Börn og menning - 2024, Qupperneq 27

Börn og menning - 2024, Qupperneq 27
25 b&m Í viðtali við Morgunblaðið í tilefni af útgáfunni seg- ist Þórarinn hafa lagt mikið upp úr því að vera trúr frumtextanum og talið þýðingarmikið að halda bragarhættinum nákvæmlega eins og í frumtexta með samsvarandi línulengd, atkvæðafjölda, brag- liðum og rími. Að sama skapi þótti honum ótækt annað en að hafa kyn morrunnar það sama og í upp- runalegum texta Jansson og getur undirrituð tekið undir þau orð hans að það sé jafnréttismál að hafa morruna kvenkyns. Valdalaus skúrkur og stráksleg kven- persóna Það getur kallast jafnréttismál í sjálfu sér að kven- kyns persónur fái að spanna jafn fjölbreytt svið og hinar karlkyns en oft hefur kvenverum verið snið- inn þrengri stakkur en karlverum, í barnaefni sem öðrum skáldskap. Morran er líklega sú persóna í Múmíndal og nágrenni sem kemst næst því að vera viðvarandi skúrkur (þó að þar megi líka finna fleiri ógnvænlegar kvenpersónur, svo sem Kæluna miklu). Kvenpersónur hafa vissulega fengið að vera skúrkar gegnum tíðina, en kvenskúrkarnir hafa þó löngum átt til að vera býsna einvíðir. Dæmi um slíkt eru vondu stjúpurnar sem við þekkjum úr gömlum ævin týrum, persónur sem ganga fyrir að því er virð- ist hreinni illsku og mynda andstæðu við aðra ein- víða persónugerð á hinum enda rófsins – hinar ljúfu og góðu prinsessur. Í meistararitgerð Kristínar Stellu L‘orange í þjóð- fræði við félagsvísindasvið Háskóla Íslands frá árinu 2014 er fjallað um kynhlutverk sígildra ævintýra með áherslu á Hans og Grétu. Þar er meðal annars reifað hvernig sjá megi stjúpmóðurina og nornina sem eina og sömu persónuna og hvernig ævintýri séu háð tíðaranda og siðferðisgildum hvers tíma, sem haft geti áhrif á kynhlutverkin – og það mætti vissu- lega segja um fleiri bókmenntagreinar en ævintýri. Að sögn Kristínar Stellu er talið að kvenhetjan hafi einkum tekið breytingum þegar ævintýri færðust úr munnmælum yfir í bókmenntahefðina. Þá hafi hún hætt að vera úrræðagóð og sjálfstæð og orðið óvirk, sem eins og Kristín Stella bendir á er birtingarmynd sem við þekkjum vel í dag. (141) Ennfremur nefnir Kristín þöggun sem eitt af ein- kennum hinnar stöðluðu kvenhetju, þar sem valda- leysi hennar geti meðal annars birst í málleysi. Þótt © Tove Jansson (1965) Moomin Characters ™
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.