Skógræktarritið - 15.05.2020, Blaðsíða 107
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 105
fyrir andlát er þessari þungu ákvarðanatöku
létt af aðstandendum.
Til viðbótar verður hægt að hlaða inn
myndum og myndböndum í persónu-
lega gagnagrunninn, fylla út í þitt eigið
fjölskyldutré og skrá niður hluti er tengjast
erfðamálum, hvort sem er að hlaða inn
erfðaskrá eða deila persónulegum munum á
milli niðja þinna.
Í persónulega gagnagrunninum getur þú
haldið utan um söguna þína, skráð hana
með eigin orðum og varðveitt hana ásamt
þínum hinstu óskum á öruggum stað og við
tryggjum að þetta komist í hendur ástvina
þinna. Þegar gögnin hafa verið afhent verður
þeim eytt úr gagnagrunni Trés lífsins. Fyrir
þau sem það kjósa verður til minningasíða
um viðkomandi sem verður tengd trénu
þínu eins og áður hefur verið nefnt en hún
hefur ekki að geyma þau persónulegu gögn
og upplýsingar sem þú skráir inn í persónu-
lega gagnagrunninn fyrir andlát.
Til framtíðar
Tré lífsins er nýr valmöguleiki við lífslok
sem leggur áherslu á valfrelsi, að varðveita
söguna okkar, virðingu við hina látnu,
umhverfisvernd og býður mögulega upp á
nýtt viðhorf til dauðans þar sem við sjáum
líf spretta af lífi í minningagörðum.
Þetta er verkefni sem unnið er af öllu
hjarta og fullum heilindum en framundan
eru áskoranir sem tengjast fjármögnun
verkefnisins og samstarfi.
Tré lífsins er verkefni sem mikilvægt
er að vinna í samstarfi við þá sem best
þekkja til á hverju svæði fyrir sig, bæði til
þess að nýta þekkinguna á vistkerfunum
sem er til staðar heima í héraði og vegna
þess hve minningagarðarnir verða tilfinn-
ingaþrungnir og tengdir fólki vegna þess
að undir trjánum verða jarðneskar leifar
ástvina þeirra.
Okkur þætti vænt um að heyra frá
skógræktarfólki og öðrum náttúruunn-
endum hvernig ykkur líst á Tré lífsins en
við viljum vinna verkefnið í sem opnustu
samtali við þau sem búa yfir þekkingu og
ástríðu fyrir málaflokknum.
Að lokum skulum við snúa okkur aftur
að tengingunum sem minnst var á í upphafi
greinarinnar. Er nokkuð hægt að hugsa sér
fallegri viðbót við tengingu trjáa og manna
en að tréð sjálft sé táknmynd ástvinar sem
fallinn er frá og þannig muni amma gamla,
afi eða annar látinn ástvinur sjá þér fyrir
súrefni til að þú megir lifa vel þann tíma
sem þú færð hér í jarðneskri tilvist?
Það er okkur mikilvægt að þessi
valmöguleiki verði í boði fyrir Íslendinga
sem fyrst og við vinnum áfram hörðum
höndum að því að svo megi verða. Þangað
til þá biðjum við ykkur að velta því fyrir
ykkur, hvaða tré vil ég verða?
sigridur.bylgja@trelifsins.is www.trelifsins.is www.facebook.com/
trelifsins
Höfundur: SIGRÍÐUR BYLGJA
SIGURJÓNSDÓTTIR
Sigríður Bylgja, stofnandi Trés lífsins, með frumgerð af
duftkeri á Hamrinum í Hafnarfirði haustið 2019.