 að auglýsa
tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 við Mjólká,
skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Markmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að heimila aukna nýtingu vatnsorku
á vatnasviði Mjólkár og þar með auka raforkuframleiðslu Mjólkárvirkjunar, bæta
afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum, að skapa aðstöðu fyrir afgreiðslu og
framleiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti við Mjólkárvirkjun, að bæta hafnaraðstöðu
í sunnanverðum Borgarfirði og að lágmarka rask vegna skipulagsbreytinganna.
Stækkun Mjólkárvirkjunar mun leiða til aukinnar raforkuframleiðslu og
bæta afhendingaröryggi raforku á þjónustusvæði virkjunarinnar. Uppsetning
afgreiðslustöðvar fyrir endurnýjanlegt eldsneyti og bætt hafnaraðstaða eru
viðbrögð við aukinni umferð um Borgarfjörð, orkuskiptum í samgöngum
og vexti í atvinnulífinu, einkum ferðaþjónustu og fiskeldi.
Breytingartillagan, uppdráttur og greinargerð ásamt umhverfisskýrslu, er
aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 833/2023
og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar: www.isafjordur.is, frá 24. maí 2024
til og með 10. júlí 2024.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur
á að gera athugasemd við tillöguna til og með miðvikudagsins 10. júlí 2024.
Athugasemdum skal skilað í Skipulagsgáttina
https://skipulagsgatt.is/issues/2023/833 eða senda skriflega til Ísafjarðarbæjar,
Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, b.t. skipulagsfulltrúa eða á skipulag@isafjordur.is .
Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar.
Tillaga að breytingu
á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar
2008-2020 við Mjólká
Stækkun virkjunar, afhending grænnar orku
og ný bryggja.
„Íslensk hrossarækt er á
heimsmælikvarða“
– Endurkoma Þorvaldar Kristjánssonar í hlutverk ræktunarleiðtoga
Hulda Finnsdóttir
hulda@bondi.is
Þorvaldur telur brýnt að móta stefnu um vernd erfðafjölbreytileika í íslenska hestinum. Mynd /Jonatan Pie
Þorvaldur Kristjánsson.