Börn og menning - 2024, Síða 39

Börn og menning - 2024, Síða 39
37 b&m inn að það eru ekki síst tuddarnir sjálfir sem þurfa á hjálpinni að halda. Þessir þræðir barnasamstöðu og baráttu barna fyrir auknum réttindum eru þeir veigamestu í sýningunni, líkt og í bókinni sem hún dregur nafn sitt af. Eitt skemmtilegasta einkenni Fíusólar sem söguper- sónu – og sem minnir vissulega líka á Línu – er líka að hún er aldrei of þæg og góð eða fullkomin fyrir- mynd fyrir önnur börn, sem kemur skýrt fram í sýn- ingunni því að í baráttunni fyrir réttindum barna leynast líka kröfuspjöld sem kalla á meira sjónvarp, meira nammi og minni fisk. Kristín Helga hefur sagt frá því að réttindabarátta Fíusólar sé byggð á því þegar dóttir hennar kærði foreldra sína fyrir umboðsmanni barna. Raunveru- leikinn getur vissulega verið ævintýralegri en nokkur skáldskapur, en höfundurinn hefur líka lýst því að þegar hún skrifaði persónu Teddu, bekkjarsystur Fíusólar sem lendir í erfiðum aðstæðum eftir skilnað foreldra sinna, hafi hún lagt upp með að aðstæð- urnar yrðu nægilega ýktar til þess að engan færi að gruna að hún byggði þær á alvöru fólki. Samt sem áður hafi fólk komið að máli við hana sem þekkti til fjölskyldna í einmitt þessum aðstæðum. Áfram samkennd og samstaða! Leikgerðarhöfundarnir Maríanna Clara Lúthers- dóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir eru báðar leikkonur en Maríanna starfar nú sem dramatúrg við Borgarleikhúsið og Þórunn Arna hefur reynt sig við leikstjórn undanfarin ár með góðum árangri; skemmst er að minnast vinsællar uppsetningar hennar á Emil í Kattholti í Borgarleikhúsinu undan- farna tvo leikvetur. Í viðtali við Ríkisútvarpið sagðist Þórunn vona að börnin í sýningunni tækju þennan boðskap um börn sem létu raddir sína heyrast með sér út í samfélagið, og að hann myndi dreifast áfram – innan fjölskyldna, vinahópa og víðar – svo að fleiri börn fyndu kraftinn til þess að standa með sjálfum sér og taka upp hanskann fyrir aðra sem þyrftu á því að halda. Þetta er gríðarmikilvægt nú á tímum þegar samkennd með öðrum virðist á undanhaldi í heiminum, bæði innan samfélaga og á milli þeirra. Hvernig sem framtíðin verður er í það minnsta víst að hún er barnanna og leiksýningar eins og þessi vekja von um að heimurinn eigi sér kannski viðreisnar von – sérstaklega ef við fullorðna fólkið berum gæfu til að hlusta á börn í auknum mæli, reyna að sjá heiminn með þeirra augum og læra af þeirra sterku og ómenguðu réttlætiskennd. Höfundur er finnskufræðingur, þýðandi og ritstjóri. Ljósmynd af höfundi tók Sunna Ben. Heimildir Anna María Björnsdóttir, 2023, „Heimurinn fer ekki á hliðina þó börnum sé gefin rödd“; birtist á vef Ríkis- útvarpsins 1. desember 2023. Aðgengilegt á slóðinni https://nyr.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2023- 12-01-heimurinn-fer-ekki-a-hlidina-tho-bornum-se- gefin-rodd-398468 Anna María Björnsdóttir, 2023, „Ætlaði að hafa dæmið svo ýkt að það yrði ótrúverðugt“; birtist á vef Ríkisút- varpsins 19. desember 2023. Aðgengilegt á slóðinni https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2023- 12-19-aetladi-ad-hafa-daemid-svo-ykt-ad-thad-vaeri- otruverdugt-399726 Þorgerður E. Sigurðardóttir, 2009, „Fíasól og fjölskyldan í Grasabæ“; birtist í: Börn og menning, 2. tbl. 2009, bls. 13–15. Þórdís Gísladóttir, 2009, „Sögusteinsverðlaunin veitt á alþjóðlegum degi barnabókarinnar“; birtist á: Druslu- bækur og doðrantar 3. apríl 2009. Aðgengilegt á slóðinni https://bokvit.blogspot.com/2009/04/sogusteinsver- launin-veitt-aljolegum.html

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.