Skógræktarritið - 15.05.2020, Side 23
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 21
Skógræktarfélag Íslands (eða annar félags-
skapur /stofnun á Íslandi) taki við rekstri
garðsins frá 1. janúar árið 2000.
Góður afrakstur
Þarna voru gróðursett frætré sem vaxin
voru upp af ágræðslukvistum, sem teknir
voru hér á landi af úrvalstrjám, aðallega
af stafafuru og sitkagreni. Gjöfin kom sér
vel þar sem varla þótti fært að reka slíkan
frægarð á Íslandi vegna óblíðra veðurskil-
yrða. Það líða oft mörg ár milli góðra fræára
í náttúrulegum skógum á Íslandi og þess
vegna skipti þessi gjöf talsvert miklu máli.
Fyrsta fræsendingin úr garðinum kom til
landsins árið 1983, þegar 9 kg af sitkagreni-
fræjum bárust. Vorið 1986 barst hálft kg
til viðbótar og síðar um sumarið bárust
stafafurufræ. Rannsóknarstöðin á Mógilsá
sá um að dreifa fræjunum til skógræktar-
félaga og gróðrarstöðva. Reiknað var með
að af 1 kg af sitkagrenifræjum myndu
vaxa 100 þúsund úrvals trjáplöntur. Á
sem var dagsett 28. júlí 1974: Í tilefni
1100 ára afmælis þess að fyrstu útflytjend-
urnir fóru frá Noregi til Íslands og að 75
ár eru liðin frá því að fyrst var plantað til
skógar á Íslandi vill Det norske gjensidige
Skogbrandforsikrings selskap, Det norske
Skogselskap, Direktoratet for statens
skoger, Mathiesen - Eidsvold Værks Fond,
Norges Skogeierforbund og Skogdirekt-
oratet í umboði Norska skógræktarfélagsins
gefa Skógræktarfélagi Íslands frægarð.
Frægarðurinn, sem er 4 hektarar að stærð,
er á Taraldseyju í Etnesveit. Garðurinn á
fyrst og fremst að framleiða fræ af sitka-
greni og stafafuru, en einnig fræ annarra
trjátegunda, ef um er samið. Taraldseyja er
eign Etnesveitar, sem með samningi frá 5.
mars 1974 hefir leigt Norska skógræktar-
félaginu fyrrgreint land til 60 ára. Gefandinn
greiðir öll útgjöld varðandi frægarðinn,
ásamt reksturskostnaði til ársins 1999, að
undanskilinni söfnun köngla, þreskingu
og hreinsun fræs. Það er gert ráð fyrir að
Fulltrúar á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands skoða myndarlegan nytjaskóg á Héraði. Mynd: Brynjólfur Jónsson