Börn og menning - 2024, Blaðsíða 12

Börn og menning - 2024, Blaðsíða 12
10 b&m og töfrar fram ný föt á hana með sínum eigin fötum og efniviði úr umhverfinu. Líkt og í fyrri bókinni, Júlían er hafmeyja, skín í gegn hvað drengurinn er frjáls undan viðteknum hugmyndum um það sem er „rétt“ eða „viðeigandi“. Hlýja, virðing og töfrar Í bókinni verða mikilvæg þáttaskil þegar hinar full- orðnu koma inn í heim barnanna – ömmurnar stíga bókstaflega inn í ævintýraheiminn sem þau hafa skapað inni í „álfahúsi“ úr slútandi trjágróðri. Rétt eins og í fyrri bókinni eru það jákvæð viðbrögð hinna fullorðnu við uppátækjum og hugmyndaflugi barnanna sem gæða söguna einstakri hlýju. Amma Marísólar bendir telpunni á að jú, hún hafi vissulega óhreinkað fötin sín, en í staðinn hafi hún eignast vængi. Úrræðasemi Júlíans og Marísólar er hrósað í stað þess að innræta þeim skömm og börnunum er sýnd uppbyggileg virðing. Eins og fram kemur í bókinni er brúðkaup sann- kölluð ástarveisla og ástin er í þessu tilfelli ekki að- eins á milli kvennanna tveggja sem eru að ganga í hjónaband heldur birtist heilt kærleiksríkt samfélag á síðum sögunnar. Hér er sterk tilfinning fyrir sam- heldnum hópi þar sem konur og börn eru í for- grunni þótt einnig séu einhverjir karlar meðal gesta. Fjölbreytileikinn fær að njóta sín án þess að um hann sé sérstaklega fjallað – hann er einfaldlega stað- reynd. Vináttan milli eldri kvennanna endurspeglast í nýfæddri vináttu barnanna og fullorðinn lesandi getur jafnvel séð ömmurnar fyrir sér í svipuðum að- stæðum sem börn – að rannsaka, skapa og leika sér saman, leggja grunninn að sambandi til framtíðar. Leikgleði og litadýrð Í skemmtilegu viðtali Jóhannesar Ólafssonar við höfundinn á Rás 1 í október 2023 kom fram að Jessica Love starfaði áður sem leikkona. Vitund leik- arans um líkamstjáningu sést enda vel í teikningum hennar; línurnar í líkama persónanna eru dýna- mískar og í myndunum er mikil hreyfing – sem um- breytist þó stundum í kraftmikla kyrrð, þegar við á. Eitt höfuðeinkenni bókarinnar er bakgrunnslit- urinn á síðunum, sem er brúnn og minnir helst á umbúðapappír. Þessi grunnur hefur mikil áhrif á heildar svipinn og hvernig aðrir litir birtast á síð- unum. Brúni liturinn lyftir til dæmis fjólubláum, gulum og hvítum, sem eru aðrir áberandi litir í sög- unni, og heldur fallega utan um heim bókarinnar. Töfrarnir sem börnin sjá í umhverfinu eru þannig einnig til staðar í verkinu sjálfu. Ragnhildur Guðmundsdóttir þýðir bókina á ís- lensku. Í henni er lítill texti en Ragnheiður kemur honum vel til skila. Helst mætti setja spurningar- merki við þýðinguna á titlinum en greinirinn kemur dálítið undarlega út á íslensku. Í bókum Jessicu Love er hjartavermandi fögnuður. Hún fagnar fjölbreytileika, hugmyndaauðgi og óhefðbundnum hugsanagangi. Persónulega verð ég gjarnan þreytt á boðskapskröfunni sem margir gera til barnabóka en í þessu tilfelli fara saman falleg, frumleg efnistök og brýnt innihald. Ég las Júlían í brúðkaupinu fyrir fimm ára son minn sem hafði gaman af, enda deilir hann áhuga og hæfileika Júlí- ans til að umbreyta hlutum á skapandi hátt og svið- setja hið ævintýralega í hversdeginum. Morguninn eftir var hann sjálfur sestur með bókina og horfinn inn í hana á eigin spýtur, sem er ávallt til merkis um einlæga hrifningu. Börn allt frá tveggja ára aldri og langt upp úr ættu að geta notið þess að halda á vit töfranna með Júlían og Marísól. Höfundur er leikskáld og þýðandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.