Börn og menning - 2024, Page 4

Börn og menning - 2024, Page 4
2 b&m FRÉTTIR AF ibby Þessa tímarits hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Loksins lítur dagsins ljós nýtt tímarit með nýjum ritstjóra, Erlu Elíasdóttur Völu- dóttur. Við vonum að þið, kæru lesendur, handleikið og lesið tímaritið af sömu ánægju og við í stjórn IBBY og að greinarnar veki jafnt áhuga sem fróðleiksþorsta. IBBY hlaut styrk frá menningar-, íþrótta- og tómstunda- ráði Reykjavíkur fyrir útgáfu tímaritsins og erum við ævarandi þakklát Reykjavíkurborg fyrir stuðninginn. Styrkurinn gerir okkur kleift að gefa út veglegra tímarit en áður og hefja vinnu við gerð vefsíðu sem mun hýsa eldri greinar og bókarýni sem hefur birst í tímaritinu í gegnum árin. Árið 2023 fór ekki blíðum höndum um starf IBBY. Við náðum þó að gera flest það sem okkur langaði og höfum gert í gegnum árin, en tíma- ritið Börn og menning kom ekki út það ár vegna skorts á fjármagni. Út- gáfa tímaritsins er stærsti kostnaðarliður félagsins. Við notuðum tæki- færið til að endurskipuleggja, breyta og bæta. Tímaritið mun nú koma út einu sinni á ári en stefnan er að það verði veglegra og meiri áhersla verði á bókarýni á barna- og unglingabókum en áður. Þrátt fyrir fjárhagskröggur var starfið engu að síður blómlegt og fjöldi verkefna leit dagsins ljós árið 2023 eins og önnur ár. Við byrjuðum starfsárið á að tilnefna íslenskan barnabókahöfund, mynd- höfund og þýðanda á heiðurslista IBBY. Gunnar Helgason fékk tilnefn- ingu fyrir bók sína Bannað að eyðileggja, Elías Rúni fékk tilnefningu fyrir myndlýsingar sínar í Vísindalæsi-bókunum, nánar tiltekið fyrir bókina Sólkerfið, og Guðrún Hannesdóttir, ljóðskáld og þýðandi, fékk tilnefn- ingu fyrir þýðingu sína á bókinni Dinna í blíðu og stríðu. Bækurnar munu ferðast um allan heim á stórri alþjóðlegri sýningu og vekja verðskuldaða athygli utan landsteinanna. Í október 2023 fór alþjóðlega barna- og unglingabókmenntahátíðin Mýrin fram í Norræna húsinu í tíunda sinn. Hátíðin er haldin annað

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.