Skógræktarritið - 15.05.2020, Page 105
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 103
sínu komist inn á minningasíðu um þann sem
þar hvílir. Garðarnir munu vonandi gera það
að verkum að almenningur bindist skógum
djúpum tilfinningaböndum og sæki meira í
útivist þegar henni fylgir að heimsækja tréð
hennar ömmu, fara í lautarferð undir trénu
hans afa eða athuga hvort að fuglar séu búnir
að verpa í trén að vori.
Við sjáum fyrir okkur að hægt verði
að gróðursetja nokkur duftker í kringum
sama tréð svo að til verði fjölskyldutré
eða fjölskyldureitur. Eftir sem áður fær
hver og einn skilti með nafninu sínu og
tæknitengingu inn á minningasíðuna. Óskir
þínar um hvaða trjátegund þú vilt að verði
gróðursett með þinni ösku, hvaða tré þú
vilt verða, munu vera virtar svo framarlega
sem vistkerfið í þeim minningagarði sem þú
vilt hvíla í bjóði upp á slíkt.
Minningagarðarnir munu verða að
útivistarskógum sem stuðla að landgræðslu
og veita mikilvæga vistkerfisþjónustu svo
sem með kolefnisbindingu sem sannarlega
er þörf á á tímum áður óþekktra loftslags-
breytinga. Tré og útivist í skógum stuðla
einnig að bættri andlegri- og líkamlegri
heilsu þeirra sem þá heimsækja og í
minningagörðunum fær athöfnin að faðma
tré aðra og nýja merkingu.
Í landsskipulagsstefnu segir:
• Að skipulag byggðar og landnotkunar
stuðli að sjálfbærri þróun.
• Að skipulag byggðar og landnotk-
unar sé sveigjanlegt og stuðli að seiglu
gagnvart samfélags- og umhverfis-
breytingum.
• Að skipulag byggðar og landnotkunar
stuðli að lífsgæðum fólks.
• Að skipulag byggðar og landnotkunar
styðji samkeppnishæfni landsins alls
og einstakra landshluta.
Við teljum að Tré lífsins uppfylli alla
fjóra meginþætti landsskipulagsstefnu og
séu því heillavænlegt spor fyrir sveitarfélög
að taka til þess að stuðla að sjálfbærni,
huga að umhverfismálum og stuðla að
skynsamlegri landnýtingu.
Minningasíða
Eins og minnst var á hér að ofan verður
hvert tré merkt með nafni þess sem undir því
hvílir og tæknitengingu inn á minningasíðu
viðkomandi. Minningasíðan er undirsíða á
vefsíðu Trés lífsins sem varðveitir minningu
hins látna. Hægt er að komast inn á
minningasíðuna með tæknitengingunni sem
verður á skilti við tré hins látna, í gegnum
internetvafra eða í gegnum app Trés lífsins. Á
Minningagarður. Tölvuteiknuð mynd frá hönnuði Trés lífsins, Einari Guðmundssyni, Studio WDLND.