Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1995, Page 12

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1995, Page 12
10 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1995 Eftirlætisréttur sjómannsins!? KÁLFAKJÖTSRÉTTUR FRÁ ZURICH Vegir Ólsara liggja víða; jafnvel frá íslensku sjávarþorpi undir Jökli alla leið til svissnesku Alpanna, nánar tiltekið til borgarinnar Ziirich en þar heldur heimili með börnum sínum og svissneskum eiginmanni Guðríður Hallmarsdóttir, “Óisari”, dóttir þeirra hjóna Hallmars Thomsen og Kristínar Sigurðardóttur. Blaðamaður Sjómannadagsblaðsins hitti Guðríði að máli á dögunum og bað hana um uppskrift að þarlendum lcvöld- eða hátíðarmat. Guðríður var meira en fus til þess og lét okkur hafa eftirfarandi uppskrift að góðum svissneskum kvöldverði að hætti hússins hennar í Ölpunum. hráefni: 600 g kálfakjöt ( skorið í ræmur) 1/2 tsk salt 1 matsk hveiti 1 tsk. paprikuduft 200 stk nýir sveppir 1-2 stk laukur (e. smekk, jafnvel hvítlaukur) 1 dl hvítvín 1 tsk sítrónusafi 2 dl rjómi 1 dl kjötkraftur (kjötsoð) 1 búnt steinselja hvítur pipar matreiðsla: Kjötið skorið í ræmur og smá hveiti stráð yfir. Kryddað með salti, paprikudufti og pipar. Þá er kjötið steikt við mjög háan hita og síðan haldið heitu. Smjör iátið bráðna á sömu pönnunni og smátt skorinn laukur settur út í. Sveppirnir skornir í grófar sneiðar og settir út á pönnuna, ásamt sítrónusafanum og hvítvíninu. Látið sjóða niður um helming. Síðan er kjötsoðinu bætt út í, einnig rjómanum. Kryddað með salti (eða aromati) og pipar. Steinselju stráð yfir. Efþiðviljið hafa meiri sósu látið þá meiri rjóma og hvítvín og þykkið svo sósuna. Hægt er að breyta þessari uppskrift á alla vegu, t.a.m. nota kjúklingakjöt í stað kálfakjöts. Þá mætti bragðbæta réttinn með vískí, tómatpúrru, rósmarín eða öðrum kryddjurtum. meðlæti: Með þessum rétti er venjulega borinn fram kartöfluréttur sem kallast “Rösti”, sem er eins konar stökk kartöflupönnukaka. Einnig er viðeigandi að hafa hrísgrjón með hvítlauksbrauði eða “pasta” eða “pastanúðlum”. Þá er ómissandi að hafa með því parmesan ost til að strá ofan á hrísgrjónin eða pastað. uppskrift “Rösti” lkg kartöflur 1 stór/saxaður laukur olía til steikingar salt og pipar matreiðsla: Kartöflurnar eru soðnar daginn áður. Þá rifnar niður á rifjárni. Olían er hituð á þykkbotna pönnu. Laukurinn er léttsteiktur í 2-3 mínútur. Því næst er kartöflunum bætt á pönnuna og blandað saman við laukinn. Kryddað með salti og pipar. Mótað á pönnunni eins og stór pönnukaka. Látið krauma í ca. 15 mínútur á hvorri hlið. Borið fram heitt. Til eru margar gerðir af “Rösti” í Sviss. T.d. er mjög gott að bæta ca. 150 gr. af niðursneiddu beikoni saman við laukinn og bera síðan “Rösti” fram með spældu eggi ofan á og þá sem aðalrétt. Guten Appitit! Guðríður Hallmarsdóttir

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.