Skógræktarritið - 15.05.2020, Blaðsíða 73
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 71
erfið fyrir ungar plöntur beint á móti sjó.
En í dag, tæpum 40 árum síðar, leyna
trén hennar Unu sér ekki. Sum eru tví-
eða margtoppa og standa önnur mjög
þétt en þau lifa, stækka frá ári til árs
og mynda fjölbreytt útivistarsvæði ofan
við kaupsstaðinn, með skemmtilegum
göngustígum og mögnuðu útsýni.
Eftir að Sigmundur eiginmaður Unu dó
fluttist hún til Breiðdalsvíkur og hélt þar
áfram að stunda áhugamálið sitt. Hún
hitti þar fólk með svipaðan áhuga og mikil
gróska var í skógræktarmálum þar sem og
t.d. á Djúpavogi á þessu tímabili. Una var
mikil ævintýrakona og hafði gaman af að
ferðast og kynnast fólki og nýjum stöðum.
Hún fór oft í ferðir erlendis á vegum
Skógræktarfélags Íslands eða með fólki
og góðum vinum sem hún þekkti innan
skógargeirans til að skoða skóga, tína fræ
og upplifa.3,5
Um svipað leyti var í grunnskólanum
kennari, Guðrún Arnbjargardóttir, sem
hafði brennandi áhuga á skógrækt og voru
þær í nokkur ár saman um að gróður-
Hámundarstöðum í Vopnafirði. Hún hafði
frá 16 ára aldri hjálpað Oddnýju í garðinum
í Ytri-Hlíð og fengið mikinn áhuga á
trjárækt og gróðursetningu (5. mynd).
Una giftist árið 1953 Sigmundi Davíðs-
syni og þau byggðu húsið „Lund“
á Kolbeinstanga. Þau eignuðust þar
fimm börn. Lóðin í kringum húsið var
girt af og Una fór fljótt að rækta hana
upp. Smám saman var komin fallegur
trjá- og blómagarður ásamt fjölbreyttu
ræktunarstarfi á trjáplöntum og runnum.5
Svæðið í kringum þorpið var aðallega
klettar og nauðbeittir melar og Una sá að
þar var verk að vinna við að græða landið
með lúpínu og koma upp trjágróðri til
að mynda skjól í þessu vindasama sjávar-
þorpi. Um 1980 var þorpið girt af og
stuttu eftir það hóf Una, með samþykki
sveitarfélagsins, ræktun á útivistarsvæði í
Hraununum fyrir ofan þorpið. Plönturnar
ræktaði hún sjálf eða keypti frá gróðrar-
stöðinni í Hallormsstað og síðar í Barra
á Egilsstöðum. Á hverju ári fór hún ein,
eða með börnum sínum, og gróðursetti í
dældum og lægðum meðfram hrauninu,
inn eftir meðfram klettabeltinu eða
fyrir ofan þorpið.5 Einnig gróðursettu
kvenfélagskonur þar plöntur á svipuðum
slóðum. Lengi vel sáust ekki verk þeirra
því vaxtarskilyrði á þeim slóðum eru
4. mynd. Oddný (til hægri) í skemmtiferð með nemendur
úr Torfastaðaskóla. Mynd: Valgerður Friðriksdóttir
5. mynd. Una Guðrún Einarsdóttir. Mynd: Myndagrúsk