Skógræktarritið - 15.05.2020, Page 64
SKÓGRÆKTARRITIÐ 202062
kassa, fóðurtrogi og loki á sinn stað áður en
flugurnar kæmu.
Svo var það tékklistinn: Galli, hanskar,
stígvél, ósari, brenni, eldspýtur, skafa,
frjódeig, sykurlögur og fleira.
Býflugur á Íslandi nefnast Buckfast
og eru fluttar inn af Bý og koma frá
Álandseyjum. Álandseyjar eru einn af
fáum stöðum í heiminum sem eru með
ósýktar og heilbrigðar flugur. Við erum svo
ótrúlega heppin að geta keypt flugur þaðan
en þangað fer hópur af frábæru fólki eina
ferð að vori til að safna saman flugum,
pakka þeim í kassa, undirbúa fyrir flug og
koma þeim heilum heim. Vorið 2019 komu
rúmlega 70 býflugnabú til landsins.
Ég verð að viðurkenna að ég var frekar
stressuð þegar ég keyrði frá Kópavogi þar
sem flugurnar voru afhentar með tvo kassa
fulla af suðandi flugum. Ég var í raun ekki
viss um hvað ég hafði komið mér út í og að
koma flugunum úr kassanum í býflugna-
búið var alveg yfirþyrmandi en það tókst.
Síðan kynntist ég þessum elskum og eftir
það varð lífið að suðandi hamingju.
Að vera býfluga
Að vera býfluga er harður heimur en
alveg töfrandi að fylgjast með. Munurinn
á býflugum, humlum og geitungum er sá
að býflugurnar safna sér vetrarforða en
humlur og geitungar lifa fyrir daginn í dag.
Flugurnar eru líka mjög kröfuharðar enda
eru þetta villt dýr og hika ekki við að stinga
af ef þeim finnst vistin ekki góð.
Býflugur eru: skipulagðar, hreinlátar,
duglegar, útsjónarsamar, afkasta-
miklar, umhyggjusamar, verkfræðingar,
landkönnuðir, áræðnar, kröfuharðar,
lausnamiðaðar og svona mætti lengi telja. Já
og þær eru ómissandi í fæðukeðjunni okkar,
án þeirra væri heimurinn frekar grár.
Þær hafa sem sagt alla þá eiginleika sem
mig dreymir um að hafa og þó það væri
ekki nema brotabrot þá væri ég himinsæl. Í
mínum rússíbanahuga eru þær fullkomnar
með fullkomið samfélag þar sem allt
gengur upp og ef það gengur ekki alveg
eins og áætlað er þá leysa þær málin og
ekkert vesen.
Ég ætlaði upphaflega að vera með tvö bú
en það er svo yndislegt að rækta þannig að
þau hafa flest orðið tíu en síðastliðið haust
vetraði ég sjö bú og það er alveg ágæt tala
til að hugsa um. Nú er bara að vona að
þær lifi veturinn af og verði suðandi kátar
þegar vorið kemur.
Þegar býflugurnar vakna af vetrardvala
í mars-apríl þá byrja þær á skítaflugi. Þær
skíta nefnilega ekkert yfir veturinn og þeim
er verulega mál þegar vorið kemur. Þá
hendast þær út, allar í einni kös og nánasta
umhverfi verður doppótt með öllum
blæbrigðum af gulum upp í brúnan lit. Eftir
Allir þurfa vatn.
Fífillinn er mikilvægur.